07.02.1947
Efri deild: 66. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1936 í B-deild Alþingistíðinda. (3597)
148. mál, vatnsveitur
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Út af því, sem hv. 1. þm. N-M. sagði, skal ég segja það, að í Nd. var nokkuð rætt um þetta atriði, og var samhljóða álit þeirra, sem um það fjölluðu, að frv. mætti skilja svo, að heimilt væri að veita styrk, til endurbóta, ef þær endurbætur færu fram þannig, að samkv. ákvæðum frv. væri vatnsveitan styrk hæf, en vera má, að það þurfi að orða það greinilegar.
Út af því, sem hv. þm. Str. sagði, þá er það rétt, að ekki er gert ráð fyrir því að styrkja þær vatnsveitur, sem þegar er búið að gera, og ef svo ætti að vera, að veita styrki aftur í tímann, yrði vitanlega að breyta frv.
Það, sem áherzla er lögð á, er að styrkja fyrst og fremst þá staði, þar sem engin vatnsveita er fyrir. En ég get vel trúað, að ýmsir hafi skapað sér þungar skuldabyrðar, en það er ekki hægt að fara ótakmarkað aftur í tímann. Aðaláherzluna verður að leggja á að hjálpa þeim, sem mest þurfa þess með í svipinn, og draga úr þeim fjárhagslegu erfiðleikum, sem víða eru á því að koma upp viðunandi vatnsveitum. En um hitt má svo deila, hvort hlaupa skuli undir bagga með þeim, sem þegar hafa ráðizt í framkvæmdir.