29.04.1947
Neðri deild: 119. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1811 í B-deild Alþingistíðinda. (3119)

116. mál, nýjar síldarverksmiðjur á Norðurlandi

Frsm. minni hl. (Áki Jakobsson) :

Ég bjóst við því, að talað yrði af hálfu meiri hl. n.

Sjútvn. hefur haft þetta mál til afgreiðslu og gat ekki orðið sammála um það. Fjórir nm., þeir SkG, FJ, PO og SK, voru á móti því, að frv. væri samþ., en vildu þess í stað breyta því þannig, að það yrði breyt. við l. um nýjar síldarverksmiðjur frá 1942. Ég var einn um það í n. að óska þess, að frv. yrði samþykkt, og áskildi mér rétt til að koma fram með brtt. við það, en nú hefur hv. flm. (HÁ) komið fram með brtt. í þá átt á þskj. 724, og mun hann gera grein fyrir henni.

Á undanförnum tveim árum hefur komið í ljós, að síldargöngur hafa verið óvenjumiklar við norðausturhluta landsins. Þeir, sem kunnugir eru, halda því fram, að í öllum árum sé mikil síld á þessum slóðum, en ástæðan til þess, að sú síld hefur farið fram hjá athugun manna að miklu leyti, er sú, að meðan nóg er af síld á miðsvæðum síldveiðanna við Norðurland, er aldrei leitað austur, en þessi tvö ár hefur verið síldarleysi mikið á venjulegum síldarsvæðum, og þá hefur verið leitað austur með góðum árangri. Bæði þessi ár hefur sú síld, sem þarna hefur fengizt, verið allmikill hluti af síldveiði flotans og sérstaklega minni bátanna, sem gátu hagnýtt sér síldarverksmiðjur ríkisins á Raufarhöfn.

Samkvæmt skýrslu frá síldarverksmiðjum ríkisins telja þær, að venjulega sé um mjög litla síld að ræða á þessum slóðum, en þessi síldarskýrsla er gerð á þann hátt, að skipin gefa skýrslu um, hvar þau hafa tekið síldina, og síðan er þetta merkt á kort. Það er víst, að þegar nægileg síld er fyrir Norðurlandi, fer ekkert skip austur, en þetta sýnir, að síldveiðiskýrslur verksmiðjanna eru ekki einhlítar og því ekki rétt að taka eingöngu tillit til þeirra, þegar taka á ákvörðun um þessa verksmiðju. Það vantar mikið á að Íslendinga hafi sem skyldi lagt þá rækt við að rannsaka göngur síldarinnar, og ekkert hefur heldur verið að því gert að rannsaka þetta, þótt undarlegt sé, að ekki skuli á hverju einasta vori vera fylgzt með göngu síldarinnar. Síðan flugvélarnar komu, er mjög vel hægt að fylgjast með göngu síldarinnar. Það eru taldar líkur til þess af fiskimönnum, að síld sé nægileg í 30–40 mílna fjarlægð frá ströndum landsins, en flugvélarnar fljúga ekki svo langt, þó að það sé ekki lengra en svo, að skip gætu átt auðvelt með að sækja síldina þangað út. Þetta bendir til þess, að á næsta sumri þyrfti að hafa miklu stærri og fullkomnari flugvélar, og með slíku skipulagi á síldarleitinni væri hægt að konstatera það, hvernig síldin hagar sér. Ég hef það eftir þaulkunnugum mönnum, að þarna sé í öllum árum mikil síld, og ef það er, þá er sjálfsagt að byggja þá verksmiðju, sem frv. fjallar um.

Síldarverksmiðja ríkisins á Raufarhöfn var byggð í því skyni að taka við þeirri síld, sem veidd væri þarna, og hefur hún komið að miklum notum, en fyrir smærri skip, sem veiða sunnan Langaness, er mjög erfitt að komast þangað. Ferðin fyrir Langanes er mjög erfið, og það byggist á því, að skipin eru hlaðin eins mikið og þau geta borið, þannig að þau hafa mikið á dekki, en skip, sem veiða austan Langaness, eiga í þeim erfiðleikum, að þau komast ekki fyrir nesið með slíkan farm, en vitað er, að margir bátar, sem síldveiði stunda, geta ekki tekið nema helming af því, sem þeir geta borið, í lest, þannig að ef þeir geta ekki sett á dekk, þá notast veiðitækin minna en annars. Þess vegna er svo þýðingarmikið að byggja verksmiðju þarna, en stækka ekki Raufarhafnarverksmiðjuna. Ef byggð yrði verksmiðja sunnan Langaness, mundi henni ætlað að taka við síldinni, sem veiðist fyrir sunnan það, en Raufarhafnarverksmiðjan gæti þá tekið það, sem veiðist fyrir norðan nesið, og má telja víst, að hún geti nokkurn veginn annað því, sem kemur til hennar af þeim veiðisvæðum, enda gætu þá stóru skipin farið suður fyrir nesið og líka til verksmiðjunnar á Siglufirði og Skagaströnd, ef hún annaði þessu ekki, þó að þangað sé löng leið.

Mál þetta var sent til umsagnar til stjórnar síldarverksmiðja ríkisins og af stjórnarmeðlimum voru það þrír, sem lögðu til, að frv. yrði fellt, þeir Sveinn Benediktsson, Júlíus Havsteen og Erlendur Þorsteinsson. Meiri hl. virðist vera á þeirri skoðun; að ekki sé ástæða til að byggja mikið af verksmiðjum að svo komnu máli. Ef miðað er við tvö síðustu árin, þá má segja það, en hvorugt þetta ár hefði fært okkur eins þungar búsifjar og raun bar vitni um, ef þessi verksmiðja hefði verið komin, þannig að þetta er lítill grundvöllur. Auk þess telja þeir heppilegra að stækka Raufarhafnarverksmiðjuna en að byggja nýja verksmiðju á nýjum stað sunnan Langaness.

Ég hef þegar farið inn á það, að verksmiðja á Raufarhöfn geri ekki sama gagn og verksmiðja sunnan Langaness og vil einnig minna á það, að líka hefur komið í ljós, að Raufarhöfn er mjög óheppilegur staður og að það var af einskærum misskilningi, að þarna var byggð svona stór síldarverksmiðja. Ástæðan til þess, að hún var höfð svona stór, var sú, að þarna hafði verið gömul síldarverksmiðja, sem útlendingar áttu, og verður ekki annað séð en að stjórn síldarverksmiðjanna hafi skort stórhug til þess að byggja þar, sem ekki hefði verið verksmiðja áður, en þó að verksmiðja væri þarna áður, lágu engin rök til þess að byggja aftur á þessum stað. Hafnarskilyrði þarna eru mjög slæm. Höfnin er að vísu góð, en það er svo erfitt að dýpka hana, að til vandræða horfir. Þegar tankskip koma, þarf verksmiðjan að útbúa alls konar pramma til þess að draga út að skipshliðinni. Það sér hver maður, hvaða fjarstæða það er að hafa svona stóra verksmiðju, þar sem þarf að nota slík vinnubrögð, og þetta, hvað höfnin er lítil og takmarkaðir möguleikar fyrir að dýpka hana, vegna þess að það er klettarani, sem gengur út í hana, gerir það að verkum, að vöruflutningaskip geta ekki komizt að bryggju, nema þau séu sérstaklega valin með það fyrir augum, þ. e. smáskip, en þá verður allur flutningskostnaður að sama skapi dýrari. Þetta eru mistök, vegna þess að verksmiðjustjórnin lét ekki rannsaka botninn, heldur sló því föstu, að þarna væri hægt að dýpka ótakmarkað.

Ég býst við, að rétt hefði verið á sínum tíma að byggja þessa verksmiðju sunnan Langaness að hún hefði þá komið að meira gagni —, en það þýðir ekki um það að fást. Þarna er verksmiðjan komin, og hún hefur gert mikið gagn. En þessir annmarkar eru til þess fallnir að benda ái það að byggja ekki of stóra verksmiðju að óathuguðu máli. Hitt er annað mál, að gott er, að á Raufarhöfn sé einhvers konar verksmiðja, því að þarna úti fyrir er oft síld, þar eð hún leitar oft norður og austur frá landinu.

Minni hl. stjórnar síldarverksmiðja ríkisins, þeir Þóroddur Guðmundsson og Jón Kjartansson, hefur mælt með því, að frv. verði samþ. og að ákveðið verði að reisa verksmiðju á Norðausturlandi, þegar stjórn síldarverksmiðja ríkisins þykir ástæða til.

Meiri hluti sjútvn. leggur til, að þetta verði breyt. við l. um síldarverksmiðjur frá 1942. Ég verð að segja, að það er einkennileg ákvörðun, sem stafar af því, að stjórn S. R. er yfirleitt á móti því að byggja. Ég gat því ekki fallizt á þá skoðun meiri hl. n. að fela ríkisstj., sem er andvíg málinu, að ráða því, hvenær þessi verksmiðja verður byggð. Ég gat því ekki fallizt á þetta álit eða till. meiri hl. sjútvn., heldur legg ég til, að frv. verði samþ. ásamt brtt. hv. 1. flm. á þskj. 742. Meiri hl. n. er á móti því, að verksmiðjan verði byggð, en telur hins vegar ekkert mæla gegn því, að tiltekið verði í l. um nýjar síldarverksmiðjur, sem samþ. voru 1942 og breyta þyrfti þá um leið, að m. a. skuli verða reist síldarverksmiðja á Norðausturlandi. En eins og allir vita, er þetta engin lausn á þessu máli. Það er sama og fella það. Þetta veit meiri hl. n. Þetta vita allir, að þau l. yrðu aldrei framkvæmd af núv. ríkisstj., sem ekki mun hreyfa hönd né fót til að auka síldarverksmiðjukostinn og er sárgröm yfir því, að síldarverksmiðjunum nýju á Siglufirði og Skagaströnd skuli vera svo langt komið, að ekki sé unnt að stoppa þær. En eins og hv. 1. þm. Skagf. sagði hér við 1. umr. þessa máls, er það í fyllsta máta ósæmilegt af ríkinu að samþykkja að reisa verksmiðjur á þessum og þessum stöðum, láta fólk síðan vaða þar í villu og blekkingum og bíða eftir verksmiðjum, sem aldrei koma, og miða ýmsar framkvæmdir við loforð í l., sem ekki er efnt. T. d. var 1942 samþ. að byggja síldarverksmiðjur í Skagafirði, Hólmavík og Húsavík, auk verksmiðjanna á Siglufirði og Skagaströnd, sem nú hafa verið reistar. Á Sauðárkróki hefur þetta fyrirheit um síldarverksmiðju orkað mjög á það undanfarin ár, hvað gert hefur verið eða látið ógert í því kauptúni, því að menn hafa með réttu þótzt mega reiða sig á l. frá Alþ. En Alþ. hefur brugðizt íbúum þessa staðar, og það er ósæmilegt með öllu að halda nú enn inn á slíka braut. Það er kominn tími til þess í þessum málum, að menn þori að vera opinberlega á móti því, sem þeir eru á móti í hjarta sínu, en reyni ekki að blekkja fólk lengur. Þetta tel ég meginatriði í þessu máli. Ég tel óeðlilegt og ósæmilegt, að meiri hl. sjútvn. afgreiði þetta frv. á þann hátt, sem lagt er til, með fullri vissu um það, að það þýði sama og fella það, þó að það heiti öðru nafni til að blekkja fólk. Meining flm. var aldrei sú að fá þetta að nafninu til inn í einhver eða einhver l., sem aldrei verða framkvæmd. Það veit bæði hæstv. ríkisstj. og hv. dm. hér.

Allir þm. Austfirðinga hafa gerzt flm. þessa frv., og þetta mál er eitt af allra mestu áhugamálum Austfirðinga yfirleitt, enda kemur það glögglega í ljós, þegar athugaðar eru áskoranir þær, sem Alþ. hafa borizt um þetta mál, og má telja, að hvert hreppsfélag fjórðungsins hafi skorað á Alþ. að samþykkja þetta frv. Áskoranir hafa komið frá hreppsnefnd Búðahrepps í Fáskrúðsfirði, hreppsnefnd Reiðarfjarðarhrepps, hreppsnefnd Eskifjarðarhrepps, bæjarstjórn Neskaupstaðar, hreppsnefnd Mjóafjarðarhrepps, bæjarstjórn Seyðisfjarðarhrepps, hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, enn fremur er sams konar áskorun frá verkamannafélaginu Fram á Seyðisfirði, útgerðarmannafélags Fáskrúðsfjarðar og áskoranir frá fjölmörgum sjómönnum og útgerðarmönnum á Austurlandi og víðar. Þessar undirtektir sýna bezt, hvern hug menn bera til þessa máls þar eystra og hvert kapp þeir leggja á, að það nái fram að ganga. Og ég vil sérstaklega taka það fram, að þegar svo mikill áhugi er fyrir máli, að viljinn má heita einn í heilum landsfjórðungi, og málið er flutt af öllum þm. fjórðungsins, þá er ekki sæmandi að smeygja sér undan því að taka beina ákvörðun í því. Einmitt með tilliti til þess, að vitað er, að ríkisstj. muni ekki ráðast í neinar verksmiðjubyggingar aðrar en þær, sem Alþ. beint fyrirskipar henni, einmitt af þeim sökum er óhjákvæmilegt, að Alþ. taki sjálft afstöðu í málinu. Flm. hafa líka gert ráð fyrir því að nokkru leyti. Þeir báru þetta frv. fram meðan stjórnarkreppan var, og það er miðað við það, að Alþ. taki ákvarðanir og fyrirskipi ríkisstj. framkvæmdir. Ég býst við því, ef horft er yfir atvinnuástandið í landinu, að fá héruð séu verr sett atvinnulega séð en Norðausturland eða sá hluti landsins. Frá því sjónarmiði er þessi verksmiðja þegar gífurlega mikils virði, nema þá þegar sjónarmiðinu er snúið við og talin fjármálaspeki, að ríkið leggi ekki í miklar framkvæmdir, þar sem fátt fólk er fyrir eða ekki mjög þéttbýlt. Þessir menn telja það sóun að byggja dýr atvinnutæki á afskekktum stöðum. En þeim finnst það ekki sóun að láta fólkið ganga atvinnulaust í mörg ár, flýja síðan héruð sín og flykkjast til Reykjavíkur. En ef menn streyma úr sjávarútveginum og flykkjast í störf, sem byggjast á gjaldeyriseyðslu, er stefnt í hreinan voða. Það er aðeins ein leið til að stöðva þann straum. Það er að byggja atvinnutæki úti á landi, svo að menn sjái sér ekki hag í að koma hingað. Það hafa komið fram hér á landi þröng sjónarmið, þegar menn hafa viljað banna tilflutning manna milli héraða. Hæstv. núv. forsrh. var félmrh., þegar húsaleigulögin voru t. d. sett og tekið upp það nýmæli, að utanhéraðsmenn mættu ekki taka hér íbúðir. Þetta ákvæði kemur nú raunar í bága við stjórnarskrána, þar sem heimilað er atvinnufrelsi.