09.04.1947
Efri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (3612)

148. mál, vatnsveitur

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Hv. form. n. er ekki viðstaddur, en ef þess verður óskað, að umr. verði frestað, skal ég sjá til þess, að n. taki till. til meðferðar á næsta fundi í n., ef flm. óskar þess. Ég get hins vegar ekki fylgt þessari brtt. Ég sé enga skynsamlega ástæðu til þess að setja ákvæði um þetta inn í l. Um þetta hefur verið rætt í n., en ekki var lagt til, að slíkt ákvæði yrði sett í l. Meginatriðið um þetta í frv. er í 7. gr., þar sem sveitarfélögum er heimilt að eignast vatnsveitur einstaklinga eða félaga og þá í þessu tilfelli vatnsveitufélaga. Ég sé ekki, hvað því er til fyrirstöðu, að sveitarfélagið ábyrgist lánið gagnvart ríkinu, eða hvað er á móti því, að sveitarfélagið eigi vatnsveituna, eða að munur sé hér á, og sé ekki hægt að ná samkomulagi um það, þá er eitthvað annað, sem þarf að laga, einhver togstreita, sem er af öðrum rótum runnin. Ég sé því ekki ástæðu til að samþykkja þessa till., en ef flm. óskar þess eindregið, mun form. sem nú er kominn leyfa það, að hún verði tekin fyrir á næsta fundi.