11.04.1947
Neðri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í B-deild Alþingistíðinda. (368)
219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að lýsa brtt. við frv., sem ég leyfi mér að leggja fram. Þessi till. mín er um það, að 5. gr. frv. falli niður. Þessi frvgr. er um það, að auk þeirra undanþága frá tollgreiðslu, sem um getur í 3. gr., sé fjmrh. heimilt að undanþiggja fleiri tegundir, ef það sé nauðsynlegt til að halda niðri verðlagi í landinu eða af öðrum knýjandi ástæðum. Það er nú í l. í tollskrá, að heimilt sé að undanþiggja ákveðnar vörutegundir tolli eða endurgreiða toll af einstökum vörutegundum. En í tollalögunum er engin svona víðtæk heimild, eða óákveðin, til áður. Heimildin til að endurgreiða toll er bundin við tilgreindar ákveðnar vörur. Og ég tel það ekki heppilegt að fara inn á þá braut að veita ríkisstj. heimild til þess að fella niður tolla af vörum ótiltekið, eins og gert er í 5. gr. Það væri þá nokkurn veginn á valdi ríkisstj. á hverjum tíma, hvaða tollur yrði innheimtur af hinum ýmsu vörutegundum, og það tel ég ekki heppilegt. Ég sé ekki heldur, að það sé nauðsynlegt fyrir ríkisstj. að hafa þessa heimild, sem 5. gr. veitir. Ef það sýndi sig, að nauðsynlegt væri að undanþiggja fleiri vörur tollhækkun, mætti vitanlega flytja um það frv. og setja um það l.. og þannig álit ég, að það ætti að gerast.
Hv. frsm. n., hv. 3. þm. Reykv., gat þess í sinni framsöguræðu, að nm. meiri hl. hefðu óbundnar hendur varðandi ákvæði þessarar gr. frv. Gæti ég því búizt við, að einhverjir þeirra greiddu atkv. með því, að þessi gr. frv. væri felld niður. Vænti ég þess, að till. verði samþ.
En fyrst ég er staðinn upp á annað borð, vildi ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um málið í heild. Það hefur þegar verið allmikið rætt, og er það ekki óeðlilegt, því það frv., sem hér er á ferðinni, hefði einhvern tíma þótt stórt mál, þar sem samkv. því er gert ráð fyrir að hækka innflutningstoll á varningi svo mikið, að hækkunin gefi í ríkissjóð 35 millj. kr. Þetta hefði einhvern tíma þótt stórt mál. En menn eru nú orðnir vanir stórum tölum og blöskrar ekki allt. Frv. þetta er fram borið til að jafna halla á fjárlfrv. Rekstrarhalli þess, er það fór til 2. umr., nam 30 millj. kr. Gjöld á rekstrarreikningi eru nú 197 millj. Þegar við berum það saman við ríkisútgjöldin eins og þau voru síðustu árin fyrir styrjöldina, þá sést, að þau hafa 12-faldazt. Þetta er 12 sinnum hærri upphæð, en var á þeim árum. Það er ekki ófróðlegt að athuga einnig nokkuð hlutfallið milli ríkisútgjaldanna og þess verðmætis, er fengizt hefur fyrir útflutningsvörur landsins. Á árunum fyrir styrjöldina 1935–38, að báðum meðtöldum, var þetta þannig, að útflutningur landsmanna var að meðaltali 53 millj. og 700 þús. Á þessum sömu árum voru útgjöld ríkissjóðs á rekstrarreikningi að meðaltali 16,6 millj. kr., eða sem næst 31% af útflutningsverðmætinu. Þetta hlutfall hefur raskazt mjög á síðustu árum. Árið 1944 voru ríkisútgjöldin um 49% af útflutningsverðmæti og 1945 komust þau upp í 54%. Við vitum ekki, hvað útflutningsverðmætið verður 1947. Það er í óvissu. En árið 1946 fluttu landsmenn út vörur fyrir 291 millj. Við verðum að miða við þá tölu og gera ráð fyrir, að útflutningurinn verði svipaður í ár. Ef við teljum útflutninginn um 300 millj., sem líklegt er, að hann verði ekki fyrir neðan, þá sjáum við, að ríkisútgjöldin eru komin upp í 70% af útflutningsverðmæti í stað 31% fyrir stríð, eins og ég gat um áðan. Nú er að vísu útflutningurinn eða verðmæti hans ekki algildur mælikvarði á afkomu þjóðarinnar. Það skal játað. En þó segir hann meira en nokkuð annað um það, hvers við erum megnugir í fjárhagsefnum á hverjum tíma. — Mér finnst ástæða til að vekja athygli á þessu, þótt að vísu megi segja, að umr. um þessa hluti eigi eins við þegar fjárlfrv. er á dagskrá. Hækkanir ríkisgjaldanna á síðustu árum eru af mörgum rótum runnar, en það, sem einna mestu hefur valdið, mun þó vera t.d. launal., sem sett voru fyrir 2 árum ásamt stöðugri fjölgun starfsmanna og auknum kostnaði við ríkisreksturinn. Þá má nefna skólalöggjöfina og tryggingarl. frá síðasta Alþ. En siðast og ekki sízt má svo nefna hækkun vísitölunnar í við fyrrv. stj., en hún hækkaði þá um 44 stig. Þetta hefur aukið útgjöld ríkissjóðs ákaflega mikið. Það er óhætt að fullyrða, að þessi hækkun á vísitölunni á tímabilinu hefur aukið útgjöldin um 20 millj. og er það 2/3 af þeim halla, sem nú er á fjárlfrv. Það er arfurinn, sem núv. ríkisstj. hefur tekið við. Og af þessu stafa erfiðleikarnir, sem við erum að fást við í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna.
Það hefur nokkuð verið minnzt á hagfræðingaálitið, og er það ekki óeðlilegt. Ég tel, að það mætti gjarnan láta fræðimenn athuga fleira, en þeim var þar fengið til athugunar, og láta þá segja álit sitt um það. Það væri ekkert á móti því að láta slíka fræðimenn athuga, hvað stjórnarvöld landsins geta leyft sér að heimta mikla skatta og tolla til opinberra þarfa og hvað ríkisútgjöldin mega vera há í hlutfalli við þjóðartekjurnar. Þetta er rannsóknarefni. sem hagfróðir menn ættu að taka að sér. Ef slíkt væri athugað nú, yrði niðurstaðan vafalaust sú, að ríkisútgjöldin séu orðin of mikil í samanburði við þjóðartekjurnar. Það er kunnugt, að nú í augnablikinu er ekki hægt að koma fram skynsamlegum aðgerðum í dýrtíðarmálunum, sem m.a. gætu minnkað svo verulega fjárþörf ríkissjóðs, að eigi væri þörf fyrir þessar tollhækkanir og aðra þá tekjuauka, sem frv. liggja fyrir um. Einungis þess vegna, að samkomulag fæst ekki enn um það að fara þær leiðir, sem fara ætti í fjárhags- og atvinnumálum, eru frv. fram borin sem nokkurs konar nauðvörn. Þetta hefur komið fram í ræðum ráðh., sem talað hafa um tekjuaukafrv. Þeir hafa nefnt þau neyðarúrræði og bráðabirgðaúrræði. sem þau líka vissulega eru. Með þeim fæst engin varanleg lausn á þeim vanda, sem þjóðin er komin í vegna verðbólgu og dýrtíðar. Þetta eru aðeins óhjákvæmileg neyðarúrræði til þess að bjarga afkomu ríkissjóðs þetta árið. Til þess að komast út úr ógöngunum þarf aðrar ráðstafanir, eins og oft hefur verið bent á af framsóknarmönnum. Og e.t.v. er nokkur von um, að það, sem nú liggur fyrir og er að gerast, að ríkisútgjöldin eru fyrst og fremst vegna verðbólgunnar komin upp í 200 millj. kr., eða um 70% af útflutningnum, verði til þess að opna augu fleiri manna fyrir nauðsyn þess, að breytt verði um stefnu í fjármálum. Hv. andmælendur þessa frv. hafa haldið því fram í umr., að til þess að afla ríkissjóði nauðsynlegra tekna, hefði átt að fara öðruvísi að. Þeir hafa einkum talað um, að í stað tollanna hefði átt að leggja á stóríbúðarskatt. Rétt mun það vera, að til sé allmargt af óþarflega stórum íbúðum. Er það ekki sízt vegna þess, að fyrrv. stj. vanrækti að hafa eftirlit með og stjórn á því, hvernig innfluttu byggingarefni hefur verið ráðstafað. Þessi vanræksla stj. hefur gert einstökum mönnum fært að nota byggingarefni í óhófi, meðan aðra vantaði efni til nauðsynlegra bygginga. Vel getur komið til mála að leggja skatt á óhóflega stórar íbúðir, eins og aðra óþarfa eyðslu. En þó að slíkt væri gert nú, væri það engin lausn á þeim vanda, sem hér þarf við að fást, að ná 30 millj. kr. í rekstrarhalla fjárlfrv. Stóribúðaskattur yrði aldrei nema lítið brot af því, sem nú vantar í ríkiskassann, og þótt hann væri á lagður, væri ekki hægt að komast hjá hækkun á tollunum. En það gæti verið skynsamlegt að leggja á stóribúðaskatt og verja honum til þess að styðja nauðsynlegar byggingar í kaupstöðum og sveitum, sem nú vantar fé til. Stj. ætti að taka þetta til athugunar.
Það er ýmislegt, sem fram hefur komið í ræðum hv. þm. Sósfl. sem lítur einkennilega út, þegar það er borið saman við verk þeirra á síðustu árum. Hv. 2. þm. Reykv. sagði við 1. umr., að Sósfl. hefði viljað stuðla að því, að gróði yrði á þýðingarmestu atvinnuvegum þjóðarinnar, svo sem sjávarútveginum. Og flokksbróðir hans. hv. þm. Siglf. fyrrv. ráðh., hefur einnig talað mjög mikið um umhyggju sína og flokks síns fyrir sjávarútveginum. Það er kunnugt, hvernig búið var að ýmsum þýðingarmestu atvinnuvegum þjóðarinnar á þeim tímum, sem þessir hv. þm. tóku þátt í ríkisstj. Ég gat um áðan, að á þeim tíma hækkaði dýrtíðin um 44 stig. Og ekki sízt þess vegna var svo komið fyrir sjávarútveginum nú í vetur, að engin fleyta, að togurum undanskildum, gat komizt á flot, nema ríkið gengi í ábyrgð fyrir afurðaverðinu. Þannig skildu nú þessir menn við sjávarútveginn ósjálfbjarga, þrátt fyrir enn verandi stríðsverð á öllum afurðum.
Þeir töluðu einnig mikið um það, hv. þm. Sósfl., að heildsalar væru of margir hér í landi og gróði þeirra of mikill. Ég get vel fallizt á, að það sé rétt, að þeir séu óþarflega margir og hafi grætt óþarflega mikið. En hvernig var nú verzluninni hagað meðan þessar kempur voru í stjórn? Aldrei í sögu landsins hafa heildsalar lifað eins góðu lifi og grætt eins mikið og á þeim árum, — aldrei nokkru sinni. Það var allt önnur útkoma hjá þeim á stjórnarárum Sósfl. en hjá útgerðarmönnum, sem sósíalistar þó þykjast bera svo mjög fyrir brjósti. Og þó að hrjóti annað slagið miður fögur orð á milli hv. 2. þm. Reykv., form. Sósfl., og hv. 3. þm. Reykv., þegar talað er um heildsalana og verzlunarstéttina, þá geri ég fastlega ráð fyrir því, að heildsalarnir yfirleitt hljóti að óska þess, að Sósfl. komist sem fyrst til valda aftur, til þess að leiða þá í Gósen. Því að eins og ég sagði, hafa þeir aldrei lifað eins góðu lífi og meðan sá flokkur átti ráðh. í ríkisstj. En ég býst við því, að útvegsmenn margir, aftur á móti, sem þessi flokkur þykist bera fyrir brjósti, biðji þess heitt og innilega, að Sósfl. komi ekki til valda aftur, vegna þeirrar ömurlegu reynslu, sem þeir höfðu af stjórnarferli þess flokks.
Hv. 2. þm. Reykv. sagði áðan, þegar hann talaði um málfærslu Morgunblaðsins, að hann teldi málfærslu Morgunblaðsins móðgun við dómgreind almennings í landinu. Það er mikið til í þessu. Og hann kastaði svo fram þeirri spurningu: Hvers konar pólitík er þetta? En ég vil segja, að þegar Sósfl., verndari heildsalanna á undanförnum árum, talar um það, að þeir séu óþörf stétt í þjóðfélaginu, þá vil ég segja, að það sé móðgun við dómgreind almennings í landinu, og líka allt skraf hans um umhyggju þess flokks fyrir útgerðinni, eins og sá flokkur skildi við útgerðina, þegar ráðh. hans fóru úr ríkisstj.
Ég er nú að gera mér vonir um það, að breyting verði til hins betra í verzlunarmálunum með komu þeirrar ríkisstj., sem nú situr, og byggt ég það á því, sem kom fram í stefnuyfirlýsingu hæstv. ríkisstj., þegar hún tók við völdum, þar sem ef ég man rétt — því var lýst yfir, að stj. vildi hafa þannig stjórn á viðskiptamálunum, að verzlunin yrði sem hagkvæmust og bezt fyrir neytendur, þ.e. fyrir þá, sem þyrftu að kaupa vörurnar frá útlöndum. Ég geri mér vonir um, að hæstv. ríkisstj. standi við þessa yfirlýsingu, svo að t.d. þeir menn, sem óska að gera innkaup á nauðsynjum sínum þannig að annast þau sjálfir í samvinnufélögum, til þess að þurfa ekki að verzla við aðra, og eigi með því á hættu, að þar verði tekið af þeim óhæfilega mikið í umboðslaun, fái að haga innkaupum þannig. Ég geri mér vonir um, samkv. stefnuyfirlýsingu hæstv. ríkisstj., að það verði greitt fyrir þessum mönnum með því að leyfa þeim og félagssamtökum þeirra að flytja inn þær vörur, sem þeir þurfa og sem á annað borð er hægt að leyfa að flytja inn í landið. Og ef þetta verður, — sem ég geri mér vonir um samkv. stefnuyfirlýsingu stj. — þá er það mjög til bóta frá því, sem var í tíð fyrrv. hæstv. ríkisstj., þegar mjög var þrengt að neytendasamtökunum, svo sem kunnugt er.
En þó að þetta frv., sem hér liggur fyrir, verði samþ., sem ég geri ráð fyrir, og með því verði í bili bjargað við hag ríkissjóðs með því, að fé fáist til þess að jafna hallann á fjárlagafrv., þá er það engin lækning á þeim vanda, sem nú er við að fást. Og það þykist ég vita, og hef reyndar heyrt það á ræðum hæstv. ráðh., að hæstv. ríkisstj. er þetta ljóst. Þess vegna vil ég vænta þess — og vil beina óskum til hæstv. ríkisstj. um það —, að ríkisstj. taki nú þegar til athugunar aðrar og heppilegri leiðir, en farnar hafa verið til þess að komast út úr þeim ógöngum, sem við erum nú komnir í í fjárhags- og atvinnumálum.
Ég tók eftir því í ræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr. málsins, að orð féllu hjá honum á þá leið, að í stað þess, að stéttirnar héldu áfram að gera kröfur, hver með annarri og hver út af fyrir sig, þyrftu stéttasamtökin að bera ráð sín saman og reyna að komast að samkomulagi um þau vandamál, sem fyrir liggja. Ég held, að þetta sé efnislega nokkuð rétt eftir haft. Og ég vildi vænta þess og beina þeim tilmælum til hæstv. ráðh. og ríkisstj. allrar, að hún nú hið allra bráðasta reyndi að koma á samtölum milli forustumanna helztu stéttanna í þjóðfélaginu, til þess að reyna að ná samkomulagi meðal stéttasamtakanna um viðunandi úrbætur í þessum vandamálum. við vitum það mæta vel, að framleiðslukostnaður í þessu landi er allt of hár. Við erum ekki samkeppnisfærir við nágrannaþjóðir okkar um útflutningsvörur. Framleiðslukostnaður hjá okkur þarf að lækka. Það þarf að finna ráð til þess með samkomulagi milli stéttanna. Og það þarf jafnframt að ná samkomulagi, ef þess er kostur, um skiptingu þjóðarteknanna þannig, að viðunandi sé. Það væri verkefni fyrir hina fróðu menn, hagfræðingana, að gera till. um slíka hluti, og væri vel athugandi fyrir hæstv. ríkisstj. að fá slíka menn einnig sér til aðstoðar við lausn þeirra þýðingarmiklu vandamála. Þessum málum verður ekki komið á heilbrigðan grundvöll fyrr, en horfið er frá því vísitölufyrirkomulagi, sem nú er, og tekið í staðinn upp annað heilbrigðara fyrirkomulag og betra — reynt að finna leið til þess að skipta þjóðartekjunum sanngjarnlega milli landsmanna og gæta þess jafnframt, að ekki sé eytt meiru en aflað er hverju sinni og að kröfur stjórnarvaldanna til almennings um framlög í ríkissjóð — og þá um leið eyðsla úr hinum sameiginlega sjóði — verði í einhverju samræmi við tekjur þjóðarinnar á hverjum tíma. Ég vil vænta þess, að hæstv. ríkisstj. taki þetta stóra viðfangsefni hið fyrsta til alvarlegrar íhugunar, enda skilst mér, að það væri í samræmi við þá stefnu, sem hún kvaðst vilja fylgja, þegar hún nú nýlega tók við völdum.
Ég vil svo aðeins leyfa mér að afhenda hæstv. forseta, hina skrifl. brtt., sem ég lýsti í upphafi máls míns.