10.04.1947
Neðri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (344)
219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það eru nokkur orð í tilefni af ræðu hv. 6. þm. Reykv. Hann minntist á það, að mér þætti furðuleg gagnrýnin frá talsmönnum Sósfl. um þá tekjuöflun, sem hér er til umr., en hún er aðallega fólgin í að benda á, að hægt hefði verið að fá miklu meiri fjármuni en þá, sem hér ætti að draga saman, eftir öðrum leiðum en hér er stungið upp á. Mér er það ljóst, að hægt hefði verið að fara aðrar leiðir og að sumu leyti, sem mér hefðu verið geðfelldari en þær, sem hér er stungið upp á, en þetta er samningsmál. Sósfl. hefur nú haft valdaaðstöðu í tvö ár, sem hafa verið mestu góðæri, en samt hefur ekki bólað á neinum till. hjá honum í þá átt, sem hann telur rétta leið. Út af þessu sagði hv. 6. þm. Reykv., að hann gæti skilið, að menn yrðu að láta nokkuð af skoðun sinni. eins og hann orðaði það, í samningum, og sama væri til að dreifa nú hvað snerti ýmsa flokka og menn, sem að þessari stj. standa. En hitt bæri að athuga, að á þeim árum, sem þeir stjórnuðu, þá hefði verið hægt að leyfa sér að láta undan falla að skattleggja stórgróðaeyðslu. Þetta eru furðuleg rök. Það er furðulegt, að jafngreindur maður og hv. 8. þm. Reykv. skuli leyfa sér að bjóða mönnum upp á svona röksemdir eins og þá að skattleggja nú þá eyðslu, sem búið er að framkvæma undanfarin tvö ár. Hvernig ætlar hann sér að skattleggja hana? Hvernig ætlar hann sér að skattleggja þá fjármuni, sem menn undanfarin tvö ár eru búnir að eyða vegna þeirrar fjármálastefnu, sem hann og flokkur hans hafa haft og studd var af Sjálfstfl. og Alþfl.? Ætli það sé ekki nokkuð seint að iðrast eftir dauðann og hugsa sér, að nú væri hægt að skattleggja þessa eyðslu? Eins er með gróðann á þessum árum. Ætli það sé ekki óþægilegt að skattleggja gróða frá þessum árum, sem að verulegu leyti er búið að eyða? Það er kannske gott að segja nú, að það hafi ekki verið ástæða til að skattleggja þennan gróða þá. Og hvernig var afkoma ríkissjóðs eftir stjórnartíð þessara hv. þm.? Hafði ríkissjóður þá alls ekki þörf fyrir þetta fé, þannig að þess vegna hafi þá verið óhætt að láta undir höfuð leggjast að skattleggja gróðann? Nei, því er ekki til að dreifa, því að eftir þetta góðæristímabil í peningamálunum hefur ríkissjóður stórkostlegar skuldir að bera, í stað þess að hann hefði átt að eiga stórkostlega sjóði, ef á þessum málum hefði verið haldið með ráðdeild. Yfirdráttarskuld ríkissjóðs í Landsbankanum nemur milljónatugum kr. um áramót s.l. Það er því ekki af því, að ekki hafi verið þörf að gera þetta áður, sem hv. sósíalistar uppgötva nú, þegar þeir eru komnir úr stjórnaraðstöðu, að það þurfi að skattleggja verzlunina, heldur er hitt það sanna. að þeir hafa ekki munað eftir að byrja á því.
Þá sagði hv. 6. þm. Reykv., að það væri sönnu næst, að það hefði aldrei staðið á þeim sósíalistum, þegar hefði átt að berjast gegn verðþenslu á réttan hátt, sem mér skildist vera að taka gróða heildsalanna. Nú stóðu sósíalistar í miklum samningaumleitunum við aðra flokka í vetur, m.a. Sjálfstfl. og Alþfl., um það að mynda ráðuneyti undir forustu form. Sjálfstfl. Og ég hef fyrir satt og hygg, að því hafi ekki verið mótmælt, að sú stjórnarmyndun hafi ekki strandað á því, að Sósfl. hafi gert það að algeru skilyrði fyrir stjórnarsamvinnunni, að verzlunin yrði þjóðnýtt, þannig að þeir gætu ekki tekið þátt í stjórn, nema verzlunin væri þjóðnýtt og hún yrði tekin þeim tökum, sem hv. þm. þess flokks nú tala mikið um. Stjórnarmyndunin strandaði vitanlega á allt öðrum efnum en því. Það er því þýðingarlaust nú að reyna að láta líta svo út, að þeir hafi verið ófáanlegir til að taka þátt í ríkisstj. öðruvísi, en með því móti, að verzlunin yrði þjóónýtt og hagnaðurinn af henni notaður til dýrtíðarráðstafana. Þess vegna er þetta í raun og veru marklaust hjal af þeirra hendi. Reynslan sýnir, að Sósfl. hefur verið allra flokka tækifærissinnaðastur í afstöðu sinni til einstakra mála. Það er aðferð, sem þessir menn hafa, að rökræða um málin fram og aftur. En á undanförnum missirum hefur Sósfl. ekki lagt fram neinar till. um það að skattleggja stórgróðann umfram það, sem gert hefur verið, né till. um að þjóðnýta verzlunina. Og það er fyrst nú, þegar þessir menn eru utan við það að styðja stjórnina, að þeir muna eftir þessum efnum.
Annars er rétt að taka það fram, sem hefur verið undirstrikað hér áður, að þær till., sem hér liggja fyrir, eru ekki nema einn liður í þeim till. sem koma munu frá ríkisstj. varðandi skattamál og fjárhagsmál.
Ég stóð aðeins upp til þess að gera þessa stuttu aths. út af því, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, en skal annars ekki lengja umr. umfram það.