12.05.1947
Neðri deild: 126. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1906 í B-deild Alþingistíðinda. (3446)

120. mál, skattgreiðsla Eimskipafélags Íslands

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. 3. þm. Reykv. hefur nú gefið margar upplýsingar varðandi Eimskipafélagið fyrr og síðar, og er honum vitanlega mjög kunnugt um það, þar sem hann hefur lengi átt sæti í stjórn félagsins. Mér heyrist á hv. þm., að hann vilji ekki á það fallast að svo stöddu, að skip samvinnufélaganna njóti sömu kjara og skip Eimskipafélagsins, og talaði hann mikið um þær kvaðir, sem hvíldu á Eimskipafélaginu. Það er að sjálfsögðu rétt, að félagið hefur ýmsar kvaðir, en ég hef þó ekki orðið var víð, að félagið hafi tekið upp áætlunarferðir til hinna smærri hafna. Á margar hafnirnar koma skipin mjög sjaldan, og vörur, sem þangað eiga að fara, liggja tímunum saman í pakkhúsinu í Reykjavík og bíða flutnings. Hv. þm. sagði, að Samband ísl. samvinnufélaga hefði aðeins þetta eina, stóra skip. Ég vil benda á það, að t. d. eitt af kaupfélögunum, Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri, á a. m. k. eitt flutningaskip, sem sömu reglur ættu að gilda um og um skip sambandsins eiga að gilda eftir minni till. Það liggur í hlutarins eðli, að meðan sambandið á svo fá skip, getur það ekki haldið uppi siglingum á borð við Eimskipafélagið, en þetta breytir því ekki, að það er í alla staði eðlilegt, að sömu reglur gildi um skattgreiðslu þessara fyrirtækja. Í báðum þessum tilfellum er um alþjóðarfélagsskap að ræða, því að eins og hv. 3. þm. Reykv. er kunnugt, starfa kaupfélög svo að segja á hverri höfn, og er því þar ekki síður um alþjóðarfélagsskap að ræða en Eimskipafélagið. Það virðast því öll rök hníga að því, að eðlilegt sé, að útgerð þessara félagssamtaka njóti sömu kjara og Eimskipafélagið. Þá var hv. þm. að tala um það, að heppilegra væri, að ég tæki till. mína aftur til 3. umr. Út af fyrir sig get ég ekki séð, að það geti haft mikla þýðingu, nema svo færi, að einhverjar líkur væru til þess, að hv. þm. vildu frekar á það sjónarmið fallast, sem fram kemur í till., ef málið fengi athugun í n., sem við eigum sæti í. — Hv. þm. sagði, að þetta mál hefði oft verið tekið af dagskrá. Ég held, að það hafi ekki verið gert eftir minni beiðni, og efast um, að það flýti nokkuð fyrir málinu, þótt till. mín verði látin bíða til 3. umr., því að eins og nú er fáskipað í d., finnst mér vafamál, að hægt verði að koma málinu áleiðis til 3. umr. Hvort svo verður eða ekki, geti það komið til athugunar, að till. væri tekin aftur til 3. umr., ef líkur væru til, að það hefði einhverja þýðingu fyrir afgreiðslu málsins.