23.05.1947
Efri deild: 145. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1929 í B-deild Alþingistíðinda. (3567)
253. mál, embættisbústaðir dómara
Frsm. (Lárus Jóhannesson) :
Herra forseti. Allshn. hefur haldið fund um mál þetta og athugað það. Eins og sagt er á nál. 996, þá leggur hv. 8. landsk. til, að frv. verði fellt. En hinir 4 nm. leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.
Frv. þetta er, eins og grg. fyrir því á þskj. 856 ber með sér, flutt af hv. allshn. Nd. eftir beiðni hæstv. dómsmrh., og gerði hann grein fyrir því utan dagskrár, að hann óskaði eftir því, að það yrði tekið til af greiðslu, og lét í ljós ósk um það, að frv. væri samþ. óbreytt.
Vil ég leyfa mér að leggja til við hv. d., að hún samþykki það óbreytt.