13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (3409)
8. mál, fiskimálasjóður
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég geri það ekki að kappsmáli að fresta þessari umr. En mér finnst eðlilegra og meira til öryggis um, að vel sé gengið frá málinu, að þær brtt., sem fram kunna að koma, komi fram við 2. umr. Ég hef ekki óskað þess áður, að þetta mál væri dregið, en mér finnst það ekki gera svo mikið til, þó að það yrði dregið nú um einn einasta dag að afgreiða það. Margir munu hafa búizt við því, að þetta yrði ekki tekið nú til umr.
Ég hef verið fjarverandi og var ekki við, þegar endanlega var gengið frá málinu, og vildi ég þess vegna mjög gjarnan fá tækifæri til þess að athuga það nánar.