05.02.1947
Neðri deild: 67. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1934 í B-deild Alþingistíðinda. (3587)
148. mál, vatnsveitur
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Eins og segir í grg. frv., eru ýmissa orsaka vegna á mörgum stöðum ófullnægjandi vatnsveitur, og var það hugsun mín, að ákvæði 4. gr. frv. næði jafnt til þeirra og nýrra, því að víða mun mikil þörf endurbóta. Þess vegna lít ég svo á, að það beri að veita jafnan styrk til endurbygginga og nýbygginga, því að það er oft á tíðum ómögulegt að segja, hvor þörfin er brýnni.
Ef einhverjir hafa fleiri fyrirspurnir varðandi frv., er ég fús að svara þeim, en með því á ég við allt það, er við kemur veitunum sjálfum, en ekki neitt viðkomandi vatnsleiðslunni innan sveitarfélaganna, því að það heyrir undir sveitarfélögin sjálf.