09.05.1947
Neðri deild: 125. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1789 í B-deild Alþingistíðinda. (3049)

71. mál, ræktunarsjóður Íslands

Atvmrh. (Bjarni Ásseirsson) :

Ég vil þakka hv. n. fyrir afgreiðslu þessa máls. Það er ekki hennar sök, hve afgreiðsla þess hefur dregizt, heldur er það af því, að nokkur ágreiningur var um það innan stjórnarinnar, hvaða leið skyldi fara til þess að afla sjóðnum tekna. Það voru þau sjónarmið þar, að ekki væri rétt að leggja þær kvaðir á Landsbanka Íslands, sem gert var með 8. gr., eins og hún var í frv., og var því haldið fram, að aðstaðan væri breytt frá því, sem hún var, er frv. var samið, þegar Landsbankinn, eða ríkið, hafði yfir að ráða tugum og hundruðum milljóna í erlendum gjaldeyri, en nú er hann að þrotum kominn. En hvað um það. Það er lagt til að orða gr. eins og segir á þskj. 776, og mun þá verða lögð áherzla á að afla sjóðnum tekna með þeim lánsmöguleikum, sem fyrir hendi eru, en ef , það tekst ekki, mun verða lagt fyrir Landsbanka Íslands að lána þetta fé, og legg ég áherzlu á, að hv. d. sjái sér fært að samþykkja brtt. á þskj. 776.

Út af brtt. hv. þm. A-Húnv. vil ég taka það strax fram, að ég tel, að þau verkefni, sem sjóðnum eru ætluð, og þörfin fyrir lán mundu fyllilega geta tekið við brtt. sem þessari. Mér er það fyllilega ljóst, að þörf landbúnaðarins er svo mikil, að ekki mundi veita af þessu fé. Það er vitað mál, að á síðasta þingi reyndi ég og fleiri hv. þm. að fá hækkað framlag til sjóðsins, en það fékk þá ekki náð fyrir augum þingsins, og var okkur jafnvel núið því um nasir, að sú till. hafi orðið til þess, að málið sofnaði. Ég held því, að öllum ætti að vera það ljóst, að þegar ekki þótti fært á síðasta þingi að veita þessa uppbót, þegar sú mikla bjartsýni ríkti hér í peningamálum, að þá séu ekki miklar líkur fyrir, að hægt verði að fá slíkar till. samþ. nú, eins og málum er háttað. Það var samið um það í starfssamningi núverandi stjórnar að afgreiða ræktunarsjóðsfrv. í öllum aðalatriðum eins og það lá fyrir. En þó að ég telji enn, að fullnaumt sé skorið við neglur, miðað við þau verkefni, sem sjóðnum eru ætluð, þá vil ég ekki, að málið stöðvist vegna deilna hér í þinginu, því að svo miklar bætur felast í frv., að ekki má stofna málinu í hættu, þó að menn fái ekki öllum kröfum sínum fullnægt. En ég þori ekki að ábyrgjast, að frv. verði samþ., ef farið verður að breyta því stórlega efnislega, eins og felst í till. hv. þm. A-Húnv., því að þá er ekki fyrir hendi skuldbindandi samkomulag milli stjórnarflokkanna. Þó að ég sé sammála hv. þm. A-Húnv., að þörf fjárins sé fyrir hendi, þá vil ég ekki greiða þessari till. atkv. og vil mælast til þess við alla, sem vilja framgang málsins, að þeir geri það ekki. Auk þess vildi ég segja. að þrátt fyrir það, að æskilegt sé, að sjóðurinn fái aukin fjárráð, þá á ekki að vera útilokað, að hann geti aflað þeirra með hærri vöxtum á opinberum markaði, þannig að það eigi að vera möguleikar á því, að hann geti eflt sig. En þó væri mjög æskilegt, að samkomulag næðist um starfssvið hans.