19.05.1947
Neðri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (3559)

253. mál, embættisbústaðir dómara

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Af því að hæstv. dómsmrh. er ekki viðstaddur á fundi, vil ég gjarnan upplýsa það, að af hans hálfu var lögð veruleg áherzla á það, að ákvæðin næðu til hæstaréttardómara, og höfum við rætt nokkuð um þetta í ríkisstj. Það má að vísu segja, að hæstaréttardómarar séu hvað föst laun snertir bezt launaðir allra dómara landsins. En þess er þó vert að geta, að þeir eru sökum stöðu sinnar í verulegum atriðum afskornir því að hafa aukastörf með höndum. Og það er alveg lífsnauðsynlegt fyrir þá að geta verið fjárhagslega óháðir til þess að geta gegnt fullkomlega sínu dómarastarfi. Og þó að hæstaréttardómarar hafi 15 þús. kr. í grunnlaun, hygg ég, að æði margir af héraðsdómurunum hafi í raun og veru jafnmiklar tekjur og þeir. Og mér er kunnugt, að hæstaréttardómarar hafa talið sig mjög illa setta með þetta, sérstaklega þeir, sem verða að sæta mjög dýru húsnæði eða þurfa að reyna að koma upp mjög dýru húsnæði fyrir sig. Sjá þeir sér þess varla kost á eigin spýtur, en þeir vilja ekki leita til Péturs eða Páls út af lánveitingum í þessu skyni.