22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1861 í B-deild Alþingistíðinda. (3252)
247. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Gísli Jónsson:
Ég vildi aðeins leyfa mér að leiðrétta það, sem hv. frsm. sagði, að fiskimálasjóður missti nokkuð við þetta, það er misskilningur. Hann hefur haft 1/2% og hann heldur því, og auk þess fær hann af öllum síldarafurðum nema saltsíld, sem ekki var áður. Gjaldið er því tekið af annarri stofnun, sem fékk það áður.