09.12.1946
Efri deild: 30. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í C-deild Alþingistíðinda. (3694)
80. mál, sóknargjöld
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins gera athugasemdir við ræðu hv. 1. landsk. þm. Ég er honum að nokkru leyti sammála um það, að eðlilegt væri að afnema nefskattinn, en þá væri óhjákvæmilegt að gera ýmsar aðrar breytingar, t. d. varðandi ýmis fyrirtæki og hvort ætti að taka þetta eins og ríkisskatt, svo sem víða annars staðar. (BSt: Þeir þurfa að fá fyrirbænir.) Ég er ekki á móti þessu vegna gjaldabyrðarinnar sjálfrar, því að það er sáralítið atriði, en ég er á móti því vegna þeirrar persónulegu riftingar, sem þetta hefur í för með sér milli kirkju annars vegar og einstaklinga hins vegar. Það er þess vegna, að ég er á móti þessari brtt. Það eru til menn, sem gjarnan vilja fórna miklu meira til kirkju sinnar en nemur hinum lögboðnu gjöldum og hafa lagt á sig miklu meiri gjöld í sambandi við þau mál en 1. mæla fyrir um. Það er þess vegna, sem ég er á móti því, að þessu sé nokkuð breytt á þessu stigi málsins, nema gerðar séu breyt. á kirkjunni yfirleitt.
Ég vil eindregið leiðrétta það, sem hv. þm. sagði um kirkjugarðsgjaldið. Það er ekki tekið sem hundraðshluti af tekjum manna, heldur sem hundraðshluti af útsvörum manna og það í örfáum stöðum, t. d. hér í Reykjavík. Í langflestum stöðum er það ekki tekið sem hundraðshlutagjald, en það er í 1. heimilað að taka þetta gjald sem hundraðshlutagjald af útsvörum, þó að þeirri aðferð sé ekki beitt víða. En hér í Reykjavík er slíkt gjald tekið, sem er mjög ranglátt. Ég er ekki viss, nema hægt væri að innheimta þetta gjald á miklu sanngjarnari hátt og hagkvæmari, því að þarna er um aðila að ræða (HV: sem aldrei verða grafnir.), já, aldrei verða grafnir, en það má samt kannske biðja fyrir þeim.
Till. mín fer fram á að hækka um 100% kirkjugjaldið og taka síðan meðalverðlagsvísitölu á það. Ég hefði getað fellt mig við brtt. hv. 1. landsk., hvað snertir þá, sem eru undanskildir þessu gjaldi, og einnig að miða það við skattgreiðslu, þó að ég telji það lakara, en vegna þess, að þessi till. er bundin við önnur ákvæði, treysti ég mér ekki til þess að fylgja henni eins og hún er. Ég hefði talið rétt, að hann tæki hana aftur til 3. umr., til þess að hægt sé að sjá, hvað við getum gert við málið eftir þessa umr.
Hvað snertir ræðu hv. 1. þm. N-M., þar sem hann talaði um það, hvaða verðlagsvísitölu ætti að miða við, þá hygg ég, að það komi af sjálfu sér, að miðað yrði við árið áður, því að verðlagsvísitalan á greiðslur verður ekki þekkt á þeim tíma, þegar gjaldið á að greiða, það verður því ekki þörf á að taka það fram, að það sé miðað við árið áður. Mér var vel kunnugt um gjaldið til háskólans, en ég hygg, að ef mín till. verður samþ., þá þurfi ekkert sérstakt ákvæði um það. En hitt er ljóst, að ef farið er að taka þetta gjald inn sem tekjuskatt, þá getur verið rétt að athuga, hvort ekki á að breyta því, að þetta eigi að renna til háskólans, því að slík efnisbreyting getur haft aðrar og meiri breyt. í för með sér.