22.05.1947
Efri deild: 141. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1893 í B-deild Alþingistíðinda. (3393)
159. mál, óskilgetin börn
Frsm. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti. Það er viðvíkjandi þessum brtt. Ég held að till. um að fella 17. gr. sé nú mjög vafasöm, því að það kemur ákaflega oft í ljós, að eftir að ung börn hafa dvalizt hjá fósturforeldrum nokkurn tíma, þá veldur það oft óeðlilegri röskun í lífi barnsins og fósturforeldranna að taka það burtu. Ég get því ekki mælt með þeirri brtt. Ég viðurkenni, að lífið er svo margbreytilegt, að ýmis tilvik geta valdið því, að óeðlilegt er, að foreldrar geti tekið barn sitt úr fóstri, enda er ekki komið í veg fyrir það, þó að 17. gr. verði lögfest. Hitt er fullvíst, að oft er mörgum illa við að taka ungbörn úr löngu fóstri, og því tel ég rétt, að þessi heimild verði í l. fyrir barnaverndarnefnd, ef foreldrar hafa ekki haft tök á að sinna uppeldi barns.
En það eru þó sérstaklega ákvæðin í 11. gr., sem ég vildi segja nokkur orð um. Ég var ekki á fundi allan tímann, er þetta mál var rætt í n., en ég þekki nokkuð inn á slík lagaákvæði, vegna þess að ég hef verið fulltrúi bæjarfógetans í Reykjavík og dómari hér um skeið og haft með mörg þau mál að gera, sem þessi löggjöf fjallar um, og ég þarf því minni tíma til að átta mig á þessari brtt. og málinu í heild en ella hefði verið. Ég hef ekki gert neinn fyrirvara um atkvgr., en ég held satt að segja, að hv. þm. Barð. hafi mjög mikið til síns máls í því atriði, að fella beri þessa gr. Og ástæðan er sú, að við getum sett okkur í þau spor, er þannig stendur á, að giftur maður á óskilgetið barn, áður en eða eftir að hann kvænist. Hann sér um meðlagsgreiðsluna, á meðan hann er á lífi, án þess að það komi beint við fjölskyldulífið, og því fylgir lítill sársauki, það fer eftir atvikum. Og því er það ef til vill vanhugsað í 11. gr. að ákveða, að er faðir fellur frá, sé það eitt af fyrstu verkunum, sem ekkjan þarf að standa í, að taka við kröfum vegna óskilgetins barns eiginmanns hennar. Þetta er atriði, sem ekki er hægt að komast hjá að taka til greina og hugleiða, enda er það rétt, sem hv. þm. Barð. tók fram, og það dæmi, sem hann tók, rétt valið. Það getur verið óþægilegt fyrir konur að þurfa að greiða 10 þús. kr. Og við vitum, að við höfum löggjöf, sem heimilar eftirlifandi maka að sitja í óskiptu búi, þannig að hann þarf ekki að svara út arfi, og getur verið, að það komi ákaflega óþægilega við hinn eftirlifandi maka, sem þarf að sjá um framfæri barna, að svara út verulegum fjárhæðum. Með því að þurfa að svara út þessari fjárhæð sérstaklega til meðlags með óskilgetnu barni þá er í raun og veru sá réttur, sem l. um það heimila, skertur. Ég held þess vegna, að þetta tvennt séu nokkuð veigamikil atriði og svo í þriðja lagi, að það er dálítið óeðlileg reikningsfærsla að þurfa að reikna allt meðlagið fyrir fram og svara því öllu út í einu og síðan, ef barnið fellur frá, að fara að gera kröfu um að fá það fé endurgreitt einhvern tíma síðar sem einhvers konar orlof eftir þetta óskilgetna barn. Þetta er allt saman held ég öðruvísi en mannlegast er að hafa það í þessu máli, því að eðlilegast er það, að ekkjan fái tækifæri til þess að gleyma því, sem skeð hefur, eftir lát mannsins — hún ætti helzt ekki að þurfa að verða fyrir óþægindum af þessari framfærslu.
Ég fékk ekki tækifæri til þess að athuga þetta gaumgæfilega, en ég held, að það væri mjög athugandi hvort ekki ætti að fella þessa gr. niður. Og þó að ég skrifaði undir þetta fyrirvaralaust, mun ég greiða atkv. með því, að hún verði felld niður, vegna þess að ég tel það eðlilegast, og ég tel fyrir mitt leyti mestu varða að hafa það, sem ég tel réttast vera í þessu máli.