25.03.1947
Efri deild: 99. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (3603)
148. mál, vatnsveitur
Frsm. (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur rætt þetta mál ýtarlega á nokkrum fundum, og er hún öll sammála um, að nauðsyn beri til, að það nái fram að ganga á þessu þingi, og væntir þess, að hv. dm. fallist á brtt. hennar og samþykki þetta frv. Eins og þetta frv. er nú, er ætlazt til, að ríkið veiti sveitarfélögum óafturkræft framlag til að koma upp vatnsveitum eða til að standast kostnað af stofnæðum eða aðalæðum, og eru þar með taldir vatnsgeymar, dælur og jarðboranir, en ekki er ætlazt til aðstoðar ríkisins við dreifingu vatnsins um bæjarkerfi. Nú er það ljóst, að þannig hagar til á sumum stöðum, að kostnaður við byggingu geyma, boranir og aðalæðar er ef til vill hverfandi lítill, en kostnaður við dreifingu vatnsins um götur og inn í húsin er ef til vill meginkostnaðurinn við vatnsveituna. Þegar svo hagar til, er eðlilegt, að sveitarfélagið greiði sjálft kostnað við aðalæðar eða stofnæðar, en þó að ríkið gerði það, en veitti enga aðstoð við dreifingu vatnsins um bæjarkerfi, er hætt við, að dreifingin á þessum stöðum kæmist ekki í viðunandi horf svo fljótt sem æskilegt væri. Þess vegna vill n. fá þessu breytt í það horf, að ríkið veiti ekkert óafturkræft framlag til stofnæða vatnsveitna, heldur lán, allt að helmingi stofnkostnaðar við stofnæðar, vatnsgeyma, dælur og jarðboranir, ef nauðsyn krefur eða sannað þykir, að vatnsveitan standi ekki undir sér sjálf með hæfilegum vatnsskatti. Má veita lánið vaxtalaust og afborgunarlaust fyrstu 10 árin, en eftir þann tíma skal það endurgreitt á 20 árum með jöfnum afborgunum og 4% ársvöxtum. Auk þessa er ríkisstj. heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að ábyrgjast lán, er sveitarstjórn kann að taka til að koma upp vatnsveitu, að svo eða svo stórum hluta dreifingarkostnaðar vatnsins, en þó má vaxtalaust lán til stofnæða og ríkisábyrgð á dreifingarkostnaði í bæjarkerfum aldrei fara samanlagt yfir 85% af stofnkostnaði allrar veitunnar, og er í þessu sambandi miðað við hliðstæður í l. um rafveitur og raforkuver. N. leggur áherzlu á það, að áður en slík aðstoð sé veitt, verði látin fara fram fullkomin kostnaðarrannsókn eða áætlun um það hvort fyrirtækið muni bera sig fjárhagslega. Og ef það sýnir sig, að það muni bera sig, veiti ríkið ekki neitt lán, svo framarlega sem ábyrgðin ein dugar og er nægileg aðstoð. Sé hins vegar sjáanlegt, að slík fyrirtæki muni ekki bera sig, þá verði farið inn á þá braut að veita vaxtalaus lán.
N. þótti ekki ástæða til, að í þetta frv. yrðu sett ákvæði um það, hvernig haga skuli undirbúningi vatnsveituframkvæmda, eins og hv. Nd. tiltók, vegna þess að slík fyrirmæli hafa þegar verið sett inn í vatnalögin, og þar er tekið fram allt, sem máli skiptir um slíkan undirbúning.
Þá þótti n. rétt, að fjárhagsleg aðstoð ríkisins næði til allra sveitarfélaga, sem komið hafa upp vatnsveitum síðan 1942, ef vitað er, að þau eiga í fjárhagsörðugleikum vegna þeirra framkvæmda, og loks þótti n. rétt að aðstoða sveitafélög við kaup á vatnsveitum í eigu einstakra manna eða félaga innan sveitafélagsins, þótt sumpart séu þessar veitur ef til vill aðeins fyrir einhvern hluta af viðkomandi þorpi. Og til þess að ekki sé unnt að koma í veg fyrir, að þær séu endurbættar og stækkaðar, svo að þær nái ekki aðeins til alls þorpsins, heldur sé og gert ráð fyrir stækkun þorpanna, þarf ríkið að aðstoða sveitarfélög við að eignast þessar veitur, og náist ekki samkomulag við eigendur um sölu þeirra, er heimilt að beita eignarnámi. N. hefur á því fullkominn skilning og leggur áherzlu á, að lífsnauðsyn sé fyrir bæi og þorp að hafa vatnsveitur í lagi og nægilegt og gott vatn fyrir alla íbúa sveitarfélagsins, bæði með tilliti til hreinlætis og þæginda, lífs og heilsu íbúana. N. leggur því áherzlu á, að sem flest sveitarfélög njóti aðstoðar við framkvæmdir í þessu efni, ef þau þurfa á aðstoð að halda, og heldur því fram, að með breyt. þeim, sem hún leggur til, að gerðar verði á frv. frá því, sem Nd. gekk frá því, verði aðstoðin við sveitarfélögin sjálfum þeim notadrýgri en jafnframt áhættuminni fyrir ríkið. N. leggur því til, að frv. verði samþ. með eftirfarandi breyt., sem ég skal nú drepa á :
Við 1. gr. Þeirri gr. er breytt þannig, að ríkissjóður veitir fjárhagslega aðstoð í stað styrks.
Við 2. gr. Þar er gert ráð fyrir, ef sveitarfélag vill koma upp vatnsveitu og fá til þess fjárhagslega aðstoð úr ríkissjóði, að sveitarstjórn leiti samþykkis ráðh. til framkvæmdanna að loknum undirbúningi, eins og fyrir er mælt í 28. gr. l. nr. 15 20. júní 1923, því að í þessari lagagr. þykir n. skýrar tekið fram, hvernig öllum undirbúningi skuli háttað, en í 2. gr. frv. á þskj. 371.
Við 4. gr. Þessi gr. er umsamin. Er þar komið inn á, að ríkið veiti fjárhagslega aðstoð, ef vatnsveitan í ær ekki nægilegar tekjur af vatnsskatti, vaxtalaust og afborganalaust lán fyrstu 10 árin, er endurgreiðist eftir þann tíma á 20 árum með jöfnum afborgunum og 4% vöxtum. En ef sýnt er, að vatnsveitan muni standa undir sér fjárhagslega, þykir engin ástæða til aðstoðar í því efni.
Við 5. gr. Þessi gr. er einnig orðuð um, og fjallar hún um það, að ríkinu sé heimilt að ábyrgjast allt að 85% allrar veitunnar, og nær það einnig til dreifingarkerfis vatnsins, þar eð hjálpin er ekki alls staðar nægileg, ef aðeins er átt við stofnæðar eða aðalæðar.
Við 6. gr. Þar er sett inn það fyrirmæli, að aðstoð ríkisins skuli einnig ná til vatnsveitna, sem sveitarfélög hafa eignazt síðan 1942, ef þau fyrirtæki geta ekki staðið undir sér fjárhagslega, enda uppfylli þau fyrirmæli l. að öðru leyti.
Á eftir 6. gr. komi ný grein, þar sem svo er fyrir mælt, að ríkið veiti sveitarfélögum fjárhagslega aðstoð til að kaupa vatnsveitur, ef þau óska þess. Samþykki ráðh. slík kaup, nýtur sveitarfélag í slíku tilfelli sama réttar til fjárhagslegrar aðstoðar og fyrir er mælt í 4. og 5. gr., og einnig er veitt heilmild til eignarnáms, ef sveitarfélag kemst ekki að samkomulagi við eigendur um kaup á veitu.
Þá var gerð sú breyting á 7. gr. í Nd., frá því sem sú gr. var áður, eins og segir á þskj. 361 með leyfi hæstv. forseta : „Til þess að standa straum af kostnaði við vatnsveituna skal sveitarstjórn heimilt, ef vatn er eigi selt eftir mæli, að heimta vatnsskatt af öllum húseignum, er vatnsins njóta.“ N. þótti sem þetta orðalag gæti valdið misskilningi og það gæti valdið togstreitu í þá átt, að menn gætu neitað að leiða inn vatn hjá sér og þættust ekki skyldugir til þess né að greiða vatnsskatt. N. óskar því eftir, að gr. sé orðuð öðruvísi, að í stað orðanna „er vatnsins njóta“ komi: á veitusvæðinu — og verður þá ekki deilt um, að leyfilegt sé að leggja vatnsskatt á hvert hús á veitusvæðinu, og hverfur þar með sá möguleiki til togstreitu, að einhverjir gætu neitað að notfæra sér vatnsveitu sveitarfélags.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta nánar, en vænti þess, að allar brtt. heilbr.- og félmn. verði samþ. Um þetta mál var enginn ágreiningur í n., allir nm. hafa undirritað nál. og eru samþykkir því, að frv. verði afgr. með þessum breyt.