07.02.1947
Efri deild: 66. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1935 í B-deild Alþingistíðinda. (3594)
148. mál, vatnsveitur
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Þetta frv. er samið samkv. ályktun, sem gerð var hér á Alþ. fyrir nokkru um þetta efni. Ástæðan til þess, að sú ályktun kom fram, er sú alkunna staðreynd, að mörg þorp, og sérstaklega sjávarþorpin, hafa enga vatnsveitu eða mjög lélega. Þetta er vitaskuld óviðunandi ástand. Víða notar fólk vatn úr brunnum, sem eru ekki nægilega vel einangraðir frá frárennslisæðum.
Vegamálastjóra var falið að gera athugun á þessum málum um land allt, og birtist nú nokkur hluti af niðurstöðum hans. Af þeim má sjá, að víða um land er pottur brotinn í þessu efni, og til þess að ráða bót á þessu ástandi er frv. þetta flutt. Það er farið fram á, að ríkið styrki þær vatnsveitur, sem sveitarfélög gera, og að sá styrkur nemi allt að helmingi stofnkostnaðar við stofnæðina til bæjarins, en bæjarkerfið greiði bæirnir sjálfir.
Víða er mjög erfitt um vatnsveitu, t. d. í Stykkishólmi, sem er nú að leggja vatnsveitu, og er vatnið tekið úr uppsprettu sem er 10 km frá bænum.
Þess er að vænta, að þetta frv. bæti nokkuð úr því ástandi, sem er í þessum málum, og vænti ég þess, að hv. d. sjái sér fært að afgreiða það svipað og Nd. gekk frá því.
Ég leyfi mér svo að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og félmn.