15.01.1947
Neðri deild: 54. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1808 í B-deild Alþingistíðinda. (3110)
116. mál, nýjar síldarverksmiðjur á Norðurlandi
Atvmrh. (Áki Jakobsson) :
Herra forseti. Ég er sammála hv. 1. þm. Skagf. um það, að það er vanhugsað að taka upp þá aðferð að samþykkja hér mesta sæg af ríkisverksmiðjum, sem eru ekki byggðar strax, en trufla allar aðrar framkvæmdir heima fyrir. Það er enginn vafi á því, að þegar þetta frv. lá fyrir þinginu 1942, en þá var ákveðið að reisa 6 verksmiðjur, en í meðferð þingsins var þessari bætt við, þá var öllum ljóst, að ekki mundu verða tök á því að reisa strax þessar verksmiðjur. Það leið nokkur tími, frá því áð þetta var samþ. og þangað til byrjað var að reisa verksmiðjurnar, sem var ekki fyrr en árið 1945 og stafaði af því, að ekki var hægt að fá vélar í Ameríku, og það var ekki fyrr en byrjað var að smíða litlar vélar innanlands, sem verkið var hafið. Var það fyrir forgöngu Siglufjarðarkaupstaðar að tiltækilegt þótti að byrja á þessu.
Þegar í byrjun var ráðizt í tvær verksmiðjur, á Siglufirði og Skagaströnd. Ég býst ekki við, að hægt sé að finna stað, sem útgerðarmenn eru meira sammála um en Skagaströnd, því að eins og kunnugt er, er vestursíldin feit, og í venjulegum síldarárum mundi verksmiðja við Húnaflóa hafa í för með sér stórkostlega breytta útkomu vegna þess, hvað síldin er feit, þannig að sjálfsagt þótti að byrja á Skagaströnd, eins og sakir stóðu. Nú erum við búnir að fá tvö aflaleysisár, og nú telja meira að segja sumir, að síldin sé að hverfa frá landinu vegna einhverra heitra strauma. Við verðum að vona að svo sé ekki. Það hafa áður komið tvö aflaleysisár, án þess að svo illa hafi tekizt til, en ég býst við, að áður en reistar verða stórar verksmiðjur á Norðurlandi verði rétt að sjá, hvernig síldin hagar sér. Ég er því á þeirri skoðun, að ekki sé rétt að leggja út í stórverksmiðjur eins og er. Hitt ættu menn að gera sér ljóst, að á venjulegum tímum er bræðsla á síld ákaflega ill meðferð, vegna þess að á slíkum tímum getum við haft meira upp úr síldinni öðruvísi. Vegna feitmetisskorts eru tímarnir núna óvenjulegir, en við getum haft miklu meira upp úr síldinni með því að salta hana, auk þess sem það veitir fólki mikla atvinnu, og með tilliti til þess verðum við að leggja áherzlu á að geta saltað síldina. Alls staðar þar sem Íslands síld er notuð að marki, þykir hún annarri síld betri, og nú síðast eru fregnir um þetta frá Sovétríkjunum, sem nú hafa í fyrsta skipti keypt Íslandssíld, en þeir álíta hana alveg sérstaklega góða, og sérfræðingar þar fullyrða, að þetta sá bezta síldartegund í heimi. Þeir taka það fram sérstaklega, að þeir álíti það illa meðferð á slíkri síld að nota hana til bræðslu.
Með tilliti til þessa álít ég rétt að stefna að því, að síldarbræðsla verði fyrst og fremst miðuð við það að gera söltun mögulega, og álít, að miða beri við það á þeim stöðum, sem þegar er búið að samþykkja, sem sé Sauðárkróki, Skagaströnd og Húsavík. En þótt saltað sé á þessum stöðum, þarf líka að vera um bræðslu að ræða, því að skipin fást ekki til að koma inn, nema þau geti látið í bræðslu. Ég hef því látið gera athugun á því, hvort ekki væri hægt að byggja verksmiðjur, sem hægt væri að reka með árangri við hliðina. á stóru verksmiðjunum. Það er enn ekki kominn árangur af þessum athugunum, en það eru margir, sem álíta, að hægt sé að byggja verksmiðju tiltölulega ódýrt, sem gæti fullnægt þessari þörf og gæti tekið síldina til söltunar.
Það er enginn vafi á því, að þótt saltaðar væru af síld einar milljón tunnur, er nægur markaður fyrir það, og þó að eftirspurn sé eftir síldarlýsinu, er ég sannfærður um það, að saltsíldin verður enn meira eftirspurð. En til þess að hægt sé að salta svo mikið magn, þurfa að vera möguleikar til þess að reka slíkar verksmiðjur í stórum stíl og minnst á 10 stöðum á Norðurlandi. Ég meina ekki að salta, eins og gert hefur verið, 10 þúsund tunnur alls. Það er of lítið. Það þarf að vera hægt að salta í tunnur í tugþúsundatali. Það hafa verið mest saltaðar á Íslandi 38 þús. tunnur. Það segir sig sjálft, að þetta getur ekki gengið svona, og er útilokað, að hægt sé að drífa upp svona söltun, nema verksmiðjur séu víða um Norðurland, eða alls staðar, þar sem síld veiðist. Síldarsöltun veitir miklu meiri atvinnu en síldarhræðsla og ofan á það kemur svo, að það eru ýmsir möguleikar í sambandi við síldarsöltun. Það er t. d. hægt að koma upp tunnuverksmiðju, sem getur veitt atvinnu yfir vetrarmánuðina, þannig að ég tel rangt að leggja kapp á það að byggja þessar stóru verksmiðjur, en tel, að heldur beri að leggja kapp á að salta Norðurlandssíldina.
Hvað varðar verksmiðju þá, sem um er rætt í frv. því, sem fyrir liggur, þá hagar svo til, að nú er nauðsynlegt að byggja verksmiðju á Norðausturlandi. Á síðustu árum hefur komið í ljós, að ef verksmiðja hefði verið þar, hefði útkoman orðið miklu betri en raun bar vitni um vegna þess, hvað bátunum var erfitt að komast með afla sinn til Eyjafjarðar og Siglufjarðar. Það er skoðun manna, að þessi verksmiðja eigi ekki að vera norðan Langaness, vegna þess að þegar bátarnir eru búnir að fylla sig, er þeim um megn að komast fyrir röstina. Ég held því, að nauðsynlegt sé að mæla með því, að þetta mál sé ekki látið dragast á langinn, vegna þess að það snertir ekki fyrst og fremst Austfirði, heldur síldveiðiflotann í heild. Og síldarútvegur okkar er þannig, að viðbúið er, að ef þarna hefði verið stór verksmiðja, hefði útkoman orðið önnur og betri, eftir því sem síldin hefur hagað sér undanfarin ár, þó að aldrei hafi komið til þess, að þurft hafi að veiða hana á þessum slóðum, því meðan nóg síld er fyrir Norðurlandi, fara skipin ekki austur.
Ég tel því, að hér sé um nauðsynjamál að ræða, sem ég vil mælast til, að flýtt verði hér í þinginu eins og unnt er.