20.05.1947
Efri deild: 138. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1817 í B-deild Alþingistíðinda. (3130)

116. mál, nýjar síldarverksmiðjur á Norðurlandi

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Þetta mál var borið fram í Nd. og lagt fram á þskj. 221 í desember s. l. Málið hefur tekið nokkrum breytingum, eins og sést á þskj. 780, eftir 3. umr. í Nd. Aðalbreyt. er þó í því fólgin, að undirbúningi að byggingu verksmiðjunnar skuli lokið á árinu 1947 og byggingaframkvæmdir hafnar 1948. Sjútvn. hefur rætt þetta mál mjög ýtarlega og mun hafa kvatt til sín meiri hl. stjórnar síldarverksmiðjanna til að ræða við hana um málið, og birtist hér sem fskj. á þskj. 880 bréf, sem síldarverksmiðjustjórnin ritaði til n. Þótti hér rétt að láta það fylgja með. Fskj. 2 er yfirlit yfir móttekna síld hjá síldarverksmiðjum ríkisins árin 1939–1940, vegna þess að n. þótti rétt að láta þessi gögn koma fram í málinu og geymast sem þskj., hvernig sem fer með afgreiðslu málsins hér.

Ég vil taka það fram, að í l. frá 1942 er ákveðið að reisa nokkrar síldarverksmiðjur, sem enn hafa ekki verið reistar, m. a. síldarverksmiðju á Húsavík, Sauðárkróki, Hólmavík, og að stækka síldarverksmiðjuna á Raufarhöfn. Er m. a. gert ráð fyrir, að á Raufarhöfn sé reist 5 þús. mála verksmiðja auk þeirrar sem fyrir er. Þar mun vera verksmiðja, sem getur brætt 6 þús. mál á sólarhring.

Það þykir ef til vill dálítið einkennilegt að bera fram frv. um að reisa nýja 5 þús. mála verksmiðju þar sem ekki hefur unnizt tími eða tækifæri til að reisa þær verksmiðjur, sem ákveðið er í l. Það hefur við athugun komið skýrt fram, að í minni hl. sjútvn. hefur ekki verið óskað eftir, að það væri farið lengra í þessu ákvæði nú en að bæta inn í þau lög að reisa eina verksmiðju til á svæðinu, sem tiltekið er á þskj. 780, og mun hann gera grein fyrir afstöðu sinni til málsins, og skal ég ekki ræða það hér að sinni. En það eitt út af fyrir sig er ekki frá mínu sjónarmiði fullkomin lausn á því máli, sem hér er talið vera mest aðkallandi. Það er einmitt að marka þá stefnu, að á Austurlandi verði komið upp nýrri síldarverksmiðju áður en byggðar eru þær verksmiðjur, sem þegar eru í lögum.

Verkefni síldarverksmiðjanna hljóta að verða tvenns konar. Annars vegar er að gera útflutningsvörur verðmætar á hverjum tíma og er eðlilegt, að verksmiðjustjórnin vilji helzt hafa verksmiðjurnar þar, sem mest síldarmagnið er og að öðru leyti einnig mest magn af verðmæti úr síldinni, eins og lýsi og mjöli. Þess vegna hefur hún einnig lagt áherzlu á, að verksmiðjur yrðu byggðar þar, sem síldveiðin er bezt. En það er, eins og vitað er, frá Húnaflóa og norðaustur undir Langanes. Hins vegar er annað verkefni síldarverksmiðjanna í landinu kannske engu minna, og það er að dreifa iðnaðinum nokkuð um landið, en halda honum ekki í einum hnapp, eins og hefur kannske verið of mikið gert að. Og þetta ræður að mestu því sjónarmiði, sem hér hefur komið fram hjá meiri hl. sjútvn. Það er sjálfsagt og eðlilegt, að sá fjörður, sem vitað er um, að hefur síldveiðaskilyrði, kannske mjög góð, a. m. k. fullkomlega í meðallagi, en í öðru lagi hefur orðið útundan slíkri atvinnugrein á undanförnum árum, fái að njóta þessa atvinnuvegar. Þetta sjónarmið hefur fyrst og fremst ráðið því hjá mér, að ég hef fallizt á, að rétt sé að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Einn nm., hv. þm. N-Þ., hefur lagt mjög mikla áherzlu á það að færa takmarkið að Rifstanga, þannig að ekki verði útilokað að setja verksmiðju á Raufarhöfn og Þórshöfn. Í sambandi við þetta vil ég benda á það, sem mjög var haldið fram í sjútvn., að meðan ekki er uppfyllt sú áætlun að koma upp nýrri 5 þús. mála verksmiðju á Raufarhöfn, sé ekki ástæða til að víkka þetta svæði út, til þess að sá staður geti fallið undir þessi lagafyrirmæli. Sama má segja um Þórshöfn, að meðan ekki hefur verið komið upp þeim verksmiðjum, sem ætlað er að koma upp á Raufarhöfn, sé ekki ástæða til þess sérstaklega að taka þann stað inn, enda er það mín skoðun, að það eigi að staðbinda verksmiðju á Austfjörðum og þá alveg sérstaklega á Seyðisfirði. Veldur þar tvennt um, annars vegar, að hann er nokkuð miðsvæðis á því svæði, þar sem engin síldarverksmiðja er nú, en þar er sæmilega gott veiðisvæði fyrir utan, og hins vegar, að þar eru sérstaklega góð hafnarskilyrði. Það mundi þurfa sáralítinn tilkostnað til að koma upp nauðsynlegum hafnarmannvirkjum til þess að geta starfrækt slíka verksmiðju, sem hér er um að ræða. En þessu er ekki til að dreifa á Þórshöfn né Vopnafirði, og verður heldur ekki í raun og veru sagt um Norðfjörð. Eins og hafnarmannvirki eru þar nú, er þar ekki eins mikil kyrrð eins og þyrfti að vera, þar sem löndunartæki eru notuð, eins og gert er almennt fyrir síldarverksmiðjurnar. Verksmiðjustjórnin leggur raunverulega á móti því, að verksmiðjan sé byggð eða undirbúin til byggingar á þessu eða næsta ári, og kemur það til af því, að hún álítur réttara að sjá, hvernig fer um afkomu ríkisverksmiðjanna næstkomandi síldarvertíð. Veiðist mikið af síld og hafi verksmiðjurnar góða afkomu, vill verksmiðjustjórnin taka þetta mál til athugunar á ný, en ekki binda sig við að þurfa að framkvæma það, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Þetta er háttur hinna varfærnari manna, og ekkert við því að segja. Síldarverksmiðjustjórnin vill staðbinda þessa verksmiðju fyrst og fremst, þá sem fyrst er byggð, á svæðinu, sem gefur bezta veiði og bezt magn af olíu og lýsi úr síldinni. Það er einnig skoðun fjármálamanna og skoðun hinna ríku og hagsýnu. En þegar það er athugað um leið, að verkefni síldarverksmiðjustjórnarinnar er tvíþætt og hinn þátturinn engu veigaminni, að dreifa iðnaðinum, þá ber einnig að líta á þá hlið málsins engu að síður en þá, sem ég hef lýst og virðast aðalrök hjá stjórn síldarverksmiðja ríkisins fyrir því, að ekki skuli ráðast í að staðbinda verksmiðjuna á Austfjörðum. Nú er það alveg ljóst, að slíkt mannvirki þarf mjög mikinn undirbúning. Nýlega hefur verið rætt um það mál á Alþ., hve gífurlega hinar nýju verksmiðjur á Siglufirði og Skagaströnd hafa farið fram úr áætlun. Og enginn vafi er, að ákaflega mikið af mistökunum þar stafar beinlínis frá undirbúningsleysi. Mér er kunnugt, að það þarf lengri tíma til undirbúnings en menn gera nú ráð fyrir að velja staðinn, framkvæma dýptarmælingar í sambandi við hafnarmannvirki, leita tilboða um vélar og gera ýmsar jarðrannsóknir til athugunar á því, hvernig bezt skuli komið upp mannvirkjum og hvar bezt að byggja, gera teikningar af verksmiðjunni og framkvæma útreikninga. Þetta þarf allt að liggja fyrir, áður en verkið er framkvæmt. Þó að það sé sagt, að byggingarframkvæmdir skuli hafnar á árinu 1948, kann svo að fara, að það verði ekki hægt, vegna þess að nauðsynlegum undirbúningi er ekki lokið, sem frv. ætlast til, að framkvæmdur verði á þessu ári. Ég sé þó ekki ástæðu til að gera brtt. vegna þessa og senda málið þar með til Nd. nú undir þinglokin, sem gæti orðið þess valdandi, að málið strandaði. Það er að sjálfsögðu á valdi þess ráðh., sem fer með þetta mál, að flýta undirbúningi svo mjög sem unnt er, einnig að stöðva framkvæmdir, þar til hann hefði lagt fyrir síldarverksmiðjustjórnina annars vegar og Alþ. hins vegar, hvort það væri fjárhagslega skynsamlegt að fara út í þessar framkvæmdir. Þess er vænzt, að ráðh. láti fara fram fullkomna athugun á því, hvort hafizt skuli handa um byggingu, og láti ekki byrja, fyrr en þessi undirbúningur hefur verið gerður nákvæmlega. Það mun koma í ljós, að sé sá háttur hafður á, verður verkið miklu ódýrara en þau mannvirki, sem flanað hefur verið út í og ekki hugsað um annað en koma þeim einhvern veginn á stað, eins og virðist hafa verið um þær tvær verksmiðjur, sem byggðar voru nýlega.

Ég tel svo mikils virði fyrir afkomu þjóðarbúsins annars vegar og öflun erlends gjaldeyris hins vegar að koma sem flestum verksmiðjum upp í landinu og dreifa þeim sem mest, og þess vegna eigi þetta mál að ganga fram á þessu þingi. Við þessar umr. hefur það komið fram, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins telur, að fitumagn síldar fyrir Austurlandi sé mjög miklu lægra en fyrir Norðurlandi, svo að nemi jafnvel 4 kílóum á mál af lýsi. Það kann vel að vera rétt, miðað við beztu síld á Norðurlandi. En það út af fyrir sig mælir ekki á móti síldarverksmiðju á Austurlandi. Meðan ekki veiðist síld fyrir Norðurlandi, verður flotinn að sjálfsögðu að sækja hana austur, ef hún fæst þar, og þannig hefur það oft verið undanfarið. Verður þá að flytja þessa síld, sem er miklu magrari en Norðurlandssíldin, til verksmiðja í Norðurlandi, og mundi það verða óhagstæðara en að geta komið henni í verksmiðju á Austurlandi. Í öðru lagi getur svo farið, að engu lakara verði fyrir báta á Austurlandi að gera út við þá verksmiðju á því svæði, þó að síldin sé magrari. Má benda á, að Færeyingar hafa staðbundið sig um Seyðisfjörð, hvað síldina snertir, og koma sum skip þeirra með allt að 12 þús. mál, þó að mjög léleg skip séu. Enn er athugandi fyrir stjórn síldarverksmiðjanna, hvort ekki er sjálfsagður hlutur að hafa sér rekstrarreikninga og rekstraruppgjör fyrir hverja verksmiðju og miða síðan verð síldarinnar við það, sem hægt er að greiða á hverjum stað, en taka ekki meðalverð, eins og nú er gert yfir allt landið. Ég tel ekki, að það sé rétt að láta þá menn, sem veiða á beztu veiðisvæðunum, endilega þurfa að bera uppi rekstrarhalla á öðrum svæðum, enda mun það verða meir til að knýja þau iðjuver til þess að komast nokkurn veginn af sjálf fjárhagslega, ef þau vissu, að ekki væri staðið undir rekstrarhalla þeirra eða miðlað til þeirra frá öðrum verksmiðjum. En þetta er mál út af fyrir sig.

Ég hef þá gert grein fyrir afstöðu meiri hl. n., sem leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. Ég vænti þess, að d. fallist á þá till.