28.04.1947
Neðri deild: 118. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (3159)

211. mál, tollskrá o.fl.

Hallgrímur Benediktsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins vekja athygli hv. dm. á brtt. meiri hl. fjhn. á þskj. 723. Ég sé, að frsm. meiri hl., hv. þm. V-Húnv. (SkG), er ekki staddur hér, en gert hafði verið ráð fyrir því, að hann minntist á þessa till., sem er í samræmi við aðrar þær till., sem komið hafa frá meiri hl., og það, sem fram hefur verið tekið af hv. frsm. hans. Þarf hún því ekki nánari skýringar við, en ég vil þó aðeins taka það fram til skýringar, að undir c-lið brtt., sem fjallar um nr. 3 í 66. kafla, þar sem rætt er um plötur, þar er átt við aluminiumplötur sem þakjárn.