11.04.1947
Neðri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (315)

221. mál, bifreiðaskattur

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Hæstv. samgmrh. benti réttilega á, hvað háa upphæð ríkissjóður veitti til vegaframkvæmda og hvernig verður að leita tekna til að standa straum af þeim kostnaði. Ég vildi nú benda á, að það eru fleiri aðilar en ríkið, sem annast vegagerðir. Það eru þrír aðilar, ríki, sýslufélög og sveitarfélög, og ég vil benda á, að þáttur sveitarfélaga er á engan hátt smávægilegur. Sem dæmi má nefna. að Reykjavik ein hefur s.l. ár varið 7 milljónum króna til vegaviðhalds og vegagerðar, og ætla ég, að framlag annarra sveitarfélaga sé hlutfallslega svipað. Nú gætu þessir aðilar sagt eins og ríkið, að einhverja tekjustofna þurfi til að mæta þessum kostnaði, og efa ég ekki, að hæstv. samgmrh. er mér sammála um það. En hvernig er viðhorfið gagnvart sveitarfélögunum í þessu frv., sem hér liggur fyrir? Það er lagður þungur skattur á bifreiðar yfirleitt og því lýst yfir, að þeim skatti skuli ekki velt yfir á almenning. Ef sú verður raunin á, þá minnkar gjaldgeta bifreiðaeigenda og skattar þeirra til sveitarfélaganna réna um leið. Um leið og þessi skattur er lagður á og sagt að hann eigi að mæta kostnaði ríkisins við vegaviðhald og vegagerðir, er því gleymt, að sveitarfélögin leggja fram álíka háa upphæð í sama skyni. Ef farið er inn á þá leið að hækka bifreiðaskattinn, þá á að skattleggja eyðsluna og skattleggja þá, sem eiga bíla sér til gamans og hafa efni á því. Brtt. okkar hv. 2. þm. Reykv. miða að því að létta skattinum af þeim, sem lifa af bifreiðunum, og þær miða einnig að því að gera hlut sveitar- og bæjarfélaga betri. En ef byrðunum af hinum hækkaða skatti verður velt yfir á almenning, þá leiðir af því vaxandi dýrtíð og minnkandi velmegun almennings. Ég bendi á, að hv. Alþ. má gæta sín varðandi þetta skattafrv. og fleiri skattafrv., sem það kemur til með að fjalla um, að það sé ekki gengið svo hart að gjaldþoli manna af hálfu ríkisins, að ekkert sé eftir handa sveitarfélögunum, því að þau hafa vissulega margar skyldur að rækja. Ef peningarnir til vegaviðhalds eiga að koma frá notendum bílanna, þá á það eins við um ríkið og sveitarfélögin. Ég ætla, að gatnakerfi Reykjavíkur sé nú um 60 km og langmestur hluti þeirra bíla, sem hér á að skattleggja, slitur mest götum Reykjavíkur.

Þá vildi ég aðeins minnast á 5. liðinn í brtt. okkar hv. 2. þm. Reykv. Í l. frá 29. apríl 1946, 13. gr. er kveðið svo á, að í skólahverfum, þar sem börn geta ekki gengið til skólans, sé ríkinu heimilt að veita styrk til að kaupa bíl, sem flytji börnin til og frá skólanum. Styrkur þessi nemi allt að 3/4 kostnaðar, og er það í samræmi við styrkveitingar hins opinbera til byggingar heimavistarskóla, og er það eðlilegt, því að víða hagar svo til, að velja má milli þess að reisa heimavistarskóla og kaupa skólabíl. Ég geri ráð fyrir, að þessir skólabílar séu 3–4 tonn og geti þá tollurinn af þeim orðið um 2.000 krónur á ári, og er það ekki alllítill baggi fyrir fátæk sveitarfélög, en notkun skólabíla fer nú ört vaxandi. Legg ég því til, að þungagjaldinu verði létt af þessum bílum.

Ég get svo aðeins minnzt á strætisvagnana. Ég hef áður talað um, hversu gengið sé á gjaldstofna sveitarfélaganna og þeim gert erfitt að viðhalda vegunum, og í framhaldi af því vildi ég benda á, hve ósanngjarnt er að leggja stóra skatta á samgöngutæki bæjanna, sem eingöngu slíta vegum bæjanna sjálfra. Strætisvagnarnir eru mjög þung farartæki, líklega 4–5 tonn, og yrði þá þungagjaldið af þeim vel hálf önnur milljón króna, og sé ég ekkert réttlæti í því, að ríkið skattleggi þannig ökutæki bæjarfélags, sem slita eingöngu vegum, sem bærinn sjálfur byggir og viðheldur.

Brtt. á þskj. 620 miða að því að létta af óeðlilegum álögum. Þær eru réttlætismál gagnvart bifreiðastjórum, bændum, sveitarfélögum og fátækum skólahverfum.