11.04.1947
Neðri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (366)
219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947
Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Mér hefur skilizt, að forseti muni ekki ætla að leita afbrigða varðandi brtt. á þskj. 626, þótt of skammt sé liðið síðan hún kom fram. (Forseti: Það verður gert að aflokinni ræðu hv. þm., og er það leyfilegt í þingsköpum). Já, forseti, ég tek þessa skýringu til greina.
Ég hef ekki orðið sammála meðnm. mínum með afgreiðslu þessa máls. Það er mikil vinna að gera brtt. við frv., en ég mun þó reyna að bera brtt. fram, þótt tíminn til athugana á frv. sé mjög naumur. Ég hafði ætlað mér að ræða við nokkra aðila varðandi málið og sendi því Alþýðusambandinu, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Landssambandi útvegsmanna og Landssambandi iðnaðarmanna brtt., og óskaði ég þess, að þessi félagasamtök létu álit sitt í ljós varðandi þetta mál. Það er eins og gefur að skilja, að þegar leggja á 30 millj. kr. á landsmenn með nýjum tollum, að þá er ekki nema eðlilegt, að þessir menn séu að spurðir og tilkynni skoðun sína. Mér hefur nú borizt bréf frá Alþýðusambandi Íslands varðandi þetta, og með leyfi hæstv. forseta vil ég leyfa mér að lesa það bréf hér upp. Það hljóðar svo:
„Samkvæmt ósk minni hluta fjárhagsnefndar neðri deildar Alþingis um umsögn vora varðandi frv. til laga um hækkun á aðflutningsgjöldum árið 1947, sem borið er fram af ríkisstj., skal því hér með lýst yfir, að Alþýðusamband Íslands lítur svo á, að nefnt frv. sé óskammfeilin árás á launastéttir landsins og hafi raunverulega í för með sér, ef samþ. verður, stórlega aukningu dýrtíðarinnar.
Um leið og sambandið skorar á Alþingi að fella þetta frv., lýsir það því jafnframt yfir, að það muni beita sér fyrir viðeigandi gagnráðstöfunum af hálfu launþegasamtakanna, verði frv. að lögum. Virðingarfyllst,
f.h. Alþýðusambands Íslands
Jón Rafnsson.“
Þetta var bréf Alþýðusambandsins, og frá Landssambandi útvegsmanna hefur mér borizt bréf, þar sem segir, að Landssambandið hafi ekki tök á því að boða til fundar nú þegar, en að það muni reyna að kalla saman fund næstkomandi mánudag. Frá öðrum aðilum, sem ég hef beðið um álit, hefur mér enn ekki borizt svar, og er það nú varla von, því að mjög stutt er liðið síðan þetta frv. kom fram og er ég fór þess á leit við þessi félagssamtök að senda álit, og það er nú svo, að ekki er hægt að boða til funda í stjórn þessara félaga með nokkurra klukkustunda fyrirvara, og það er mjög slæmt að berja þetta mál með slíkum hraða í gegn á Alþingi. Ég hef áður skýrt afstöðu mína varðandi stefnu mína í þessu máli, og mun ég nú halda mig við hin smærri atriði, og þótt ég sé algerlega á móti þessu frv., þá mun ég samt freista að gera brtt. við frv. við þessa umr., og mun ég nú gera hér grein fyrir grundvelli brtt.
Hæstv. ríkisstj. hefur haldið því fram, að hún hafi byggt till. sínar á áliti hagfræðinganna, og hæstv. forsrh. var að reyna að lesa upp kafla hér úr þessu áliti, en forðaðist þó að lesa of langt í álitinu. Ég vil nú leyfa mér að lesa hér kafla í sömu opnu og hæstv. ráðh. las. Þeir segja:
„Nefndin telur, að heppilegasta ráðið til að koma á jafnvægi í greiðsluviðskiptum út á við sé það að hækka til mikilla muna tolla á innfluttum vörum. Sé það gert, án þess að peningatekjurnar hækki, hlýtur afleiðingin að verða takmörkun á eftirspurninni eftir aðkeyptum vörum og væri með því hægt að draga mikið úr gjaldeyrisnotkuninni.“ Og enn fremur segir: „Undanþegið tollahækkuninni ætti að vera: 1) Tæki og vörur, sem notaðar eru til uppbyggingar á framleiðsluatvinnutækjum. 2) Allar þýðingarmeiri rekstrarvörur til sjávarútvegsins og landbúnaðar. 3) Byggingarefni. 4) Kornvara, kaffi, sykur og e.t.v. nokkrar aðrar nauðsynlegar matvörur. Enn fremur eldsneyti til hitunar og ljósa.“
Þetta var nú úr þeim kafla, sem hæstv. forsrh. var að vitna í. Hagfræðingarnir vilja koma á jafnvægi í greiðsluviðskiptum, en fyrst stj. segist halda sig við þetta álit hagfræðinganna, þá ætti hún að halda sig við það. Ríkisstj. segist ætla að tryggja sjávarútveginn, en það liggur í augum uppi, að ef þar fylgdi hugur máli, ætti stj. ekki að leggja stórkostlega tolla á sjávarútveginn og þess vegna ætti sjávarútvegurinn að vera undanþeginn tollum, svo og nauðsynjavörur sem matvörur.
Ég hef farið í gegnum tollskrána og hef reynt að undirbúa brtt. eftir getu og eru brtt. mínar prentaðar á þskj. 626 og eru þær varðandi 3. gr. frv., eða undanþágugr. Við tollskrárkafla 7 nr. 1–8 legg ég til, að grænmeti, nýtt og þurrkað, verði undanþegið. Það er almennt viðurkennt, að hér á landi sé nýtt grænmeti alveg nauðsynlegt í daglegri neyzlu fólks. Er því alls fjarri að tvöfalda toll af því og sama gildir um ávexti, að ekki er ástæða til þess að tolla þá og ekki fremur vegna þess, að erfitt er að fá óskemmda ávexti hingað til landsins og oft hafa afföll orðið mikil, og er ekki nema eðlilegt, að varan verði ekki svo tolluð, að almenningi sé ekki kleift að kaupa þessa vöru með skaplegu verði.
Þá er það 11. kafli nr. 13–15, það er mjöl úr baunum og ertum o.s.frv., kartöflumjöl o.fl., og er þó ekki hér talið allt, heldur aðeins það allra sjálfsagðasta. Enn fremur við 15. kafla nr. 9–19, sem er feiti og feitar olíur úr jurtaríkinu og er það m.a. olíur, sem notaðar eru til smjörlíkisgerðar, að ekki er ástæða til þess að bæta þar á tollhækkunum. — Þá er kafli nr. 1–13, sem er skepnufóður. Það er öllum kunnugt, að fóðurmjöl er stór liður hjá bændum sem fóður, og er sérstaklega tekið fram í áliti hagfræðinganna, að undanþiggja skuli þessa vöru, og legg ég því til, að hér verði undanþága veitt. — Við 25. kafla nr. 17 er einn liður, en það er sement. Mér finnst ófært að hækka toll á nauðsynlegu byggingarefni. Ríkisstj. fyrrv. hefur reynt að gefa mönnum möguleika á því að byggja sér viðunandi húsakynni og útrýma heilsuspillandi íbúðum og hefur lækkað hundraðshluta lánsvaxta, og ef ríkið á nú að fara að koma því til leiðar, að byggingarefni hækki, þá er verið að taka úr einni hendi og gefa hinni og er það vítaverð pólitík. Þess vegna legg ég til, að sement verði undanþegið.
Þá kem ég að tollskrárkafla nr. 35, og hef ég hlaupið hér yfir mjög mikið úr tollskránni. Þarna er ekki nema einn liður, eftir því sem ég hef komizt næst, þó að hér standi 1–10. Ég hef ekki alveg getað gengið úr skugga um það með samanburði við l., sem hafa verið sett síðan 1942. Ef þetta er eitthvað rangt hjá mér, vona ég, að hæstv. forseti leyfi mér að leiðrétta það.
Því næst tek ég upp úr 40. kaflanum, sem fjallar um trjávið, 1–19. Það er óunninn trjáviður eða sagaður, sem ég legg til, að verði undanþeginn. Það sama gildir einnig með þetta og sementið, í það minnsta að því leyti. sem þessar vörur eru notaðar til bygginga, og einnig trjáviður, sem notaður er til húsgagnasmíði.
Það er alveg fjarstæða að vera að hækka tolla á þessum vörum á meðan ríkið er að — eða í það minnsta hefur lýst yfir, að það vilji — hjálpa mönnum til þess að byggja yfir sig. Og það er alveg sérstaklega einkennilegt af ríkinu að gera þetta þegar auðséð er, að það er að verða erfiðara fyrir menn, en verið hefur, að byggja yfir sig. Það er erfiðara að fá lán þrátt fyrir öll l., sem samþ. hafa verið um slíkt. Og ef á að fara að halda áfram þeirri pólitík, sem hér liggur fyrir að gert verði, og þess vegna verður erfiðara að afla tekna, sem þarf til þess að standa straum af því að geta byggt fyrir sig, þá vil ég leggja til að undanþiggja þarna efni til íbúðarbygginga.
Það virðist koma nokkuð úr hörðustu átt að fara í sambandi við l., sem sagt er, að gerð séu til þess, að atvinnuvegirnir geti borið sig, að leggja skatta á það efni, sem notað er til húsbygginga, eins og timbrið og sementið.
Það hefur verið rætt um það og á síðasta þingi gerðar nokkrar ráðstafanir til þess, að hægt væri að koma upp tunnuverksmiðju í landinu til þess að auka atvinnu, og þá sér hver maður, að það nær þá ekki nokkurri átt á slíkum tímum að fara að tvöfalda þessa tolla á tunnuefni og tunnustöfum. Það liggur alveg í augum uppi, að slíkt er alveg fjarstæða.
Í þessum sama 40. kafla hef ég líka lagt til að undanþiggja svo sem hurðir og glugga og þess háttar. Það er vitanlegt, að menn hafa reynt að kaupa þetta inn undanfarið til þess á þann hátt líka að koma sér upp ódýrum húsum. Og þótt fyrirheit hafi áður verið gefin mönnum um það, að þeir yrðu undanþegnir tollum af þessu, en það var á síðasta þingi samþ. heimild til fjmrh. um þa3 að mega fella niður toll á sænsku húsunum, þá á nú ekki aðeins að hætta við að nota þessa heimild, heldur líka að hækka tollana á þeim frá því, sem þeir mundu hafa verið, ef þeir hefðu verið lagðir á.
Þetta öngþveiti og öryggisleysi fyrir borgarana, sem ætla að reyna að byggja fyrir sig. er alveg óþolandi. Nú hafa þeir, í trausti þess, að þessi heimild var samþ. á Alþ. í fyrra, reynt að afla sér þessa byggingarefnis og hafa reiknað með því, að sú heimild yrði notuð um að undanþiggja þetta efni tolli. Þeir fá nú allt í einu að vita, ef þetta frv. verður samþ. eins og það er, að hækkaður verði tollur á þessum hluta húsanna í staðinn fyrir að fá hann lækkaðan. Á hvað geta borgararnir reitt sig, þegar svona er farið að?
Ég vona, að þessi brtt. megi finna náð fyrir augum hv. dm. og mæti skilningi þeirra sömu hv. þm., sem samþ. hafa áður þessa heimild, sem ég minntist á.
Þá kem ég að 41. kaflanum. Þar hef ég lagt til, að korkvörur væru undanþegnar sérstaklega að því er snertir einangrunarvörur fyrir frystihúsin. Ríkið hefur tekið að sér ábyrgðina fyrir verði á hraðfrystum fiski, og ekki þá sízt af þeim ástæðum, sem haldið hefur verið fram, að ástæðan fyrir þessari tekjuöflun sé að halda niðri dýrtíðinni vegna sjávarútvegsins. Og þá liggur það alveg í augum uppi, ef það er meiningin með þessu frv., að það er alveg valin skökk leið að leggja toll á vörur, sem hraðfrystihúsin þurfa.
Þá hef ég tekið hér úr 48. kaflanum og 49. kaflanum nokkrar vörur, sem sérstaklega miðar að því að undanþiggja vinnuföt. Það er ekki ástæða til þess að láta þessa vinnugalla, sem verkamenn nota, fara að hækka í verði vegna þess að ríkið þurfi á tollunum að halda. Þetta kemur alveg beint yfir á vinnandi menn í landinu og heyrir náttúrlega til atvinnurekstrar.
Þá hef ég hlaupið yfir allan kaflann að 63. kaflanum. Ég hljóp yfirleitt yfir allan fatnað, en auðvitað má segja, að þeir tollar séu háir og getur verið, að fram komi brtt. við 3. umr. um þann lið. Ég hef reynt í þessum brtt. að fá sem flest inn í, sem helzt snertir atvinnuvegina, og þá til þess að sjá, hvernig þeim yrði tekið. Hins vegar hef ég ekki lagt til að lækka toll á almennum fatnaði handa fólki, en það verður þá kannske tekið við 3. umr., eftir því hvernig fer um þessar brtt.
Ég hef ekki tekið skófatnað eða þess háttar, og er þá 63. kaflinn næst, sem er um járn og stál. járn og stál er alveg óhjákvæmilegur liður í framleiðslu okkar og atvinnuvegum. Að fara að hækka tollana á þessu, það er að leggja beina skatta á alla atvinnuvegi, sem menn þykjast vera að borga niður. Þessi kafli er mjög stór og mér hefur ekki unnizt tími til þess að fara í gegnum hann allan á þeim tíma, sem ég hef haft til þess að athuga þetta.
Þá kem ég að 72. kaflanum, þeim kafla. sem fjallar um vélar og annað slíkt, sem ég álít, að nauðsynlegt sé að taka þarna inn í 3. gr. frv. Það er fyrst og fremst 10.–21. gr., sem eru um vélar til landbúnaðarins, svo sem dráttarvélar og aðrar vélar, sem vissulega eru notaðar við landbúnaðarframleiðsluna. Það er vitanlegt, að við verðum að reyna að gera stórkostlega breytingu á landbúnaðinum til þess að hægt sé að hafa sem mest upp úr honum.
Undanfarið hefur sérstaklega verið lögð áherzla á það, að bændur reyndu að fá sér slíkar vélar, svo sem dráttarvélar, sem eru dýrar, og fleiri vélar, sem verðtollurinn er þarna hæstur á. Það hefur verið gert mikið að því að hvetja bændur til þess að kaupa sér landbúnaðarvélar, og hafa bændur tekið öllum þeim áskorunum frábærlega vel. Þeir hafa skilið það vel, að til þess að íslenzkur landbúnaður verði rekinn sómasamlega hér á landi, þarf fyrst og fremst nýtízku vélar til þeirra starfa. Þeim hefur líka verið lofað styrkjum til þessara vélakaupa og hafa þeir því pantað meira af vélum, en hægt hefur verið að láta þeim í té. En hvað er svo gert? Einmitt þegar bændur eru búnir að gera þessar miklu pantanir. Í trausti þess, að þeir fái styrk til þeirra kaupa, þá á að tvöfalda tollana á þessum landbúnaðarvélum. Þetta eru hreinar mótsetningar — svona geta menn ekki farið að.
Í 72. kafla eru fleiri vélar, sem ég vil að fylgi þarna með, en það eru vélar til mannvirkjagerðar og túrbínur til rafmagnsframleiðslu, og virðist það ekki óeðlilegt, að svo sé, þegar ríkið sjálft byggir mestan hlutann af þessum fyrirtækjum, t.d. rafvirkjanir. Það virðist undarlegt, að ríkið ætli að græða á því að leggja skatt á vörur, sem það ætlar sjálft að kaupa.
Þá hef ég enn fremur lagt til, að tollur falli niður á vélum til þess að vinna með úr íslenzkum hráefnum. Það hefur verið af hálfu hins opinbera verið gert nokkuð af því síðustu tvö undanfarin ár að hvetja menn og gera ráðstafanir til þess að þeir keyptu þessar vélar, og að fara að hækka toll á þessu, væri í raun og veru það sama og kippa þessu öllu til baka.
73. kafli fjallar um rafmagnstæki. og hef ég tekið þar 37.–45. liðinn. Þær gr. fjalla um rafmagnstæki, svo sem þvottavélar, strauvélar og annað slíkt. Og ég held áreiðanlega, að hér liggi fyrir framan mig á borðinu frv., sem við fluttum, með óbundnar hendur þó, að beiðni hæstv. fjmrh., þar sem beinlínis er verið að lækka tollana á þessum heimilisvélum. Ég held endilega, að ég muni þetta rétt, að það sé þar um að ræða beinlínis þær ráðstafanir til þess beinlínis að lækka tollana á þessum vélum. En af því að umr. um þetta mál hefur gengið svo fljótt, hefur mér ekki unnizt tími til þess að bera þetta saman. Það liggur fyrir frv. frá fjmrh., þar sem gengið er út frá, að tollar á búsáhöldum lækki. Og fyrir nokkru síðan var samþ. þáltill. um að hjálpað væri til þess að fá meira af slíkum innflutningi inn í landið. Og mjög mikið var upp úr því lagt af hálfu kvenfélaganna, sem hafa látið til sín taka í þjóðmálum, að sem flest heimili gætu fengið slíkar vélar til þess að létta þann þrældóm, sem er hjá kvenfólki, sem verður nú að vinna heimilisstörf. Nú á að tvöfalda tollana á þessu öllu saman, sem er allmikið fé. En ég held, að það sé alveg ófært að hafa þessar vinnuaðferðir, að hvetja menn til þess að flytja þetta inn, lofa mönnum því, sem hér liggur fyrir, lækkun á tolli, koma svo með frv., þar sem gengið er út frá tvöföldum tolli og jafnvel þreföldum tolli á þessum vörum. Þetta getur ekki gengið. Ég vona því, að hv. þm. fallist á að undanþiggja þessi rafmagnstæki til heimilisþarfa.
Svo eru hér nokkur rafmagnstæki, svo sem borvélar, lóðhamrar, logsuðutæki og logskurðartæki. Ég hefði viljað taka þarna fleiri tæki inn, en ég vildi þó reyna að taka fyrst það allra nauðsynlegasta. sem ég tel alveg sjálfsagt að hækka ekki toll á.
Þá er eitt atriði í 75. kaflanum nr. 4. Þar vil ég undanþiggja vörubíla þessum tolli. Sama er að segja um 76. kaflann nr. 3–6, það eru skip og bátar. Ég held áreiðanlega, að það hafi ekki orðið nein breyt. á þeim l. síðan 1942. En eftir því, hvernig það var 1942, þá er það þannig, að samkv. 2. lið 76. kafla eru skip, sem eru 150 tonn eða stærri, tollfrjáls, en hins vegar 10–150 tonna skip og bátar tollað. Og nú ætti eftir þessu frv. að tvöfalda þann toll. en hin eiga alveg að vera tollfrjáls. Ég verð nú að segja, að það sýnist ekki vera sanngjarnt. Samtímis er svo lagt til að tvöfalda tollinn á herpinótabátum, — alveg á sama tíma, sem verið er að tala um, að það sé mjög erfitt að útvega þá og vitað er, að þeir hafa stigið í verði. Ég álít það þess vegna alveg óþarft að vera að gera þetta erfiðara, en þörf er á með kaup á þessum skipum og bátum.
Ég vildi mega óska þess, að þessi upptalning mín og þessar litlu brtt. mínar verði til þess, að hæstv. ríkisstj. átti sig á því, eins og hún gerði hér í sambandi við bifreiðaskattinn. Það mætti vissulega taka margt fleira upp, sem nauðsynlegt væri að leiðrétta, en alveg sérstaklega vildi ég óska þess, að hæstv. ríkisstj. taki sem mest af þessu til greina, því að þessar brtt. fara aðeins fram á það, sem er allra nauðsynlegast, og samkvæmt yfirlýstum tilgangi sjálfrar stj. með þessu frv. væri sjálfsagt að samþ. þær. Ef ríkisstj. ætlar að byggja allt á áliti hagfræðingan., sem hún hefur minnzt á, þá á hún að samþ. þær allar. Svo er það eftir sem áður deilumál, hvort leggja á allar þær kvaðir á almenning, sem hér er um að ræða með þessum breytingum á tollskránni. Og hvað það snertir, þá vil ég koma með nokkrum orðum að því, sem rætt var um í gær, því að það hafa gerzt þeir hlutir síðan, sem mér alveg blöskrar. Það er sem sagt grein, sem stendur í Morgunblaðinu í dag. Ég las hana í því blaði, sem er aðalmálgagn hæstv. ríkisstj. og þar að auki stærsta og útbreiddasta blað landsins. Ég var hér í gær búinn að hlusta á hæstv. fjmrh. flytja ræðu í sambandi við þessi háu tollafrv. og reyna að verja þau og fá þm. til þess að ganga inn á þau. Ég skildi það vel, að hæstv. fjmrh. gerði það engan veginn glaður að leggja á þá háu tolla, enda tók hann það sjálfur fram. Ég þykist vita, að hann muni gera eins og oft er um menn, sem við stjórnmál fást, fara eftir því, sem hans flokkur hefur ákveðið, gera það, sem hans flokkur hefur samþ. og hafi þannig flokk sinn á bak við sig og þyki í því öryggi. En hvað les ég svo í Morgunblaðinu í morgun? Það er einmitt grein um þessi mál, og fyrirsögnin fyrir greininni, sem er ritstjórnargrein, hljóðar þannig: „Óheillastefna.“ Síðan segir í leiðara þessa blaðs. sem ég les ekki allan hér upp, nokkurn veginn á þá lund, að fyrrv. fjmrh. — já, það hafi nú verið sniðugur maður. Og Morgunblaðið segir, að þegar fyrrv. fjmrh., Pétur Magnússon, lagði fjárlfrv. fyrir Alþ., voru gjöldin á rekstraryfirliti áætluð 146 millj. kr. og tekjurnar tæpum 10 millj. kr. lægri. Og í þessu fjárlfrv. hafi ekkert verið áætlað fyrir niðurgreiðslum landbúnaðarvara, þar eð fyrrv. fjmrh. hafi ekki talið fært að halda áfram á þeirri braut. Og enn fremur, að Pétur Magnússon hefði tekið fyrir það að verða fjmrh. áfram, ef ekki yrði hætt niðurgreiðslum. Hann vildi taka landbúnaðarvörurnar út úr vísitölunni, en það hefði lækkað framfærsluvísitöluna um 40 stig. Og Morgunblaðið lýsir þannig viðhorfinu, þegar nýja stj. tók við, og segir:
„Stj. hafði úr vöndu að ráða. Spurningin var í fyrsta lagi: Vildi stj. og gat hún sætt sig við minni verklegar framkvæmdir? Í öðru lagi: Taldi stj. rétt og treysti hún sér til þess að hætta niðurgreiðslum á landbúnaðarvörum og taka þær út úr vísitölunni, eins og fyrrv. fjmrh. lagði til?
Þingið valdi hitt úrræðið. 1) að auka verklegar framkvæmdir, 2) að halda niðurgreiðslunum áfram og 3) að auka niðurgreiðslur í því skyni að stöðva að formi til vöxt dýrtíðarinnar, enda má segja, að síðasta úrræðið hafi verið óhjákvæmilegt, eins og komið var.“
Morgunblaðið segir enn fremur á þá leið. að afleiðing þessa hafi hlotið að vera annað tveggja, stórfelldur hallarekstur á ríkisbúskapnum eða stórauknar nýjar álögur, og stj. hafi ekki haft annað úrræði, en að taka síðari kostinn eins og Hermannsnefndin (þ.e. hagfræðingarnir) hafi lagt til.
Svo stendur enn fremur í þessari sömu gr.:
„Morgunblaðið telur fyrir sitt leyti. að hér sé stefnt út á svo háskalega braut. að það nálgist fullkomið brjálæði. Hvaða vit er í að vera með um eða yfir 200 millj. kr. fjárl., meðan allt er í óvissu um sölu á aðalútflutningsvöru landsins? En menn verða að gera sér ljóst, að þessi óheillastefna er bein og óhjákvæmileg afleiðing þess, að ekki er hægt að ná samkomulagi um að stíga það eina spor, sem dugar, að ráðast gegn dýrtíðinni.“
Ég verð að segja það, að það er hart að vera fjmrh. fyrir flokk, sem skrifar svona í aðalblað sitt dag eftir dag á meðan fjmrh. er að berjast af öllum mætti fyrir þeirri stefnu, sem flokkur hans virðist hafa samþ.
Hv. 3. þm. Reykv. lýsti yfir því í gær út af gr., sem ég minntist á, að Morgunblaðið flytti aldrei annað en það, sem miðstj. Sjálfstfl. hefði samþ. Þessi leiðari virðist þess vegna samkvæmt samþykkt miðstjórnar Sjálfstfl. Hæstv. fjmrh. er fulltrúi Sjálfstfl. í ríkisstj. og ætti þá líka að vera með samþykkt miðstjórnar Sjálfstfl.
Hvað er nú þá stefna Sjálfstfl.? Er hún það frv., sem hér liggur fyrir, eða er það Morgunblaðsleiðarinn, sem talar um óheillastefnuna? Það má segja, að það má vera annað, en skemmtilegt að vera fjmrh. fyrir flokk og fyrir blað, sem kemur svona fram. Það er hart að eiga að standa í baráttu hér á Alþ. við stjórnarandstöðu og fá svo svona rýtingsstungu í bakið dag eftir dag frá sínu eigin aðalflokksblaði. Og hvert stefnir þetta blað með þeirri afstöðu? Hugsar það sér að leika þarna skrípaleik fyrir þjóðina, að um leið og Alþingi samþykkir 30 milljón króna tolla á alþýðu manna, þá geti það sagt við hana: Við þvoðum hendur okkar af þessu, og við sögðum alltaf að þetta væri brjálæði, og við stöndum ekki að þessu. Hvers konar aðferð er þetta? En það þýðir ekki að ætla að leika þennan skrípaleik og svívirða dómgreind þjóðarinnar með honum. Það er hreinasta brjálæði að skrifa svona á sama tíma, sem flokkur þessa blaðs er að samþ. slíka tolla.
Ég vil spyrja flokkana, sem styðja Sjálfstfl. að þessari óheillastefnu, Framsfl. og Alþfl.: Finnst þeim það sérstaklega þægilegt í samstarfi að fá það nú tilkynnt af stærsta og útbreiddasta blaði landsins, sem sent er inn á hvert heimili, að þeir séu nú, Alþfl. og Framsfl., með óheillastefnu, sem nálgist brjálæði. og auðvitað sé Sjálfstfl. á annarri skoðun. og meira að segja þó að fjmrh. sé úr Sjálfstfl. Hvers konar aðferð er þetta? Hvers konar pólitík er þetta? Það má vera meira en lítil fyrirlitning á dómgreind almennings fyrir hendi til þess að geta komið svona fram.
Sjálfstfl. verður að gera það upp við sig, hvort hann vill samþykkja þessar till., sem hér er um að ræða, eða stoppa það „brjálæði“, sem hér á að fara að framkvæma. Svo kemur Morgunblaðið auðvitað síðan með það, að Sjálfstfl., já, það hafi nú verið auðvitað, að hann sæi rétt í öllum þessum hlutum.
Og í sambandi við stjórnarmyndunina í okt. 1944 segir enn fremur í Morgunblaðinu. með leyfi hæstv. forseta:
„Rétt er í þessu sambandi að minna á, að þegar fyrrv. stj. var mynduð í okt. 1944, gaf Sjálfstfl. yfirlýsingu í þrem liðum: 1) að verja megninu af erlendum innstæðum þjóðarinnar til kaupa á nýjum framleiðslutækjum, 2) að tryggja vinnufrið í landinu, meðan framleiðslan bæri sig. og 3) að þegar séð væri, hvað hin nýju framleiðslutæki gætu staðið undir, skyldi tilkostnaður við framleiðsluna færður í samræmi við það.
Fyrsta og annað atriðið í þessari yfirlýsingu hafa verið framkvæmd. Þjóðin hefur fest kaup á nýjum og fullkomnum framleiðslutækjum til lands og sjávar, sem eru svo stórfelld, að það verður atvinnubylting í þjóófélaginu, þegar þau öll eru komin í notkun. Mörg þessara nýju tækja eru komin til landsins, en hin eru sem óðast að koma. Þetta verk fyrrv. stj. er tvímælalaust hið farsælasta, sem nokkru sinni hefur verið framkvæmt.
En það er hægt að eyðileggja árangurinn af þessu farsæla starfi. Og það verður gert, ef ekki verður nú þegar horfið að þriðja atriðinu í yfirlýsingu Sjálfstfl. frá 1944, að koma tilkostnaðinum í samræmi við burðarþolið.“
Þetta segir Morgunbl., aðalmálgagn Sjálfstfl., þegar flokkurinn er að taka þveröfuga stefnu á þingi. En hvað er svo satt í þessu? Morgunblaðið segir, að Sjálfstfl. hafi viljað berjast fyrir því að koma framleiðslukostnaðinum í samræmi við burðarþolið. En nýsköpunin, sem Morgunblaðið talar um, var ekki búin, þegar núv. stj. tók við völdum. Hún var að byrja. Hæstv. fjmrh. og menntmrh. voru að ræða um það í gærkvöld, hversu mikið hefði verið flutt inn í landið, en við sósíalistar hefðum svo hlaupið burt frá öllu, frá allri nýsköpuninni. Varðandi þetta og einnig það, sem Morgunblaðið sagði um, að nýsköpunin væri fullkomin, vil ég segja nokkur orð.
Það er sannast frá að segja, að barátta stóð yfir allan tíma okkar í ríkisstj. um það, hvort fengist lagt til hliðar nægilegt fjármagn til framkvæmda. Meiri hl. Alþ. hafði samþ. að leggja til hliðar 15% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar í þessu augnamiði. Við sósíalistar vildum leggja til hliðar meira af tekjum þjóðarinnar í þessu skyni. Nýbyggingarráð hafði þar að auki samþ. að leggja til við ríkisstj. í júní 1946 að taka 100 millj. kr., sem þá voru óeyddar, og láta þær á nýsköpunarreikning. En fyrrv. fjmrh. Pétur Magnússon, sveikst um að framkvæma l. um að leggja 15% til hliðar og gegndi því í engu að leggja til hliðar 100 millj. kr. til viðbótar á nýsköpunarreikning og spara með því 100 millj., sem nú eru farnar í eyðslu, og hélt í þess stað uppi þessari skefjalausu eyðslustefnu. Af þeim 300 millj. kr., sem lagðar voru til hliðar í upphafi á nýsköpunarreikning, þá var ákveðið að kaupa togara fyrir 100 millj., flutningaskip fyrir 50 millj. og gera aðrar samsvarandi ráðstafanir varðandi aðra atvinnuvegi. Og með því var búið að ráðstafa þessum 300 millj. Þess vegna þurfti meira fé til þessara hluta og Alþ. gerði sínar samþykktir í því augnamiði og nýbyggingarráð einnig, en fyrrv. ráðh Pétur Magnússon, sem Sjálfstfl. bar ábyrgð á, og meiri hl. ríkisstj. neitaði að framkvæma þessar samþykktir og áskoranir. Og á þennan hátt var það, sem Sjálfstfl. hljóp frá nýsköpunarstefnunni. Ég ætla ekki núna að fara út í bankapólitíkina. En þetta er eitt af því, sem verður að draga fram. Það var með þessum aðgerðum fyrst og fremst. aðgerðum Péturs Magnússonar, sem Sjálfstfl. hljóp frá nýsköpuninni. Það er því fáránlegur skrípaleikur, þegar Morgunblaðið segir í dag, að stefna Sjálfstfl. sé að halda áfram nýsköpuninni. Og ef íslenzk stjórnmál skal reka með þessum málflutningi, þá er sannarlega tími til kominn að segja stopp. Og læt ég þetta nægja í bili.