09.04.1947
Efri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (3613)

148. mál, vatnsveitur

Steingrímur Aðalsteinsson:

Brtt. mín er nú einmitt fram komin vegna þess, sem hv. þm. Barð. lagði áherzlu á, að ákvæði frv. eru bundin við, að vatnsveitur séu eign sveitarfélaga. En mín skoðun er sú, að oft geti svo staðið á, að meiri hluti íbúa sveitar og sveitarstjórnir hafi engan áhuga fyrir vatnsveitu, og er þá nauðsyn, að svo sé frá gengið frv., að íbúar þorpsins, sem hafa sérstakra hagsmuna að gæta fram yfir aðra sveitarmenn, hafi opna möguleika til að njóta hlunnindanna, án þess að sveitarfélagið standi að því sem heild. Hv. þm. Barð. taldi lítinn mun á þeirri ábyrgð, sem sveitarfélögin tækju að sér. Það er þó um allmikinn mun að ræða. Þó að sveitarfélögin taki að sér ábyrgð lánsins, er það ekki nema nokkur hluti stofnkostnaðarins. Fyrir hinum hlutanum stendur félagið eitt, sem svo væri eigandi að vatnsveitunni sem heild. Ég held því, að með þessu formi, að heimila ríkisstj. — því að aðeins er um heimild að ræða og á valdi ríkisstjórnarinnar að meta þetta í hverju tilfelli og ákveða það að lokum — að veita slíkum félögum lánið, sé viðkomandi þorpi opnir möguleikar til að fá viðunandi vatnsveitur fyrr en ella. Ég vil svo fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann fresti umr. og n. taki þessa till. til athugunar, því að hún er í nokkuð öðru formi en ég fitjaði upp á henni í fyrstu og n. sá þá ekki ástæðu til að fallast á.