09.05.1947
Neðri deild: 125. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1788 í B-deild Alþingistíðinda. (3048)

71. mál, ræktunarsjóður Íslands

Jón Pálmason:

Herra forseti. Eins og frsm. landbn. hefur gert grein fyrir, hefur n. fallizt á að flytja nokkrar brtt. við þetta frv., sem n., og ég hygg allir þm., eru sammála um, að fram eigi að ganga á þessu þingi.

Ég hef leyft mér að flytja hér brtt. á þskj. 784, um, að framlagið hækki úr 0.5 millj. kr. í 1 millj. kr. Þessi till. er borin fram af því að það er nokkurn veginn víst, að þörf er fyrir lánveitingar úr þessum sjóði það miklar, að mjög er hætt við, að ákaflega fljótt verði skortur á fjármagni í honum. Til sönnunar því, að þannig er litið á af fleirum, vildi ég með leyfi hæstv. forseta lesa bréf, sem landbn. fékk frá stjórn Búnaðarfélags Íslands, en þar segir svo:

„Búnaðarþing það, sem nú situr, hefur tekið til meðferðar frv. til l. um Ræktunarsjóð Íslands, sem nú er til meðferðar á Alþingi.

Búnaðarþingið samþykkti svo hljóðandi ályktun með 23 shlj. atkv.:

„Búnaðarþing telur frv. það, er fyrir liggur, tif mikilla bóta frá því, sem nú er í lögum, en skorar á Alþingi það, er nú situr, að hækka hið árlega framlag ríkissjóðs til ræktunarsjóðsins í allt að 2 milljónir króna og að auka það fé, sem sjóðnum er ætlað til starfa samkv. 8. gr., í allt að 20 milljónir, þannig að stjórn sjóðsins geti fengið þetta lán, eftir því sem með þarf á hverjum tíma.

Enn fremur leggur búnaðarþing til, að lán til nauðsynlegra peningshúsa, sem eru vönduð og byggð úr varanlegu efni, verði veitt til allt að 40 ára og að heimilt verði að lána allt að 75% af byggingarkostnaði. Vextir af slíkum lánum vefði 2%.

Stjórn Búnaðarfélags Íslands leyfir sér að senda landbn. Nd. Alþingis þessar till. búnaðarþings til beztu fyrirgreiðslu.“

Nú er það svo, að ég hygg, að flestum mönnum í landbn. sé það ljóst — og mér er óhætt að fullyrða, að hv. frsm. er þeirrar skoðunar —, að mikið þarf að auka fjármagn þessa sjóðs frá því, sem nú er, en sá sér hins vegar ekki fært — og enginn nm. — að flytja brtt., sem samsvarar þeim kröfum, sem búnaðarþing gerir, en vegna þess, hve þörfin er rík, og til þess að koma til móts við þessa ósk, kom ég fram með þessa brtt.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, en vona, að þessari brtt. minni verði vel tekið.