11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1952 í B-deild Alþingistíðinda. (3623)

148. mál, vatnsveitur

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr., en vildi leiðrétta eitt atriði hjá hv. frsm., þar sem hann endurtekur það, og það er, að enginn munur sé á því, hvort viðkomandi sveitarfélag tekur ábyrgð á láni hjá ríkinu eða hvort sveitarfélagið á vatnsveituna. Samkv. frv. er í 4. gr. ákveðið, að styrkur ríkisins nær aðeins til hluta af kostnaðinum, og í niðurlagi segir, að styrkurinn sé ekki meiri en helmingur kostnaðar. Þetta hlýtur hv. frsm. að vera ljóst og að kostnaður við vatnsveituna er meiri en nemur þessu láni. Ég held, að óhætt sé að fullyrða, að áhætta sveitarstjórnar gagnvart vatnsveitufélagi yrði miklu minni en ef sveitarfélagið ætti vatnsveituna sjálft. Það er mín skoðun, að ýmsum þorpum, sem eru lítill hluti sveitarfélaganna, reynist örðugt að fá sveitarstjórnir til að samþykkja að sveitarfélögin láni til vatnsveitu fyrir þorpið. Þetta segir hv. frsm., að séu getgátur, en þetta er mín skoðun, og held ég henni hiklaust fram. Einnig mótmæli ég því, að það væri fjandskapur sveitarstjórnar að vilja ekki gera vatnsveitu fyrir þorpið, heldur væri það miklu fremur skortur á skilningi, hvað sem hv. frsm. segir um það.