06.05.1947
Efri deild: 126. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1841 í B-deild Alþingistíðinda. (3184)

192. mál, fyrningarsjóður ríkisins

Frsm. (Pétur Magnússon) :

Ég þykist hafa fengið fullnægjandi upplýsingar um það, sem hv. þm. hreyfði aths. um við 1. umr. Hitt má vera rétt, að n, hafi ekki gert sér nægilega ljóst þriðja atriðið, leiguliðabótina. Ég skal síður en svo hafa á móti að afla frekari upplýsinga, ef hæstv. forseti vill fresta umr. Ég mun þá síðar í dag leita upplýsinga um, hvernig þeir, sem sömdu frv., hafa hugsað sér þetta atriði. Svo mætti taka málið aftur á dagskrá á morgun.