09.05.1947
Neðri deild: 125. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1794 í B-deild Alþingistíðinda. (3061)

71. mál, ræktunarsjóður Íslands

Einar Olgeirsson:

Það var í upphafi gert ráð fyrir, að ræktunarsjóðurinn hefði sama hlutverk fyrir landbúnaðinn og stofnlánadeildin hefur fyrir sjávarútveginn, og þess vegna tel ég eðlilegt og rétt, að þessi umrædda 4. gr. sé höfð í þessu frv. Og ég fyrir mitt leyti fer ekki að bera fram brtt. um það nú.

Viðvíkjandi fyrirmælum í 3. gr. og 8. gr. vil ég segja það, að við þær atkvgr., sem fram fóru í fyrra, tókst ekki, þrátt fyrir það að ég og minn flokkur studdum það, að fá það í gegn, að l. um ræktunarsjóð yrðu afgr. þá samhliða öðrum hliðstæðum l., sem þá voru afgr., því að það var tilgangur okkar í nýbyggingarráði og ýmissa, sem studdum ríkisstj., að fá bæði málin í gegn. Og það væri hægt að koma þessum málum í heild í gegnum þingið nú á þann hátt, sem hagkvæmast væri, ef samtaka væru um það framsóknarmenn, sósíalistar og nokkrir, sem vitað er um úr Sjálfstfl., að eru því fylgjandi. Ég vildi vænta þess t. d., að hv. þm. Borgf., hinn mikli vinur landbúnaðarins, beitti sér fyrir þeirri hækkun, sem ég fer fram á í minni skrifl. brtt. Hann hefur nú sýnt sinn mikla alþekkta dugnað viðkomandi því að fá hækkuð laun hreppstjóranna um 100% þrátt fyrir föðurlegar áminningar hæstv. ríkisstj. um að gera ekki grunnkaupshækkanir. Ég vildi þá líka mega vænta þess, að hann taki einnig á þeim mikla krafti, sem hann býr yfir, og láti hann stjórnast af þeim mikla velvilja, sem hann hefur gagnvart landbúnaðinum, og knýi fram þessar réttarbætur fyrir landbúnaðinn, sem ég hef talað um.