16.05.1947
Neðri deild: 129. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1860 í B-deild Alþingistíðinda. (3245)
247. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. (Jóhann Hafstein) :
Herra forseti. Ég vildi aðeins gera grein fyrir því, að við 2. umr. var gert ráð fyrir því, að fjhn. athugaði frv. í samráði við sjútvn. í sambandi við frv. um fiskimálasjóð, og hefur orðið samkomulag innan n., og í samræmi við það flytur n. 2 brtt. á þskj. 845. Fyrri brtt. er um það, að gjaldið verði rýmkað þannig, að í stað orðanna „öðrum en síldarafurðum“, komi: öðrum en saltaðri síld —, svo að nú er greitt útflutningsgjald af öllum afurðum öðrum en saltsíld, og er þetta veruleg efling sjóðsins, auk þess sem honum er ætlað gjald úr ríkissjóði. Hin brtt. fjhn. er við 4. gr. b-lið, en þar segir, að til að greiða stofnkostnað byggingar til fiskirannsókna og fiskifræðirannsókna, sem reist verður á vegum Háskóla Íslands og á lóð hans, fari 1/8% fram til ársloka 1949, en eftir þann tíma fellur þessi hluti gjaldsins til fiskimálasjóðs, þá leggur n. til, að síðasti málsl. orðist svo: en eftir þann tíma fellur gjaldið niður, og lækkar þá útflutningsgjaldið samkv. 1. gr. sem þessu nemur. — Þetta eru þær breyt., sem gerðar voru til samræmingar þessara frv., og vænti ég, að málið fái að samþykktum þessum breyt. afgreiðslu frá deildinni.