09.12.1946
Efri deild: 30. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í C-deild Alþingistíðinda. (3687)
80. mál, sóknargjöld
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. — Ég gat þess við 1. umr. þessa máls, að ég mundi flytja brtt. við frv. Er hún nú á þskj. 170, og er aðalefni hennar það, að kirkjugjaldinu verði nú breytt úr nefskatti, sem leggst að jöfnu á ríka sem snauða, vinnandi sem óvinnandi og lagður hefur verið á fólk frá 15 ára aldri allt fram á gamalsaldur, en í stað þessa verði fyrirkomulaginu breytt í það horf, að gjaldinu verði jafnað niður á útsvarsgreiðendur í sókninni sem hundraðshluta af útsvörum þeirra. Kæmi þetta áreiðanlega til að breyta sáralitlu þeirri heildarupphæð útsvara, sem ákveða þyrfti, með tilliti til þess, að sveitarstj. ætti að skilja það fé frá þörfum sveitarfélagsins og fá það sóknarn. til umráða. Ég held einnig, að með þessari aðferð verði útsvarsgreiðendur mjög lítið varir við sóknargjaldið, og yrði það þar með úr sögunni sem nefskattur. Með því fyrirkomulagi, sem ríkt hefur í þessum efnum, hefur kostnaður við innheimtu sóknargjalda verið mjög hár, og er í l. um kirkjugjöld heimild til þess, að allt að 6% renni í innheimtukostnað, en samkv. brtt. minni yrði enginn sérstakur innheimtukostnaður við þetta, heldur yrði kirkjugjaldið greitt eins og sóknarn. hefur ákveðið samkv. fjárhagsáætlun. — Það má segja, að hér sé um tvö mismunandi sjónarmið að ræða, þ. e. hvort innheimta eigi kirkjugjaldið sem nefskatt eða sem hundraðshluta af stighækkandi skatti eins og útsvar, en ég er eindregið þeirrar skoðunar, að þá leið eigi að fara, svo sem brtt. mín gerir ráð fyrir. — Ég vil á það benda, að í frv. því um sóknargjöld, sem hér liggur fyrir á þskj. 125, er ákvæði um það, að ef kirkjugjaldið reynist of lágt, þannig að það hrökkvi eigi fyrir nauðsynlegum útgjöldum kirkjunnar að dómi sóknarn., þá sé henni heimilt að jafna því, sem á vantar, niður á kirkjugjaldsskylda útsvarsgreiðendur í sókninni sem hundraðshluta af útsvörum þeirra, en þessu mundi fylgja sérstakur kostnaður, og fyndist mér miklu eðlilegra, að allt gjaldið verði ákveðið sem hundraðshluti af útsvörum þeirra með þeim kostnaði, sem því fylgir.