07.02.1947
Efri deild: 66. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1935 í B-deild Alþingistíðinda. (3596)

148. mál, vatnsveitur

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Hv. þm. Str. taldi rétt að taka með þær vatnsveitur, sem þegar er búið að gera. Ég skal engan dóm á það leggja, en það, sem mér virtist, að mundi þurfa þröng ákvæði um, eru hinar ónógu vatnsveitur. Það eru víða komnar vatnsveitur, sem eru gersamlega ófullnægjandi og þurfa viðbætur. Það er ekki hægt að segja, að það heyri undir 2. gr. Þar sem vatnsveitur eru til, þarf víða að taka upp pípurnar o. s. frv., og þá þarf að vera fast ákvæði um það í l., en að þessu leyti er þetta frv. ófullnægjandi. En ég vildi gjarnan vita, hvort ætlazt er til, að l. beri að skilja svo, að þetta heyri undir það, sem þar er sagt, eða hvort meiningin er að leggja það í vald ráðh. Ég vildi gjarnan heyra álit hæstv. ráðh. um þetta, og n. ætti að athuga þetta atriði vel. Mér er kunnugt um staði, þar sem miklu þarf að breyta og gera við, og svo aðra, þar sem lítið þarf að gera við, en ekki þörf nýrrar veitu. Nú vildi ég heyra, hvernig þetta atriði er hugsað og hvar markalínan er dregin og hvort viðgerðir koma hér undir eða ekki.