12.12.1946
Neðri deild: 36. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1871 í B-deild Alþingistíðinda. (3310)
102. mál, ríkisborgararéttur
Hermann Guðmundsson:
Herra forseti. Góðir þingmenn. N. hefur ekki getað orðið sammála um þetta mál. Meiri hl. vill ekki að svo stöddu veita ríkisborgararétt öðrum en þeim, sem fæddir eru á Íslandi eða hafa dvalið hér frá barnæsku. Minni hl., þ. e. a. s. ég, lítur svo á, að engin rök hnígi að því að taka ekki þá með, sem hér eru búnir að vera 10 ár eða meira og reynzt hafa góðir borgarar. Þeir menn eiga fullkomlega kröfu á að fá hér borgararéttindi. Ég vil benda á, að samkvæmt skoðun meiri hl. gæti það komið svo út, að menn, sem búnir eru að vera hér um 20 ár og hafa starfað á vegum ríkisins og eru raunverulega orðnir Íslendingar, fengju ekki ríkisborgararétt. Ég leyfi mér að benda á nokkra menn, sem ég tel, að eigi skilyrðislausa kröfu á að fá ríkisborgararétt. Ég vil benda á það, að maður, sem kom hingað 1909 og hefur dvalizt í Vestmannaeyjum, Siglufirði og í Reykjavík, hann á skilyrðislausan rétt á að verða hér ríkisborgari.
Meiri hl. hefur lagt mikla áherzlu á, að varlega verði að fara í að veita útlendingum ríkisborgararétt. Hér er ruglað saman mönnum, sem búnir eru að vera hér í mörg ár, og þeim, sem flutzt hafa hingað skipulagslaust eftir stríð. Ég veit vel, að sá innflutningur má ekki halda áfram í því formi sem verið hefur og þeir menn eiga engan rétt á að fá hér ríkisborgararétt. Ég hefði kosið að taka alla þá upp hér, sem rétt og verðleika hafa til ríkisborgararéttar hér, en hef aðeins tekið þá, sem ég veit deili á, en ég legg megináherzlu á það, að þeir, sem dvalið hafa hér 10 ár eða lengur og reynzt góðir borgarar, eigi rétt til að fá borgararétt.
Þeir, sem ég legg til, að veittur verði ríkisborgararéttur, eru: Robert Louis Eugen Abraham söngstjóri, sem hefur dvalið hér síðan 1935. Er hann alþekktur söngstjóri og ágætismaður.
Heinz Karl Friedländer vélstjóri, sem hefur dvalizt hér síðan 1935 og er mjög fær maður, sérstaklega á sviði véltækni. Kvæntur er hann íslenzkri konu.
Peter Sothar Goldstein námsmaður. Um hann er það að segja, að hann er fæddur 1927 og kom hingað 1935, 8 ára að aldri. Hann er því hvergi ríkisborgari. Tel ég því, að þann rétt eigi hann hvergi frekar að fá en á Íslandi, og ég vænti þess, að hv. Alþ. líti svo á.
Harry Otto August Herlufsen rakari kom hingað 1933 og starfaði sem rakari á Siglufirði og Ísafirði og hefur í alla staði reynzt hinn mætasti maður.
Albert Gerhard Ferdinand Klahn hljómsveitarstjóri. Kom hingað 1936. Um hann gildir sama og Robert Abraham, að hann er hinn mesti hljómlistarmaður og vilji flestra, sem framarlega standa í tónlist, að honum verði veitt hér ríkisborgararéttindi.
Aage Laurits Petersen fulltrúi. Á hann hefur þegar verið minnzt.
Kurt Gustav Sommenfeld tannlæknir á Siglufirði kom hingað 1935 og hefur reynzt hinn þarfasti maður.
Ég mun nú ekki hafa þessi orð lengri, en ég vil eindregið beina þeirri ósk til þessarar hv. d., að hún fallist á að veita þeim, sem dvalizt hafa hér lengur en 10 ár, ríkisborgararéttindi.