19.05.1947
Neðri deild: 131. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1924 í B-deild Alþingistíðinda. (3548)
253. mál, embættisbústaðir dómara
Jón Pálmason:
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 856, er um breyt. á l., sem samþ. voru á síðasta þingi, um embættisbústaði héraðsdómara, en þau voru samþ. fyrir atbeins hv. þm. V-Sk., sem er formaður sýslumannafélags Íslands. Þessi l. eru ekki nema ársgömul og hafa því næsta lítið komið til framkvæmda, og meira að segja finn ég ekki í fjárl. fyrir þetta ár neina upphæð til að byggja fyrir þessa embættisbústaði.
Mér virðist það helzt liggja til grundvallar fyrir þessu frv., sem fer fram á að bæta inn í þessi l., að hæstaréttardómarar og aðrir embættismenn í Reykjavík skuli sitja fyrir um slíka bústaði, því að reynslan vill vera sú, þegar um er að ræða embættismenn úti á landi annars vegar og í Reykjavík hins vegar, þá gengur þeim, sem eru í Reykjavík, oftast betur að koma málum sínum áfram. Og þar sem hér er um að ræða embættismenn, sem eru í þeim embættum, sem eru með þeim allra hæst launuðu og mest eftirsóttu, þá tel ég óþarft að bæta þeim inn í þessi l., meðan þau eru ekki komin til framkvæmda meira en orðið er. Ég get þess vegna ekki fylgt þessu frv. eins og sakir standa, þó að það kynni að vera rétt að samþykkja það síðar, þegar núgildandi l. hafa náð tilgangi sínum.