07.05.1947
Neðri deild: 123. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1889 í B-deild Alþingistíðinda. (3379)
159. mál, óskilgetin börn
Frsm. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Heilbr.og félmn. flytur brtt. við það frv., sem hér um ræðir, á þskj. 729. Frv. er, eins og kunnugt er, samið af stjórnskipaðri n., sem hefur haft þessi mál til athugunar, og er það samið með tilliti til nýju löggjafarinnar um almannatryggingar. Ég vil nú leyfa mér að gera nokkra grein fyrir þeim brtt., sem hér liggja fyrir.
Fyrsta brtt. er við 12, gr., og er hún gerð eftir ósk forráðamanna tryggingarstofnunarinnar, en þess efnis að lengja þann frest, sem tryggingastofnunin hefur til þess að tilkynna dvalarsveit móður eða framfærslusveit föður um þá greiðslu, sem hún hefur innt af hendi, úr 6 vikum í 3 mánuði.
Um 2. brtt. er það að segja, að n. leggur til, að hún verði felld niður, en í stað gr. leggur n. til, að bætt verði við frv. ákvæðum til bráðabirgða. Hin stjórnskipaða n. var í allmiklum vanda vegna þeirra barnsmæðra, sem kenna erlendum setuliðsmönnum börn sín. Allmargar þessara barnsmæðra hafa þegar hafið mál hjá sakadómaranum í Reykjavík, en ekti fengið neinn úrskurð. Hins vegar mun Reykjavíkurbær hafa veitt 60 barnsmæðrum meðlag sem lán í von um, að þessum málum mundi bráðlega ljúka. N. þótti nokkuð mikið að láta þessar 60 barnsmæður vinna eið að barnsfaðerni og leit svo á, að slík notkun á eiðnum væri óheppileg. Þess vegna leggur n. til, að þessi leið verði ekki farin, heldur verði látinn nægja úrskurður sakadómara eða annars, sem um þessi mál fjallar, ef hann telur sterkar líkur fyrir, að framburður barnsmóður sé réttur. Aðrar breyt. eru mjög smávægilegar og skýra sig sjálfar. Ég sé því ekki ástæðu til. að fjölyrða frekar um þetta.