10.04.1947
Neðri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (343)
219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Mér kemur ekki á óvart, þó að ég verði fyrir persónulegum árásum í sambandi við þessar umr., því að ég hef orðið þess var og hef átt von á því úr þeirri átt, sem siðast var talað, að um þau fyrirtæki. sem ég hef verið riðinn við, væri ekki farið neinum móðurhöndum.
Ég ætla, að það sé nokkuð almenn skoðun, að viðskiptaráð, en þessi hv. þm. mun ekki vera meðlimur í því, hafi viðhaft nokkuð breytilegar aðferðir gagnvart verzlunarfyrirtækjum varðandi meðferð þeirra á því fé, sem þeim hefur áskotnazt sem umboðslaun. Hv. þm. tók sérstaklega mjög óstinnt upp, að ég hefði talað um, að það væri kannske eitthvað öðruvísi, ef réttir menn ættu í hlut. En ég held, að það sé nokkuð ákveðinn almannarómur, að framkoma viðskiptaráðs og kannske líka verðlagsráðs hafi í ýmsum atriðum verið sínu sinni hvern veg, eftir því hvernig þeim bauð við að horfa og hverjir í hlut áttu. Hann getur svo rakið þessi mál, hvernig sem honum lízt, en ég geri ráð fyrir, að hann eigi erfitt með að fá almenningsálitið með sér um það, að fullkomin óhlutdrægni hafi ríkt í ýmsum ráðstöfunum, sem gengu út frá þessari stofnun.