23.05.1947
Neðri deild: 141. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1888 í B-deild Alþingistíðinda. (3369)
102. mál, ríkisborgararéttur
Finnur Jónsson:
Allshn. hefur síðan málið var á dagskrá í gær athugað það nokkuð, sérstaklega út af þeirri aths., sem kom fram viðvíkjandi Róbert Jack, og hefur upplýstst, að hann heldur fast við sína fyrri umsókn og óskar eftir því að fá íslenzkan ríkisborgararétt.
Þetta frv. hefur tekið talsverðum breyt. í Ed., þannig að bætt hefur verið inn í frv., frá því að það fór héðan, allmörgum mönnum, og að nokkru leyti gengið í bága við þau skilyrði, sem þessi d. setti fyrir till. sínum um veitingu ríkisborgararéttar. Allshn. vill ekki leggja stein í götu þess, að þetta frv. nái fram að ganga, eins og það kemur frá Ed., og vill eftir atvikum mæla með því, þar sem hlut eiga að máli mjög margir íslenzkir menn eða menn, sem eru ýmist fæddir hér á landi eða af íslenzkum foreldrum erlendis. En ég vil fyrir mitt leyti gera um þetta mál þann fyrirvara, að ég tel, að mjög nauðsynlegt sé, að Alþ. komi sér niður á enn fastari reglur en áður hafa gilt um veitingu ríkisborgararéttar og þá með sérstöku tilliti til þess, að hér dvelja nú í landinu um 5 þús. erlendir ríkisborgarar, og gæti komið í ljós, að ekki væri æskilegt að láta 10 ára búsetu endilega ráða því, hvað af þessu fólki fengi íslenzkan ríkisborgararétt, heldur hitt, hversu æskilegir innflytjendur þetta væru til landsins. Þetta tel ég rétt að taka fram, um leið og ég skýri frá afstöðu allshn. til þess frv., sem hér liggur fyrir.