10.04.1947
Neðri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (337)

219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Ég vil gera hér stutta aths., þar eð hv. 2. þm. Reykv. (EOI) vék að Alþfl. í sambandi við þetta frv. og vildi halda því fram, að með því væri Alþfl. að marka stefnu sína í fjáröflunarleiðum. Mér skildist, að ekkert slíkt, sem þetta frv. kveður á um, gæti hans heilagi flokkur hugsað sér með alla sína alúðarumhyggju, eins og vel hefur heyrzt á ræðum hv. þm. Sósfl.

Nú vill hins vegar svo vel til, að þetta frv. er að verulegu leyti sniðið eftir till., sem 4 hagfræðingar báru fram á sínum tíma í 12 manna n. Einn þessara hagfræðinga er einn af trúnaðarmönnum Sósfl., frambjóðandi hans við síðustu kosningar og einn af merkisberum flokksins meðal yngri kynslóðarinnar. Hygg ég, að hv. 2. þm. Reykv. hafi haft mjög náið samstarf við hann og fylgzt vel með því, sem hann vildi leggja til málanna ásamt kollegum sínum. Í hagfræðingaálitinu á bls. 66 eru taldar upp fjórar höfuðráðstafanir, sem þeir leggja til, að gerðar verði til að koma á jafnvægi í greiðsluviðskiptum við útlönd. Fyrsta þessara ráðstafana telja þeir vera hækkun á innflutningstollum. Síðan eru þessar ráðstafanir nánar skýrðar og ekki sízt þessi fyrsti liður, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Nefndin telur, að heppilegasta ráðið til að koma á jafnvægi í greiðsluviðskiptum út á við sé það að hækka til mikilla muna tolla á innfluttum vörum.“ Síðan er talað um, að undanþiggja þurfi nokkrar vörur, m.a. þær, sem undanskildar eru í frv. því, sem hér liggur fyrir, og eftir þeirri upptalningu segir svo: „Æskilegt væri að undanskilja fleiri brýnar nauðsynjar til neyzlu, svo sem vissar vefnaðarvörur, en það er ekki hægt af tæknilegum ástæðum.“ — Síðar stendur: „Samhliða tollhækkuninni ætti að hækka til samræmis gjaldið af innlendum tollvörum, að svo miklu leyti sem sykur er notaður til framleiðslu þeirra.“ — Það liggur annað frv. hér fyrir frá ríkisstj. um hækkun á innlendum tollvörutegundum. — Enn segir í álitinu: „Einsætt er, að tollarnir yrðu að vera háir til þess að gagn yrði að. Nefndin gerir ekki ákveðnar tillögur í þessu efni, en hún hefur gert ráð fyrir því, að núgildandi tollar (bæði vörumagnstollur og verðtollur) á þeim vörum, sem yrðu ekki sérstaklega undanskildar, yrðu að minnsta kosti tvöfaldaðir til jafnaðar.“ — Enn segir á sömu bls.: „Auk þess þarf að afla ríkissjóði nýrra tekna, til þess að hann geti greitt nauðsynlegar verðuppbætur með útfluttum afurðum og haldið áfram að greiða niður verðlagið innanlands.“

Eins og hæstv. fjmrh. hefur skýrt frá, er þetta frv. flutt til þess að jafna þann greiðsluhalla, sem sýnilega var í vændum á fjárl. eftir afgreiðslu þeirra við 2. umr. og gert var ráð fyrir, að mundi nema um 30 millj. kr. Þá má og alltaf búast við því, að gjaldabálkurinn hækki við 3. umr., og ef till. hv. 2. þm. Reykv. og annarra flokksbræðra hans hefðu verið teknar til greina við 2. umr., hefði greiðsluhallinn orðið 20 millj. kr. hærri. Hefði þá þurft að afla fjár með auknum tekjum ríkissjóðs, lántökum eða öðru slíku, en þar sem þessar till. náðu ekki fram að ganga, var greiðsluhallinn áætlaður um 30 millj. kr.

Ég tel, að eins og nú er komið málum, sé óhjákvæmilegt að fara inn á þessar fjáröflunarleiðir, sem hér er lagt til, enda á þær bent af hagfræðingunum. Það hefur gengið svo til, að ríkisbúið hefur orðið æ dýrara í rekstri, og valda því meðfram ýmis lög, sem sett hafa verið og ég skal sízt lasta. Af þessum lögum má nefna launalögin, alþýðutryggingalögin og skólalöggjöfina. Þessi löggjöf hefur í för með sér mikil útgjöld fyrir ríkissjóðinn, og til þess að mæta þeim, þarf að afla nýrra tekna og fjár.

Það er gert ráð fyrir, að þessi frv. séu miðuð við árið 1947, og verður það þeirra, sem þá fara með völdin, að ákveða, hvort þau verða framlengd. En ég get ekki séð, að hægt sé að setja af stað neina slíka öldu gegn þessum málum, sem hv. 2. þm. Reykv. var að tala um, og ég vil minna á það, að fulltrúi Sósfl. í hagfræðinganefndinni, Jónaz Haralz, hefur í samráði við hv. 2. þm. Reykv. bent á þessa leið, sem ríkisstj. er nú að fara til bráðabirgða.