11.04.1947
Neðri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (316)
221. mál, bifreiðaskattur
Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Þegar verið er að ræða um útgjaldaleiðir, þá eru undantekningarnar alltaf freistandi, og hafa hv. þm. sósíalista flutt hér nokkrar till. til undantekninga. Ég held nú, að þar sé heldur langt gengið, svo að segja má, að aðalreglan yrði að undantekningu, ef samþykktar yrðu. Ýmis sjónarmið þeirra eiga þó fullan rétt á sér og væri freistandi að taka tillit til þeirra, en það er erfitt að ræða þessi mál hér vegna tilhneigingar sumra hv. þm. til að gera manni upp bæði orð og hugsanir, eins og hv. 2. þm. Reykv. vildi gera, er hann taldi, að mér þætti eitthvað forkastanlegt, að bifreiðarstjórar græddu. Þetta er náttúrlega hreinasta fjarstæða. Um leigubifreiðarstjórana er það að segja, að bezt er, að tollurinn gangi sem almennast yfir, annars virðist atvinna þeirra hafa verið sæmileg, a.m.k. upplýsti hv. 2. þm. Reykv., að bílarnir séu keyptir á svörtum markaði fyrir 55–60 þús. kr. Það virðist því vera um sæmilega auðugan garð að gresja. Um þá till. að undanþiggja jeppabifreiðar, skrásettar utan bæjanna, skatti, þá finnst meiri hl. n. að minni hl. vilji ganga of langt. Það kom fram hjá hv. þm. V-Húnv., að undanþiggja bæri þær jeppabifreiðar, sem eingöngu væru notaðar til landbúnaðarstarfa, og er þetta mjög freistandi sjónarmið, ef hægt er að skera úr um notkun þeirra, svo að víst sé. En skrásetning bifreiðanna segir vitanlega ekki til um notkun þeirra. En nú hefur meiri hl. fjhn. komið sér saman um að flytja eftirfarandi skrifl. brtt.: „Aftan við 1. gr. bætist ný málsgr. svo látandi: Undanþegnar gjaldi samkv. c- og d-liðum eru skólabifreiðar. Á eftir 1. gr. komi ný málsgrein, er verður 2. gr., svo hljóðandi. og breytist greinatalan samkv. því: Við 2. gr. laganna bætist ný málsgr., svo látandi: Eigendur jeppabifreiða eiga rétt á endurgreiðslu samkv. c-lið1. gr., ef þeir sanna með vottorðum frá hlutaðeigandi skattanefndum, að bifreiðarnar hafi verið notaðar næstliðið ár að mestu eða öllu leyti við framleiðslu- og jarðyrkjustörf.“
Ég vil láta þess getið, að þessar brtt. hafa verið bornar undir fjmrh. og sumar bornar fram eftir ábendingum hans, t.d. brtt. um, að skólabifreiðar séu undanskildar, því að það hafði af vangá fallið niður. Þessar bifreiðar eru fáar og mundu þar af leiðandi ekki skipta neinu máli þær tekjur, sem af þeim yrðu. Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta, en legg hér með brtt. fram.