28.04.1947
Neðri deild: 118. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1835 í B-deild Alþingistíðinda. (3158)

211. mál, tollskrá o.fl.

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér enn á ný brtt. við 1. gr. frv. til l. um breyt. á l. nr. 62 30. des. 1939, um tollskrá o. fl. Er hér um að ræða í tollskránni nr. 8–9 í 72. kafla og nr. 37–45 í 73. kafla hennar, en undir þessa kafla heyra heimilisvélar.

Eins og hv. þm. vita, var það lagt til grundvallar minni upphaflegu till., að sami tollur skyldi vera á landbúnaðarvélum og heimilisvélum. Hv. þd. hefur nú fellt þessa till. mína, svo að ég hef nú talið heppilegra að breyta þessu nokkuð, þannig að hér er lagt til, að verðtollur verði 4% í stað 2% í upphaflegu till. minni. Það kom fram í umr. hjá hv. frsm. meiri hl. fjhn., þegar málið var hér síðast í d., að það væru ýmis samanburðaratriði í tollskránni, sem gerðu n. ókleift að fallast á mína till. Síðan hef ég athugað þetta nokkuð og get með engu móti fallizt á þær röksemdir, sem hv. meiri hl. n. hafði fram að færa. Í því sambandi vil ég fyrst taka það fram, að þegar verið er að ræða um tolla á heimilisvélum, gegnir alveg sérstöku máli. Svo er mál með vexti, að heimilishald allt er mjög að breytast, einkanlega í kaupstöðunum, en raunar einnig í sveitunum. Í kaupstöðunum er það svo, að þjónustustúlkur eða aðkeypt húshjálp má nú segja, að sé úr sögunni, og ég reikna ekki með því, að þeir tímar komi aftur, að húsmóðirin eigi þess kost að kaupa vinnuafl til heimilisaðstoðar í nokkrum verulegum mæli. Ég harma ekki þá breyt. eða þá þróun, sem hér er á orðin, og álít það sízt æskilegt, að þessi mál færu í sama horf og þau áður voru í. En þessi þróun þýðir það, að heimilisstörfin færast á hendur fjölskyldunnar og þá fyrst og fremst húsmóðurinnar. Það er og alkunn staðreynd, að þegar um fjölskyldu er að ræða, eru þetta allmikil störf, nema tæknin sé hagnýtt í þágu heimilisstarfanna. Ef svo er, er hægt með sæmilegu móti að anna þeim störfum, sem heimilið krefur, jafnvel þótt vinnukraftur sé ekki aðkeyptur, nema um því stærri heimili sé að ræða. Ég held því, að við eigum að gera eins konar byltingu á heimilisverkunum og innleiða tæknina á heimilin, eins og unnt er. Ef ríkisvaldið vildi gera sér grein fyrir þessari staðreynd, ber því að greiða fyrir innflutningi heimilisvéla eins og í þess valdi stendur.

Í þessu sambandi vil ég benda á það, að einmitt sama leiðin hefur verið farin hér áður, hvað snertir landbúnaðinn. Með landbúnaðinn gegndi hér alveg sama máli og með heimilishald, að svo stóð á, að það varð stöðugt minna um það, að bændur gætu keypt sér vinnuafl við sín störf og sízt með því verði, að framleiðsla þeirra þyldi það. Þá þótti rétt að hlúa að því, að véltæknin yrði tekin upp í þágu landbúnaðarstarfanna. Einn liðurinn í þeim ráðstöfunum, sem þá voru gerðar, var sá, að verðtollur og vörumagnstollur voru lækkaðir að miklum mun á landbúnaðartækjum, þannig að þessir tollar eru 2%. Mér finnst því, að bera megi þetta tvennt saman, tolla á landbúnaðartækjum og heimilistækjum, og þótt hv. meiri hl. fjhn. geti ekki fallizt á þetta, vil ég enn á ný gera tilraun í þessa átt með brtt. minni, þar sem lagt er til, að vörumagnstollur verði 2% og verðtollur 4% af heimilisvélum. Er þá komið nokkru nær því marki, sem að hefur verið stefnt, ef brtt. mín verður samþ., og vildi ég mega vænta þess, að hv. dm. geri sér vel grein fyrir þeim rökum, sem á bak við þessa till. standa.