10.04.1947
Neðri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (342)

219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég vildi mælast undan því að tala í d. svo fáskipaðri. og allir hæstv. ráðh. nema einn fjarstaddir. Þar sem ég mundi snúa máli mínu til hæstv. fjmrh. þá óska ég, að ræðutíma mínum verði frestað, þar til hæstv. ráðh. heiðrar d. með nærveru sinni. (Forseti: Ósk hv. þm. verður tekin til greina og dokað við um hríð, ef á þarf að halda, og reynt að ná sambandi við hæstv. fjmrh.) Það er aðeins stutt aths. sem ég vildi gera, einkanlega við ræðu hæstv. fjmrh.

Í frumræðu sinni sagði hæstv. ráðh., að með frv. þessu væri verið að framkvæma þýðingarmikið atriði í áliti hagfræðingan., þar sem hún legði til fyrst og fremst, að tollar yrðu hækkaðir mjög verulega. Ef ókunnugur maður hefði hlýtt á ræðu hæstv. fjmrh., þá hefði hann varla getað skilið hann öðruvísi en svo, að við hefðum fyrst og fremst bent á það sem úrræði, að tollar væru hækkaðir verulega. Hér er mjög málum blandað og hallað réttu máli, svo að ég sé mér ekki annað fært en að gera það fyrir n. hönd að leiðrétta þessi ummæli.

Álit hagfræðingan. greinist í tvo meginþætti, annars vegar að rannsaka ástandið á tilteknu sviði fjármálanna og atvinnumála, sérstaklega gjaldeyrismálin og fjárfestingarmálin annars vegar, en hins vegar till. til úrbóta á þessum tveim sviðum.

Þær till., sem snerta gjaldeyris- og fjárfestingarmálin, eru margar, og það er skýrt tekið fram á fleiri stöðum en einum, að þessar till. verði að skoða í heild, en ekki megi lita á hverja einstaka nema í sambandi við aðrar. Þetta er skýrt tekið fram í formála álitsins, sem flestir hv. þdm. munu hafa lesið, þar sem álitinu mun hafa verið útbýtt í d. Ég vil með leyfi hæstv. forseta lesa viðkomandi setningu úr formála álitsins. Hún hljóðar svo:

„Sérstaka áherzlu verður að leggja á það, að skoða verður tillögurnar sem eina heild, þ.e.a.s., líta verður á hvern einstakan lið tillagnanna í sambandi við alla aðra liði þeirra. T.d. má geta þess, að þær tillagnanna, sem leggja mundu einhverjar byrðar á hinar efnaminni stéttir, verður að skoða algerlega í ljósi þeirra tillagna annarra, sem gera ráð fyrir því, að þungar byrðar verði að leggja á herðar þeirra, sem breiðust hafa bökin fjárhagslega.“

Þetta er svo skýrt af hálfu n., að óþarft er að árétta það. Þær till., sem við gerum ráð fyrir, að grípa yrði til, ef bæta ætti úr hinu mikla jafnvægisleysi. sem nú er í gjaldeyrismálunum, eru margar og margvíslegar. Við töldum, að ekki yrði hjá því komizt að leggja talsverðar byrðar á allar stéttir, og við gerðum okkur fulla grein fyrir, að nokkuð af þeim mundi koma við hag launastéttanna. En við gerðum líka till., sem mjög verulega mundu skerða hag eignastéttanna, ef framkvæmdar yrðu. Um tollahækkanirnar er það skýrt tekið fram, að n. mælir því aðeins með þeim, að um leið verði framkvæmdar aðrar till., sem snerta meira hag efnastéttanna í landinu. Það eru einkum þrjár till. okkar, sem segja má, að snerti hag launastéttanna. Við gerum ráð fyrir, að allsherjarsamningar verði um óbreytt grunnkaup, vísitalan ekki hærri en 300 og afurðaverð fest eins og það er nú. Við gerum ráð fyrir verulegri tollahækkun, ekki fyrst og fremst til að afla ríkissjóði tekna, heldur til að draga úr eftirspurninni eftir gjaldeyri. Þessar þrennar ráðstafanir má gera ráð fyrir, að komi verulega við pyngju launastéttanna, en eins og ég tók fram, verður að líta í sambandi við þær á till., sem fyrst og fremst snerta efnameiri stéttirnar. Þá eru einnig þarna fleiri till. nefndar: allsherjarstjórn á fjárfestingu, eignakönnun, sérstakur stighækkandi skattur á skattsvik, sérstakur skattur á alla eign. sem fer upp úr 70 þús. kr., skyldulán á allar eignir umfram 20 þús. kr. og stighækkandi skatt á verðhækkun fasteigna. Allt eru þetta aðgerðir, sem fyrst og fremst snerta hag efnameiri stétta þjóðfélagsins, og við teljum hinar ráðstafanirnar því aðeins réttlætismál, að slíkar ráðstafanir séu jafnframt gerðar. M.ö.o., á till. verður að líta sem heild, og ef viss atriði eru framkvæmd, en önnur ekki, þá er ekki hægt að gera n. ábyrga fyrir því eða telja, að hún sem heild standi þar á bak við. Þetta vildi ég taka fram f.h. n. allrar. Ég tel ósanngjarnt, ef n. sem heild er gerð ábyrg fyrir vissum hlutum till., þegar skýrt er tekið fram, að hún telji nauðsynlegt að líta á till. allar sem heild. Annað mál er það, hvort það sé meining hæstv. ríkisstj. að framkvæma svo mikinn hluta af till. okkar, að n. sem heild geti ekki haft við það að athuga, að tollhækkanirnar verði geróar, en um það skal ég ekki fjölyrða að sinnt. Hæstv. stj. hefur lagt frv. fram um ýmsar ráðstafanir, sem gera ráð fyrir að leggja byrðar fyrst og fremst á hinar efnaminni stéttir. Hún ætlar sér sérstaklega að stjórna fjárfestingunni, og það er von á frv. um eignakönnun samkv. yfirlýsingu hæstv. fjmrh., og er allt hið bezta um það að segja. Hins vegar er of snemmt að kveða upp dóm um það, hvort hæstv. ríkisstj. hyggst að framkvæma svo mikið af till. okkar, að hægt sé að segja, að farið sé eftir þeim till.. sem við höfum gert. Það er m.ö.o. of snemmt að dæma um það, hvort hægt sé að segja, að þetta frv. sé liður í að framkvæma þær till., sem við í n. töldum æskilegar og réttmætar. Ef svo er, að svo mikið kemur fram í frumvarpsformi frá hæstv. ríkisstj., að hægt er að líta svo á, að verið sé að framkvæma till. n., þá geri ég ráð fyrir, að enginn okkar í n., ekki heldur fulltrúi Sósfl., geti haft nokkuð við tollhækkanirnar að athuga án þess að ganga frá sinni fyrri skoðun, en sem sagt. um þetta er enn of snemmt að segja, því að mikið af þeim stjfrv., sem væntanlega er von á, eru enn ókomin fram, og ég held, að allar deilur á þessu stigi málsins um það séu ekki tímabærar.

Þetta vil ég eingöngu segja viðvíkjandi hagfræðinganefndarálitinu, sem svo mjög hefur verið blandað inn í þessar umr.. og leiðrétta að þessu leyti ummæli hæstv. fjmrh.

Annars var það annað atriði í ræðu hæstv. fjmrh., sem kom mér mjög á óvart og ég get ekki látið hjá líða að minnast á, og mér þykir mjög miður, að hæstv. ráðh. skuli enn hafa horfið úr d., en um það er ekki að sakast. Hæstv. ráðh. sagði, þegar hann var að svara hv. 6. þm. Reykv., sem hafði rætt nokkuð um mál S. Árnason & Co., þó að það snerti ekki þetta mál, þá svaraði hæstv. ráðh. því allrækilega og viðhafði við það tækifæri ummæli, sem mér komu mjög á óvart, og ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum, þegar ég heyrði þessi ummæli af munni hæstv. ráðh. Eins og hv. 6. þm. Reykv. gat um, hefur þetta fyrirtæki fyrir nokkru verið kært til sakadómara fyrir að hafa haldið eftir umboðslaunum og látið leggja á sérstakan banka í Bretlandi. Í svari sínu viðhafði hæstv. ráðh. þessi ummæli, sem ég skrifaði orðrétt upp eftir honum: „Það er engin nýlunda. að fyrirtæki leggi svona umboðslaun erlendis á banka til varðveizlu, og það hefur verið liðið. þegar réttir menn hafa átt í hlut.“ Mig rak í rogastanz að heyra þessi ummæli úr ráðherrastóli. Hæstv. ráðh. er kunnugt, að það hefur verið brot á landslögum um fjöldamörg ár, eða m.ö.o., það hefur verið skylt lögum samkvæmt, að allir, sem eignast erlendan gjaldeyri. skili honum til bankanna. það hefur enginn heimild til að eiga erlendan gjaldeyri. Það er skýrt tekið fram í l., að skylt sé að skila umboðslaunum, sem íslenzk fyrirtæki fá. Þetta veit hæstv. ráðh. eða ætti að vita. Þess vegna þótti mér það stórfurðulegt, að hæstv. ráðh. skyldi viðhafa þau ummæli, að það væri engin nýlunda, að umboðslaun væru lögð inn á erlenda banka til varðveizlu og þetta væri liðið, þegar réttir aðilar ættu í hlut. Ég vil beina til hæstv. ráðh. þeirri fyrirspurn, þó að hann sé fjarverandi: Er honum kunnugt um einhver önnur dæmi en þetta, að fyrirtæki hafi lagt gjaldeyri inn á banka erlendis, og hvað meinar hæstv. ráðh. þegar hann segir, að það hafi verið liðið, þegar réttir menn hafi átt í hlut? Hverjir eru þessir réttu menn að dómi hæstv. ráðh.? Þeir eru fleiri en ég, sem óska að fá þessu svarað. Ef hæstv. ráðh. er kunnugt um, að lögbrot hafi átt sér stað gegn jafnþýðingarmiklum l., þá er það ekki fyrst og fremst skylda hans að upplýsa það hér á þingi, heldur gera viðeigandi ráðstafanir gagnvart dómstólunum og gefa þeim upplýsingar. Það kom mér á óvart að heyra frá þessu skýrt, en ég spyr eftir þessu, af því að ég átti sæti í viðskiptaráði. þegar það fjallaði um verðlagsmálin. Mér kom á óvart að heyra, og það meira að segja af munni hæstv. fjmrh. landsins, að það sé á allra vitorði, að brot á gjaldeyrisl. hafi verið liðin, þegar réttir menn hafi átt í hlut. Það er óhjákvæmilegt að vekja sérstaka athygli á þessu, og verður það kannske til þess, að aðrar ráðstafanir verða gerðar til að sannprófa, hvort þessi ummæli hafi við sérstök rök að styðjast, eða hvort þau séu sögð út í loftið.