04.02.1947
Neðri deild: 66. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1933 í B-deild Alþingistíðinda. (3583)

148. mál, vatnsveitur

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Ég sé, að hæstv. samgmrh., sem hefur átt frumkvæði þessa máls, er ekki viðstaddur. Ég ætlaði að beina til hans fyrirspurn um, hvernig bæri að skilja ákvæði gr. í frv., og tel, að á svari hans velti, hvort ég tel nauðsynlegt að bera fram brtt. við þá gr. Ég vil þess vegna leyfa mér að beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann taki þetta mál af dagskrá að þessu sinni, þannig að mér gefist kostur á að beina fyrirspurn til hæstv. ráðh., svo að ég geti fengið upplýsingar um þetta atriði og úr því skorið, hvort nauðsynlegt verður fyrir mig að bera fram brtt.