17.02.1947
Neðri deild: 75. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1877 í B-deild Alþingistíðinda. (3321)
102. mál, ríkisborgararéttur
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Á sínum tíma flutti ég hér brtt. á þskj. 214 um að veita ríkisborgararétt tilteknum manni. Ég fyrir mitt leyti get tekið undir það með hæstv. utanrrh., að það beri að viðhafa alla varfærni með veitingu ríkisborgararéttar nú á þessum tímum, eftir að styrjöldinni er lokið, og bezt mundi vera, að ef hægt væri að fylgja ákveðinni reglu og fara ekki út yfir hana. Nú skilst mér, að eftir að till. meiri hl. á sínum tíma komu fram, hafi ýmsar till. komið fram, einnig frá minni hl. og jafnvel einstökum þm., sem ganga út fyrir þær reglur, sem meiri hl. allshn. vill setja um þetta efni. Þegar ég sá, að svo var komið, flutti ég þessa till. á þskj. 214. Ég mun geta sætt mig við, ef fylgt verður ákveðinni reglu líkt og þeirri, sem hv. meiri hl. allshn. hefur lagt til, að það gangi þá jafnt yfir alla, sem lagt er til, að öðlist borgararétt. Ef hins vegar á að fara út fyrir þá reglu, þá tel ég, að sá maður, sem um ræðir í till. minni, ætti vissulega að fá að njóta þessa réttar. Hér er um að ræða mann, sem löngu fyrir stríð kom til Íslands af þeirri ástæðu, að hann gat ekki verið í Þýzkalandi, eftir að stjórn Hitlers komst að. Þessi maður, Ernst Wilhelm Beckmann, sem hefur staðfest ráð sitt hér á landi, er listfengur maður, kvæntur íslenzkri konu og á hér mörg börn. Hann hefur um margra ára skeið unnið hjá Ríkharði Jónssyni myndhöggvara, því að hann er myndskurðarmaður, og síðar hefur hann haft sérstaka myndskurðarstofu. Hann talar og ritar íslenzku og vill staðfestast algerlega hér á landi. Ég vil því mæla með því, að þessi brtt. verði samþ., ef á annað borð verður farið út fyrir þær reglur, sem meiri hl. allshn. fylgir.