22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (3152)

211. mál, tollskrá o.fl.

Sigfús Sigurhjartarson:

Ég hef leyft mér að bera fram nokkrar brtt. á þskj. 601. Þær eru að efni til frv., sem ég hef áður flutt, en þótti nú þessi leið eðlilegri að bera það fram sem brtt. við þetta frv. Hvort ég vil taka þær aftur til 3. umr., fer eftir efni brtt. fjhn., sem ekki er enn búið að útbýta. Um það get ég ekki sagt fyrr en ég hef heyrt efni þeirra till.