05.05.1947
Neðri deild: 121. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1856 í B-deild Alþingistíðinda. (3218)
158. mál, framfærslulög
Frsm. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Út af aths. hv. þm. V-Húnv. vil ég taka fram, að ég álít rétt að athuga það, hvort það er réttara eða fari betur að breyta þarna um orð í 1. málsgr. 57. gr., það má vera að það sé rétt. (HelgJ: Ég efast um, að það sé rétt.) En ég vona, að hv. þm. felli sig við það, að sú n., sem fær þetta mál til athugunar í hv. Ed., athugi þá þetta atriði.
Út af síðari aths., sem hv. þm. gerði, vil ég segja það, að það var ekki af neinni vangá, að þetta orðalag var haft, það er svona orðað í frv., eins og það var upphaflega samið, en það var gert nokkru fyrir áramót, og það var sent heilbr.- og félmn. þessarar d., að ég held, 13. eða 14. des. 1946. En það vannst ekki tími til þess að ganga frá frv. fyrir lok þess árs, og er þetta ákvæði miðað við það, að l. væru sett fyrir áramót. Þetta bráðabirgðaákvæði fjallar um það, að sveitarstjórnir skuli greiða þeim ellilauna- og örorkubótaþegum, er á árinu 1946 fengu ellistyrk og örorkubætur, einn tólfta hluta þeirrar heildarupphæðar, sem þeir fengu þá, að frádregnu sjúkrasamlagsgjaldi. Þar eð l. voru ekki samþ. 1946, gaf félmrn. tilskipun með bréfi til allra sveitarstjórna um það, að til þess væri ætlazt, að þær skyldu inna þær greiðslur af hendi, og munu flestar þeirra hafa gert það. Einhver undantekning mun þó vera frá því. Og hefur félmrn. óskað eftir því, að þetta bráðabirgðaákvæði stæði til staðfestingar á því bréfi, sem út var gefið í ársbyrjun 1947, til þess að þetta ráðuneytisbréf fengi eins konar löggildingu, þegar þessi l. eru afgr. frá þinginu. Það er því í samráði við ráðuneytið og Tryggingastofnun ríkisins, að þetta bráðabirgðaákvæði er látið standa þarna.