10.04.1947
Neðri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (347)

219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vildi segja nokkur orð út af því, hvernig hv. 3. þm. Reykv. sagði, að við ætluðum að drepa atvinnuvegina. En er það að drepa atvinnuvegina að styðja sérstaklega sjávarútveginn og búa að þeirri atvinnugrein með svo hagkvæmum lánakjörum, að þeir, sem fá nýja báta, fá 2/3–3/4 hluta af verðinu að láni? En þó að hv. 3. þm. Reykv. segði, að við vildum drepa atvinnuvegina, svo sem sjávarútveg og iðnað, þá hafa þessar atvinnugreinar blómgazt, enda þótt verzlunarstéttin hafi legið á þessum greinum sem á öðrum eins og mara, og má með tölum sýna fram á þetta, því að þegar sjávarútvegurinn tapaði 2 millj. kr., þá græddi verzlunarstéttin 5 millj. Það er auðvitað gott að efla framleiðslu atvinnuveganna, en það sem vantar, er það, að fjármagnið og vinnuaflið streymi þangað, og verður því að beina því inn á þá braut. Þess vegna verður núverandi ástand að hætta, ef sjávarútvegurinn á að geta lifað. Hér hafa talað þrír ráðh., og var hæstv. forsrh. heldur stuttorður. Hann reyndi að verja, að 35 millj. kr. álag væri lagt á alþýðu manna, með því að „citera“ í hagfræðinganefndina. En hagfræðingarnir segja sjálfir í sínu áliti, með leyfi hæstv. forseta: „Að endingu skal það tekið fram til þess að fyrirbyggja misskilning, að í álitinu koma fram skoðanir okkar sem einstaklinga, og bera stjórnmálaflokkarnir, sem tilnefndu okkur í nefndina, enga ábyrgð á því, sem þar er látið í ljós.“ Það er hart af hæstv. forsrh. að lesa upp úr þessu áliti og halda svo ræðu og segja. að einn hagfræðingur í n. túlki skoðun Sósfl. En það er einmitt skýrt tekið fram, að hann hefur starfað án ábyrgðar flokksins, og á það einnig við um hina hagfræðingana og hina flokkana. Og þar sem hagfræðingarnir hafa búizt við misnotkun á áliti sínu, hefur þeim þótt rétt að undirstrika þetta fyrir fram. Þegar svo hæstv. forsrh. er spurður um eignakönnunina, þá steinþegir hann og treystir sér ekki til að gefa neinar upplýsingar. Þetta er vægast sagt óheiðarleg málafærsla. Hæstv. forsrh. misnotar freklega álit þeirra manna, sem vinna vísindalega fyrir ríkið að lausn vandamálanna. Og svo að ég minnist á hagfræðingaálitið, þá segir í því á bls. 68 um tollahækkun: „Framkvæmd tollahækkunarinnar mundi að ýmsu leyti verða vandkvæðum bundin. Er gert ráð fyrir því, að tollahækkunin og eignakönnunin yrðu ákveðnar samtímis og komi síðarnefnda ráðstöfunin til framkvæmda strax eftir samþykkt laganna.“ Þetta varast hæstv. forsrh. að lesa um leið og hann les hinum megin á bls., til þess að falsa álitið.

Þá sagði hann, að við sósíalistar hefðum komið fram með till., sem mundu hækka fjárl. um 20 millj. kr. En ég vil geta þess, að stærstu till. voru til að fullnægja l., sem búið er að samþykkja um byggingu sjúkrahúsa, skóla og íbúðarhúsa. Og ég skal standa við það, að svo framarlega sem þessar till. verða samþ., þá skuli lagðir fram liðir til tekjuöflunar á móti.

Þá var það hæstv. fjmrh. Hann sagði m.a., að slæmt ástand væri í löndunum í kringum okkur og þyrftum við ekki að kvarta. Ég vil benda þessum hæstv. ráðh. á, að það þýðir ekki fyrir auðmenn að hræða alþýðu hér með því, að alþýða úti um heim lifi við lág lífskjör, meðan ástandið er þannig hér, að öllum ætti að geta liðið vel. Við sósíalistar höfum lagt til við Sjálfstfl. að taka upp skömmtun á vörum og. minna fólk á að lífa sparlega, en daufheyrzt var við þessu og ætti því hæstv. fjmrh. að tala við fyrirrennara sinn.

Þá minntist hæstv. ráðh. á, að raunhæfar till. vantaði, en ef gróði verzlunarstéttarinnar heldur áfram að aukast, munu margar fjölskyldur verða atvinnulausar. Nú hefur hæstv. ráðh. og ég starfað saman að sjávarútvegsmálum í samráði við fyrrv. ríkisstj., og við vitum að það er hægt að skapa þannig ástand, að þörf sé á öllum vinnukrafti Íslendinga. Við sýnum fram á, að hægt er að bæta 2.000 manns á flotann, og mætti taka þann fjölda úr öðrum greinum. t.d. úr verzlunarstéttinni, og yrði þá vinna þeirra til meiri hagnaðar fyrir þjóðina. Það er því augljóst mál, að hér þarf ekki að vera atvinnuleysi. Hæstv. ráðh. veit, að hér ríkir ekkert atvinnufrelsi og allra sízt hjá verzlunarstéttinni, því að þar er nýjum mönnum bægt frá og þeim synjað um leyfi.

Þá talaði hann um það, að skattar væru svo háir, að varla væri hægt að hækka þá. En vitað er, að eins og nú háttar, þá svíkur fjöldi fyrirtækja til skatts og lifa margir lögfræðingar á því að falsa skattskýrslur, og er þá ekki önnur leið en að taka verzlunina sjálfa, enda er hitt miður heppilegt fyrir siðferði manna. Hér ríkir ekkert verzlunarfrelsi og getur ríkið tekið hvaða grein sem er í sínar hendur. Okkur þykir rétt, að bæir reki hafnir og rafstöðvar og ríkið Póst og síma. Í Bandaríkjunum er þetta allt rekið af einkafyrirtækjum. Einnig þykir okkur rétt, að ríkið hafi einkasölu með tóbak og brennivin, en það er ekkert sjálfsagðara, en að ríkið hefði t.d. bílasölu. Við getum jafnt tekið gróðann af bílaeinkasölu, án þess að brjóta meira í bága við verzlunarstéttina, en með öðrum einkasölum, en samt yrði vafalaust kvartað, ef t.d. eitt firma ætti höfnina hér. Auðvitað væri eðlilegt, að ríkið tæki öll hin stærri athafnasvið að sér, og er þess ekki sízt þörf þegar skattafyrirkomulagið er eins og það er, því að við náum ekki gróðanum með sköttum. Það hefur oft verið minnzt á skattamálin, en þó aldrei mátt snerta við þeim.

Þá sagði hæstv. fjmrh., að við vildum eyða öllum gróða, en hitt má frekar segja, að við vildum styðja að því, að einhver gróði yrði hjá sjávarútveginum, en hins vegar höfum við barizt á móti gróða þar, sem alltaf er gróði og einokunaraðstaða. Allir vita, að gjaldeyris- og innflutningsleyfin ganga kaupum og sölum og að heildsalastéttin hefur selt landið á leigu. Ég verð að hryggja hæstv. fjmrh. með því, að það bezta fyrir þjóðfélagið væri, ef enginn einstakur aðili græddi. En viðvíkjandi því, að með þessu væri verið að eyðileggja einstaklingsframtakið, það þarf ekki nú í verzlunarmálunum, því að þar er ekkert svigrúm, heldur einokunaraðstaða. Það að gerast foringi er hægt á sviði sjávarútvegs og iðnaðar, en á öllu slíku er verzlunargróðinn eins og farg. Það er því tækifæri til að sýna einstaklingsframtakið í þeim atvinnugreinum, en ekki í verzluninni.

Þá sagði hæstv. fjmrh., að við kipptum okkur upp við það, ef hróflað væri hið minnsta við verkamönnum, en nú þyrfti allra stétta við til að leysa vandann. En hvað kemur nú á verzlunarstéttina?

Í 6. gr. er sagt, að ekki skuli koma sérstök álagning á þessa tollhækkun, en við umr. í Ed. lýsti hv. frsm. fjhn. yfir því. að þetta væri vitleysa og fengi ekki staðizt. Verðlagsnefnd mundi ákveða álagninguna á hverjum tíma og gæti hún þá hækkað hana á öðrum sviðum. Nei, það er ekki hinn minnsti vandi að fara í kringum þetta. Þeir fá hér spesíalálagningu, og hvernig hefur þetta nú gengið til? Það var sagt frá því í blöðum út af viðtali við verðlagsstjórann, að lækkuð yrði álagning á ýmsum vöruflokkum. Ég hef nú ekki orðið var við, að það hafi verið framkvæmt enn sem komið er. Og hvers vegna hefur þetta tafizt svo lengi? Það er vegna hinnar skörpu mótstöðu kaupsýslustéttarinnar. Það væri vel, ef hæstv. fjmrh. upplýsti, hvernig gengið hefur að lækka álagninguna yfirleitt.

Þá minntist hæstv. ráðh. á það, að verkalýðurinn hefði orðið að bera meiri þunga í sambandi við þær till. til tekjuöflunar í ríkissjóð, sem við sósíalistar hefðum borið fram, og nefndi hann þar sem dæmi, að við hefðum mælt með álagi veituskattsins. Hann sagði, að meginið af veituskattinum hefði lagzt á samvinnufélögin. Ég skal ganga inn á það, að þessi skattur kom nokkuð við samvinnufélögin, en meginið lagðist þó á stóriðjuna og lagt var á veitu, sem búin var að vera, og sá skattur jók ekki dýrtíðina í landinu, þótt hann annars væri ekki alveg gallalaus. En með þessari tekjuöflunarleið fannst aðferð til þess að afla tekna á heppilegri hátt, en nú er gert ráð fyrir. en Framsókn lagðist í mót þessari aðferð. en þessi flokkur vill nú ólmur hrifsa 30 millj. kr. af alþýðunni með tollum, og með því er öllum álögum svipt af heildsölunum og kippt yfir á launastéttirnar. Og nú ræður Framsfl. sér ekki yfir því að hafa nú til leiðar komið, að veituskatturinn er afnuminn um leið og þeir bjóða upp á stóraukna tolla á herðar almenningi.

Hæstv. fjmrh. sagði, að við sósíalistar hefðum drepið gerðardómslögin. Ég er hissa á hæstv. ráðh. að mæla svo. Þjóðhagslega séð var það hin mesta gæfa, hve kaupið var spennt hátt, því að það knúði atvinnurekendur til þess að ráðast í aukna tækni við framleiðsluna, en það hefðu þeir ekki gert í svo ríkum mæli sem nú er orðið, ef þeir hefðu getað keypt vinnuna fyrir lítið, og er þar ástæðan fyrir því, að það er afleiðing hins háa kaupgjalds, að tæknin hefur aukizt svo mjög hér á landi. Og ég vil fullyrða, að það er hægt að borga hæsta kaup og framleiða þó vöru með lægsta verði. Hv. 3. þm. Reykv. ætti að líta til Bandaríkja Norður-Ameríku, sem hann dáist hvað mest að, en í Bandaríkjunum hefur venjulegur kolanámumaður þriðjungi hærri laun fyrir vinnu sína, en enskur kolanámumaður, en Ameríkumenn geta þó framleitt vöruna með miklu lægra verði. Og af hverju stafar þetta nú? Það stafar af því, að Bandaríkjamenn hafa tekið upp fullkomna tækni við framleiðsluna.

Hæstv. fjmrh. var að tala um, að fikra þyrfti sig niður vísutölustigann. Já, það er lítið gagn í því að vera að tala um slíkt nú, að fikra sig niður, ef nú á að fara að stökkva upp með vísitöluna um alltaf 10 stig með þessari tollalöggjöf. Það er litið gagn í því að vera að praktísera það með slíkum aðferðum. Hæstv. fjmrh. var að tala um það, að þjóðin þyrfti að leggja á sig fórnir og skera niður dýrtíðina. Ég lýsti því í fyrri ræðu minni í dag, hve mikill baggi það yrði á alþýðu manna, næðu þessi frv. hæstv. ríkisstj. samþykki, þótt alþýðan mundi annars ef til vill ekki sligast undir þessum álögum, því að hún getur lagt hart að sér. Hæstv. ráðh. sagði, að launastéttirnar yrðu að vinna mikið afrek. En hví var þessu máli þá ekki vísað til félagssamtaka verkalýðsins og leitað umsagnar þeirra varðandi þessi mál og þeim gefið tækifæri til að endurskoða og láta álit sitt í ljós í málinu? Ég gæti tekið undir brtt. varðandi þetta.

Hæstv. menntmrh. talaði hér um stöðvun atvinnulífsins og um þá miklu öfugþróun, sem hér ætti sér stað. Nú, nú, er það ekki öfugþróun, sem hér er verið að framkvæma, að verið er að gera skeleggar ráðstafanir til þess að hækka dýrtíðina í landinu? Og nú er flýtt fyrir þessu allt hvað má af hæstv. menntmrh. sjálfum. Hann talaði einnig um þá stöðvun, sem nú væri, en lætur nú uppi, að með hinu nýja frv. um fjárhagsráð, þá verði nú kýlið læknað varðandi verzlunarmálin. Hann segir, að þá verði tryggð hagkvæm innkaup fyrir landið. Ég hef nú ekki orðið var við, að frv. þetta hafi komið úr nefnd enn þá, og skal ég bíða með að ræða það mál, þar til það kemur úr nefnd. Hæstv. ráðh. minntist einnig á hina óhóflegu eyðslu á erlendum gjaldeyri síðasta ár, er sósíalistar sátu í ríkisstj., og að þá hefði lítið verið gert til þess að skerða hlut stórgróðans. Ég get minnt hv. ráðh. á það. að við sósíalistar vildum koma á vöruskömmtun og takmarka eyðsluna, og það var af okkar hálfu, að till. kom fram um að leggja 300 millj. kr. af útflutningnum á nýbyggingarreikning til þess að spara gjaldeyri. Við þessum till. var yfirleitt daufheyrzt og Framsfl. var hvorki með till. um þetta né niðurskurð fjárl. Hitt er ekkert spursmál, að með þessum ráðstöfunum, að leggja hluta gjaldeyrisins á lokaðan reikning, sem nota skyldi til kaupa á framleiðslutækjum, þá hafa sparazt hundruð milljóna króna í gjaldeyri, sem annars hefðu farið til lítils gagns, en hæstv. menntmrh. var einn þeirra, sem skarst úr leik með flokk sinn, og ætti hann því að tala rólega um þessi mál. — Hann minntist einnig á veituskattinn, en hann var framför. En það, sem hæstv. ríkisstj. leggur nú hér fram, er afturför. Með veltuskattinum var lagt á heildsalana, en nú er verið að veita 30 millj. kr. af heildsölunum yfir á alþýðuna.

Hæstv. menntmrh. var svo að reyna að gera gys að okkur sósíalistum, að okkur gengi illa í baráttunni við auðvaldið. Er við sósíalistar sátum í ríkisstj., tókst okkur að ná glæsilegri kjarabótum handa alþýðunni, en nokkru sinni áður og að fá óréttlætið leiðrétt. Það var ekki þægilegt, því að andstaðan var hörð, og er nú sízt að lá okkur, þótt við berjumst harðvítuglega gegn 30 millj. kr. álagi, sem nú er verið að skella á alþýðuna. en á sama tíma á að láta heildsalana sleppa, og það mun alls ekki tryggja framkvæmd laganna um almannatryggingar, skólalöggjafarinnar og skólabyggingalaganna og þeirra stórmerku frv., sem fyrrv. ríkisstj. barði í gegn. Er það vilji Framsfl. að hefta framgang þessara laga? Ef svo, þá má hann passa sig.

Tímabil okkar sósíalista í ríkisstj. þolir fullkomlega samanburð við tímabil hvaða ríkisstj. sem er, og við fengum líka út úr þessu samstarfi það að skapa þau framleiðslutæki, að þjóðin þarf aldrei að óttast atvinnuleysi, ef vel er haldið á málum, en nú ætlar Framsfl. með einu tollafrv. að reyna að skapa og skipuleggja atvinnuleysi í landinu, bölið, sem við sósíalistar höfum barizt gegn með öllum okkar mætti. Ég get því sagt hæstv. menntmrh. það, að ég þori að leggja spilin á borðið í þessu sambandi.

Hæstv. fjmrh. sagði að ekki væri til neins að vera að leggja skatt á fé, sem þegar væri búið að eyða, en einhvern tíma heyrði ég nú framsóknarmenn leggja það til, að lagður yrði sérstakur skattur á lúxusíbúðir, einhvern tíma las ég um þetta í Tímanum, og var þar ekki ritað af litlum fjálgleik. Ég held þess vegna. að hæstv. menntmrh. sé rétt að fara rólega í þetta. Svo fór hæstv. menntmrh. að tala um kreppu. Já, kreppu. Nú er verið að reyna að skapa kreppu vitandi vits. Það er hægt að selja allar framleiðsluvörur okkar fyrir gott verð og miklu hærra verð en í fyrra. Og þrátt fyrir þetta, að vitað er, að hægt er að fá 50% hærra verð fyrir þorsk- og síldarafurðir en í fyrra, þá á nú að fara að skapa hér kreppu vitandi vits. Ef einhver þorir að mæla þessu í mót, þá skora ég á hann að gera það strax. Og hvernig er annars útlitið, þegar von er á 450 millj. kr. tekjum í utanríkisverzluninni og reynt er á sama tíma að stöðva atvinnulífið í landinu? Það er bókstaflega ekki hægt að stöðva atvinnulífið nema það sé gert vitandi vits af ríkisvaldinu. Það er hægt að skrúfa fyrir allt rafmagn til Rvíkur af einum manni í einni svipan frá Sogstöðinni i Grafningnum, og á sama hátt er hægt að stöðva allar byggingarframkvæmdir og atvinnulíf i heild af einni ríkisstj. Já, hæstv. atvmrh. mætti athuga þetta, að öll þessi atvinnukreppa kemur ofan frá. Ekki eru það sjómennirnir, sem hætta að draga fiskinn úr auðugum fiskimiðum, og ekki þorna auðlindir sjávarins — ekki er aflabresturinn. Nei, það eru aðrir menn og önnur öfl hér að verki, og sú ríkisstj., sem nú situr, er á góðum vegi með að breyta þeirri velmegun, sem sköpuð hefur verið fyrir allan landslýð, í atvinnuleysi og hrun. Og sú ríkisstj., sem það gerir, mun fá sinn dóm áður en lýkur.