19.05.1947
Neðri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (3556)

253. mál, embættisbústaðir dómara

Forseti (BG) :

Hv. þm. A-Húnv. hefur afhent mér skrifi. brtt. við frv. það, sem fyrir liggur. Brtt. hljóðar svo:

„Við 1. gr. Orðin „og hæstaréttardómara“ í fyrsta málslið greinarinnar falli burt.“

Þar sem brtt. þessi er of seint fram borin og auk þess skrifleg, mun ég leita afbrigða, til þess að hana megi taka til meðferðar á fundinum.