22.05.1947
Neðri deild: 140. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (3366)

102. mál, ríkisborgararéttur

Steindór Steindórsson:

Ég þarf ekki að vera margorður, enda er ég nýgræðingur hér og veit ekki, hvað á undan er gengið í þessu máli. Ég hef oft fylgzt með því, þegar ríkisborgararéttur hefur verið veittur á undanförnum þingum, og mig hefur oft undrað á því, hversu Alþ. hefur verið örlátt að veita ríkisborgararétt, og mér sýnist það sama vera í því frv., sem hér liggur fyrir, sem komið er frá Ed. Ég veit ekki heldur gerla, hvaða reglum er fylgt hér á þingi í þessu sambandi, en ég hef einu sinni sjálfur bitið mig í þá skoðun og mun aldrei frá henni víkja, að ekki eigi að veita íslenzkan ríkisborgararétt öðrum en þeim, sem ríkið eða stofnanir þurfi að fá hingað til að gegna ákveðnum störfum, því að ég er í hjarta mínu fullkomlega á móti því að veita ríkisborgararétt öðrum en þeim, sem eru komnir af íslenzkum foreldrum. Ég sé, að á þessum lista er talsvert margt fólk, sem ekki heyrir undir það. Ég mun því greiða atkv. á móti frv., fyrst allir liðirnir verða bornir upp í einu lagi.