12.12.1946
Neðri deild: 36. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1873 í B-deild Alþingistíðinda. (3312)
102. mál, ríkisborgararéttur
Hermann Guðmundsson:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Skagf. gagnrýndi nál. minni hl., en ég vil benda honum á, að þar sem ég er einn í minni hl., þá er ekki nema von, að álitið sé nokkuð persónulegt. Ég vil tjá hv. 1. þm. Skagf., að ég er fylgjandi því að taka Lindemann og hinn danska mann inn í þetta frv., ef svo sýnist rétt eftir nánari athugun.