22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1858 í B-deild Alþingistíðinda. (3229)

158. mál, framfærslulög

Frsm. (Lárus Jóhannesson) :

Herra forseti. Frv. það, sem liggur fyrir til umr. nú, er þannig til komið, að í l. um almannatryggingar er gert ráð fyrir því, að þessi l. um framfærslu og fleiri l. yrðu samræmd tryggingal. Út af þessu skipaði þáv. félmrh. n. til þess að endurskoða l. og þau l. önnur, sem þyrftu samræmingar við. Lauk sú n. störfum þannig, að hún samdi þetta frv. og frv. til l. um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna. Málið hefur verið mjög vel undirbúið, og ekki hafa verið gerðar aðrar breyt. en þær, sem leiddi beint af setningu l. um almannatryggingar. Málið fór breytingalítið gegnum hv. Nd. Hér hefur málið verið hjá heilbr.- og félmn. og verið rætt á nokkrum fundum. Sumir nm. munu vilja gera nokkuð viðtækar breyt. á því. En þar sem kapp var lagt á, að málið kæmist í gegn á þessu þingi, en það hefði ekki tekizt, ef málið hefði farið aftur til hv. Nd., þá var n. sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. óbreytt, eins og það kom frá Nd. Ég vildi fyrir hönd n. óska þess, að málið yrði afgr. eins og heilbr.- og félmn. leggur til í nál.