10.04.1947
Neðri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í B-deild Alþingistíðinda. (357)
219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947
Áki Jakobsson:
Það er oft talað um það, og m.a. skildist það á ræðu hv. 3. þm. Reykv., að við sósíalistar viljum sliga þetta þjóðfélag og koma því á kné. En það hafa engir unnið eins mikið að þessu eins og heildsalarnir, sem eru komnir. vel á veg með það. En það hefur komið í hlut okkar sósíalista að berjast á móti því, að þeir sligi okkar atvinnuvegi, og vinna á móti þeim skemmdaröflum, sem leiðir af þeim áhrifum og sérstöðu, sem heildsalastéttin hefur. Hæstv. fjmrh. taldi, að það væri ákaflega mikið unnið við það, að við ættum íslenzka verzlunarstétt. Það er kannske út af fyrir sig gott. Við búum nú við það að hafa verzlunarstétt, sem flytur mjög mikið af gróða sínum út úr landinu. Einmitt vegna verzlunarkúgunar, sem var hér á landi, fórum við fram á, að hin erlenda áþján færi frá hér á Íslandi, en enginn óskar eftir því, að hún komi aftur. Sú verzlunarstétt flutti arðinn af verzluninni út úr landinu. En sú íslenzka verzlunarstétt, sem við höfum fengið í staðinn, sýnist hafa haft vaxandi tilhneigingu í þessa sömu átt á síðustu árum. Og að því leyti er hún að verða dálítið svipuð og gamla einokunarverzlunarstéttin var. Og það verður að játa það, að það er ákaflega margt orðið líkt með núverandi verzlunarstétt, með því fyrirkomulagi, sem nú ríkir hjá okkur, eins og hjá gömlu selstöðuverzluninni. Og vitanlega láta þá áhrifin af því á atvinnulíf okkar ekki á sér standa um að koma fram. Og þess vegna hefur nú sjávarútvegur okkar orðið fyrir þeim búsifjum, sem ég hef nú lýst. — Ég benti á, að ríkisstj. hefði með framkomu sinni í sambandi við eignakönnunina og með yfirlýsingum í því efni, án þess að gera nokkuð, heldur láta þessa hluti fréttast út löngu áður, en það mál er lagt fyrir þingið, gefið einstökum mönnum tækifæri til þess að hagnýta sér þennan fyrirvara. Hversu sjálfrátt þetta er ríkisstj., skal ég ekkert um fullyrða. En í sambandi við þetta er verzlunarstéttinni gefið tækifæri til þess að hagnast á gömlum vörubirgðum.
Þá kom gamli söngurinn fram hjá hæstv. fjmrh., að tollarnir lenta jafnt á öllum, og þess vegna væru þeir sanngjarnir. En það er einmitt þetta, að þeir lenda jafnt á öllum, sem gerir þá ósanngjarna. Og þetta er alveg óhæft fyrirkomulag frá sjónarmiði almennings, af því að menn eiga að bera skyldur sínar í hlutfalli við tekjur sínar. Og þessi nefskattaleið er alveg ófær, ofan á það, að þessar aðferðir, sem nú er lagt út í, verða til þess að auka verðbólgu og skapa enn meiri óánægju út af henni, en þó enn þá er komin.