20.05.1947
Efri deild: 138. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1830 í B-deild Alþingistíðinda. (3136)

116. mál, nýjar síldarverksmiðjur á Norðurlandi

Pétur Magnússon:

Herra forseti. Ég vildi aðeins gera litla aths. út af ræðu hv. þm. Barð. Mér skildist, að rök hans fyrir frv., eins og það er nú, væru þau, að það væri alveg saklaust að samþykkja, að undirbúningi skuli verða lokið 1947 og byggingarframkvæmdir hafnar 1948, af því að ráðh. fari því aðeins eftir þeim l., að skynsamlegt þyki að byggja. En til hvers er þá að lögfesta þessi ákvæði, ef á að brjóta þau, ef svo bíður við að horfa. Er þá ekki betra að samþykkja till. hv. 1. landsk. um að hraða undirbúningnum sem mest, án þess að setja tímatakmark, ef það er hvort sem er tilætlunin að haga þessu þannig. Mér finnst það bæði eðlilegra og virðulegra af Alþ. að ákveða ekki annað í l. en það, sem ætlazt er til, að farið verði eftir.