11.04.1947
Neðri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í B-deild Alþingistíðinda. (370)

219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947

Forseti (BG):

Mér hafa borizt tvær skrifl. brtt. við þetta frv., sem hér liggur fyrir til umr. Hin fyrri er frá hv. þm. V-Húnv., um að fella niður 5. gr. frv. Hin síðari er frá meiri hl. hv. fjhn. og hv. 3. þm. Reykv. las hana upp. — Þessar brtt. eru skriflegar og of seint fram komnar, og fyrir þeim þarf því tvenn afbrigði, sem ég leita hér með.